Þjóðmál - 01.03.2014, Blaðsíða 38
Þjóðmál voR 2014 37
Jóhann J . Ólafsson
Almannasamgöngur
á höfuðborgarsvæðinu
Það er kunnara en frá þurfi að segja að al menningssamgöngur virka ekki í
Reykjavík .
Einungis 4% af umferð í Reykjavík fer
fram með strætisvögnum . Aðeins 10%
af sætum þessara vagna er notað til þess
að flytja þessi 4% . — Þessi lausn er með
öðrum orðum svo dýr eða óhagkvæm fyrir
neytendur að 96% þeirra finnst ódýrara eða
betra að aka sjálfir í eigin bifreið .
Árið 2005 gisti ég í New York . Þar í borg
er mikið hótel, Waldorf Astoria, stærsta
hótel heims þegar það var byggt . Herbergi
þess eru 1410 svo að gestir geta verið um
2820 . Um 1500 manns starfa á hótelinu .
Gestir og starfsfólk geta því samtals verið
um 4300 manns .
Hótelið er á 27 hæðum og eins og lítil
borg . Spurningin er, hvernig umferð manna
um þetta ferlíki sé háttað . Bæði gestir og
starfsfólk er á sífelldum ferðum upp og
niður þessar 27 hæðir mörgum sinnum
á hverjum degi . Í hótelinu eru 29 lyftur .
Oftast eru 5–20 manns í lyftu í hverri ferð .
Fólk stígur inn og gengur út á hinum ýmsu
hæðum, þó mest á neðstu hæðinni, þar sem
stundum myndast bið .
Hvernig væri þessu háttað ef menn tækju
samgöngukerfi einkabílsins í Reykjavík sér
til fyrirmyndar í þessu stóra hóteli? Þá hefði
sérhver gestur og hver starfs maður sína
einkalyftu út af fyrir sig, lyftu sem hann
notaði oftast einn í hverri ferð . Og meðan
lyfta hans væri ekki í notkun yrði henni lagt
þar til hann þarfnaðist hennar næst .
Slíkt fyrirkomulag samgangna myndi
gera það nauðsynlegt að byggja lyftuhús,
sem yrði jafn stórt, ef ekki stærra, en allt
Waldorf Astoriahótelið .
Þetta stendur heima því að í Reykjavík
fer helmingur borgarlandsins undir um
ferðar kerfi einkabílsins: götur, bílastæði,
bílskúra, bílageymsluhús, bílahlöð og ýmis
umferðarmannvirki .
En getum við lært nokkuð af lyftunotkun
í Waldorf Astoriahótelinu?
Einkabíllinn
Við hvað eru strætisvagnarnir að keppa? Keppinautur strætisvagnsins
er einka bíllinn, sem leysir 96% af umferð
inni í Reykjavík, þótt hann sé mörgum sinn
um dýrari í rekstri . Hann er raun veru lega
ódýr ari fyrir neytandann, því hann leysir
þarfir hans miklu betur en strætisvagninn .
Bílaeign á Íslandi er mjög algeng . Nánast
hver einasti maður á bíl . Bílaeign er miklu