Þjóðmál - 01.03.2014, Blaðsíða 48
Þjóðmál voR 2014 47
unnar ef ein IRV væri nálægt verðgildi
einnar íslenskrar krónu, allur samanburður
yrði þá einfaldari . IRV væri því ekkert annað
en myntkarfa sem nýtt væri sem viðmið .
Þannig gætu verkalýðsfélögin og hin
ýmsu samtök atvinnulífsins ákveðið lág
marks laun sem væru ákveðinn fjöldi IRV á
mánuði . IRV gæti einnig hentað sem viðmið
fyrir verð á vörum . Leigubílstjórar gætu þó
alltaf sýnt verðin sín í kúbverskum peso eða
þakið hálfa framrúðuna í öllum heimsins
myntum . Líklegra er þó að markaðurinn
myndi velja sér, án ríkisafskipta, sam
ræmda mynt eða vísitölu, t .d . IRV, til að
kynna verðlagið . Þá gætu margir tekið
upp á því að gera samninga við launafólk,
húsaleigusamninga, lánasamninga og annað
í íslensku ríkisvísitölunni . Bank arnir gætu
jafnvel boðið upp á sjóði með IRVeigna
samsetningu og gefið út sína eigin IRV
gjaldmiðla . Allt gert með sem minnstum
afskiptum hins opinbera og fullkomið frelsi
til að nota þá mynt sem menn kjósa .
Við þurfum ekki að nema staðar við seðla
og myntir hinna ýmsu ríkja . Við ættum að
geta valið sem gjaldmiðil gull, ál, stál, olíu,
kWh eða jafnvel símamínútur . Eina skilyrð
ið er að öflugur markaður og áreiðanleg
vísi tala fylgi vörunni til að umreikna gjald
miðl ana í íslensku ríkisvísitöluna .
Ríkið er vandamálið
Stjórnmálamenn hafa engan dug til að taka stórar ákvarðanir í átt að frelsi
nema mikið liggi við . Ef Ríkisútvarpið
væri ekki starfandi væru þeir einstaklingar
sem stæðu á torgum og krefðust stofnunar
tveggja ríkisútvarpsstöðva álitnir öfga
menn . En hver er munurinn á þeim sem
myndu krefjast stofnunar RÚV og sjálf
stæðis manna sem gera ekkert í að loka
eða draga um talsvert úr starfsemi þessarar
stofn unar? Meðan núverandi ríkisstjórn
lokar ekki stofn un um eða sendiráðum
né afnemur fáránleg lög og reglugerðir
má ekki búast við að hún hafi nægilega
sterkan maga til að ráðast í breytingar á
gjaldmiðlamálum Íslend inga .
Meðan núverandi ríkisstjórn lokar ekki stofn un um eða
sendiráðum né afnemur fáránleg
lög og reglugerðir má ekki búast
við að hún hafi nægilega sterkan
maga til að ráðast í breytingar á
gjaldmiðlamálum Íslend inga .