Skólavarðan - 01.12.2015, Blaðsíða 8
8 DESEMBER 2015
Körlum hefur fækkað hratt í kennarastétt
á undanförnum árum en í dag eru karlar
aðeins tæplega 20% félagsmanna Kennara-
sambands Íslands. Konur eru í meirihluta
innan allra aðildarfélaga KÍ; hlutfallið er
jafnast innan framhaldsskólans þar sem
„aðeins“ sex kennarar af hverjum tíu eru
konur en langlægst er hlutfallið í leik-
skólanum, til dæmis eru rúmlega 97 prósent
félagsmanna Félags
stjórnenda leikskóla
konur. Þessi mynd hefur
verið að breytast hægt og
rólega síðustu ár og segja
má að ákveðin kaflaskil
hafi orðið árið 2006
þegar konur urðu í fyrsta
skipti fjölmennari en
karlar í kennarahópi framhaldsskólans.
Þessu til viðbótar hafa á mjög stuttum
tíma orðið miklar breytingar á kynjahlutfalli
meðal kennaranema, bæði í Háskóla Íslands
og Háskólanum á Akureyri. Konur hafa
lengi verið í meirihluta nemanna í heild,
sérstaklega meðal þeirra sem eru í leik-
skólakennaranámi, en á síðustu árum hefur
kynjahallinn aukist hratt meðal þeirra sem
sækja sér réttindi til að kenna í framhalds-
skólum landsins. Um aldamótin voru karlar
þar í meirihluta (um 53 prósent) en í fyrra,
fjórtán árum síðar, voru karlmenn aðeins
fjórðungur hópsins (25%).
Ungar konur taka við af eldri
körlum
Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ, hefur
um nokkurt skeið haft áhyggjur af þessari
þróun. Því tók hann sig til á dögunum og
skoðaði kynjaþróun í kennarastétt síðustu
ár og vann í framhaldi spá um hvernig
myndin mun líta út eftir fimm og fimmtán
ár ef ekkert verði að gert. Bak við spána er
mikil gagnasöfnun og útreikningar, þó segja
megi að aðferðafræðin sé í sjálfu sér einföld.
Til dæmis byggir fimm ára spáin (fyrir árið
2020) á því að þá hafi kennarar sem náð
hafa eftirlaunaaldri hætt störfum, en í stað
þeirra komi til starfa nýir kennarar, bæði
ERU KARLAR Í KENNARA
STÉTT AÐ DEYJA ÚT?
Aðeins um 20% félagsmanna Kennarasambandsins eru karlar. Úttekt hagfræðings Kennarasambandsins
sýnir að verði ekkert að gert mun hlutfall karla í kennarastétt lækka enn frekar á næstu árum.
„Það að fjölga körlum
í kennslu felur meðal
annars í sér að glíma
þarf við hefðbundin
kynjaviðhorf í sam-
félaginu sem móta
náms- og starfsval“
Börn sem nú eru í leikskóla geta átt von á því að konur verði í miklum meirihluta þeirra sem kenna þeim í leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Oddur S.
Jakobsson