Skólavarðan - 01.12.2011, Síða 15
15
Skólavarðan 3.tbl. 2011
grunnskóla í Svíþjóð sem tóku að sér að prófa leikina og vefinn á
þróunarstigi ásamt nokkrum leik- og grunnskólum hér á landi. Um
svipað leyti fékkst styrkur frá Vísindasjóði KÍ til að vinna sömu leiki
á íslensku. Jafnframt var ákveðið að gera enska útgáfu af leikjunum
og horfa til þess að í framtíðinni yrðu leikirnir þýddir á fleiri tungumál
og enskan nauðsynleg sem samskiptamál. Þannig var farið af stað
í lok ársins 2010. Í byrjun sumars opnuðum við þróunarútgáfu af
leikjavefnum paxel123.com með þremur leikjum á íslensku, ensku og
sænsku. Þá hafði fengist viðbótarstyrkur í gegnum Nordplus til þess
að gera sömu leiki á dönsku, norsku, færeysku og grænlensku. Auk
Nordplus og Vísindasjóðs KÍ hafa fengist styrkir frá Barnavinafélaginu
Sumargjöf og menntamálaráðuneytinu í gegnum norrænt málátak.
Fimm leikir komnir og fjórir á leiðinni
Nú í september lauk vinnu við hönnun og forritun og þá var var
fullbúin útgáfa af leikjavefnum paxel123.com tekin í notkun. Þar
eru nú fimm leikir á þessum tungumálum. Þeir eru formapúsl,
rímlottó, speglunarleikur, mynsturleikur og stafarugl. Sjötti leikurinn
er í forritun og kemur inn um áramót og þrír til viðbótar eru í
undirbúningi. Vefurinn verður lifandi og í sífelldri þróun og því má
búast við smábreytingum á leikjum og uppsetningum til hins betra. Frá
upphafi var lögð áhersla á að leikirnir yrðu ókeypis og aðgengilegir
öllum sem vildu. Engrar auglýsingar verða þar, engrar skráningar
er krafist og engum persónulegum upplýsingum safnað. Fljótlega í
ferlinu tókst mikilvægt samstarf við SAFT, sem er vakningarátak um
örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. SAFT er hluti af
Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um
öruggari netnotkun og er styrkt af ESB. Leikjavefurinn fellur vel að
öryggisreglun ESB um örugga netnotkun barna.
Henta börnum með ólíkar þarfir
Markmið leikjanna er að örva læsi barna í stærðfræði og móðurmáli
og er vefurinn hugsaður fyrir börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í
að vinna með hugtök og efni sem tengjast stærðfræði og móðurmáli.
Markmiðið er að örva læsi í
stærðfræði og móðurmáli.
Anna Margrét Ólafsdóttir
Um paxel 123.com á danska námsgagnastofnunarvefinn (stutt brot úr bréfi)
Subject: Re: læringsspil til matematik og dansk på Træneren /emu.dk
Hej Anna Margret
Tak for et godt møde i dag. Det er altid godt at få ansigt på dem man skriver med.
Jeg er meget imponeret over dine spil. De er både fagligt gode og smukke.
Venlig hilsen
Jytte
námsgögn