Skólavarðan - 01.12.2011, Qupperneq 38
38
Skólavarðan 3.tbl. 2011
Hamingjan er
ekkert (endilega svo) flókin
Settu þér markmið og hugsaðu um þau
Hafðu fastan áhyggju/kvíðatíma, til dæmis kl. 18-18:15 á virkum dögum.
Fyrirgefðu allt smotterí um leið
Njóttu þess litla og hversdagslega
Farðu fyrr að sofa
Gerðu góðverk
Iðkaðu áhugamál sem þú hefur ástríðu fyrir
Ekki hugsa aftur og aftur um leiðinlega hluti, beindu athyglinni annað
Láttu eins og kjáni J
Sinntu andlegu hliðinni – með hugleiðslu, bænum, samræðum um grunngildin í lífinu eða hverju
sem höfðar til þín
Þroskaðu „jákvæðnipúkann“ - skrifaðu niður þá björtustu framtíð sem þú getur ímyndað þér,
hvað af henni hefur ræst og hvað þú gerðir til að áorka það
Losaðu þig við allt sem þú notar ekki
Keyptu handa þér blóm
Endurupplifðu góðar minningar
Stígðu út fyrir þægindarammann
Lestu fimmtán tillögur í viðbót, allar góðar, í greininni
30-days-30-ways-be-happier á www.ivillage.com
Allt frá setningu grunnskólalaganna 2008 hefur verið unnið að
gerð heildstæðrar reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila skóla-
samfélagsins í víðtæku samráði við hagsmunaaðila. Í frétt frá
menntamálaráðuneyti er innihald reglugerðarinnar reifað. Fréttin
er birt hér í styttri útgáfu en hana er hægt að lesa í heild á vef
ráðuneytisins.
Lögð hefur verið mikil áhersla á að ná sátt um þessa reglugerð sem
ætlað er víðtækt hlutverk hvað varðar meðal annars skólabrag, agamál,
eineltismál, ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í þeim efnum
og málsmeðferð í skólum þegar misbrestur verður á tilteknum atriðum.
Njóti bernskunnar
Markmið reglugerðarinnar er meðal annars að nemendur geti notið
bernsku sinnar í skólastarfi, notið hæfileika sinna og séu öryggir í
öllu starfi á vegum skólans og að allir í skólasamfélaginu kappkosti í
sameiningu að stuðla að og viðhalda góðum starfsanda og jákvæðum
skólabrag þar sem öryggi, vellíðan, heilbrigði og jákvæð samskipti eru
höfð að leiðarljósi.
Skólareglur
Setja skal skólareglur í hverjum grunnskóla með skýrum viðbrögðum
við brotum á reglunum og að úrræði og viðbrögð stuðli að jákvæðri
hegðun og miði að því að rækta persónuþroska og hæfni nemenda. Í
skólareglum skal meðal annars kveðið á um almenna umgengni, sam-
skipti, háttsemi, stundvísi, ástundun náms, hollustu og heilbrigðar
lífsvenjur.
Einelti
Í reglugerðinni er ítarlega fjallað um starf grunnskóla gegn einelti
en allir skólar skulu hafa heildstæða stefnu til að fyrirbyggja og
bregðast við líkamlegu, andlegu og félagslegu ofbeldi og félagslegri
einangrun. Skólar skulu setja sér aðgerðaáætlun gegn einelti með
virkri viðbragðsáætlun til að takast á við eineltismál í skólanum.
Aðgerðaáætlun gegn einelti er hluti af skólanámskrá og skal kynnt
sérstaklega og birt opinberlega. Starfsfólk sérfræðiþjónustu skal
aðstoða skóla í tengslum við aðgerðir gegn einelti og úrlausn
einstakra mála eftir því sem þörf krefur. Á vegum mennta- og
menningarmálaráðuneytis skal stofna fagráð í eineltismálum sem
starfar á landsvísu.
Ef háttsemi nemanda leiðir af sér hættu
Nýmæli er að í reglugerðinni er fjallað um líkamlegt inngrip í málum
nemenda vegna óásættanlegrar og/eða skaðlegrar hegðunar nemenda.
Ef starfsfólk skóla metur að háttsemi nemenda leiði af sér hættu fyrir
samnemendur og/eða starfsfólk skóla þá ber starfsfólki skylda til
að bregðast tafarlaust við slíku með líkamlegu inngripi til að stöðva
nemanda. Verklagsreglur skulu unnar af starfsfólki skóla vegna tilvika
þegar stöðva þarf óásættanlega hegðun nemanda, bregðast við hótunum
eða ef rökstuddur grunur er um að nemandi sé undir áhrifum vímuefna.
Reglugerðin er undir Lög og reglugerðir á menntamalaraduneyti.is
Ný reglugerð Ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum