Félagsbréf - 01.12.1961, Síða 10
8
FÉLAGSBRÉF
og margir ágœtir áhrifamenn hafa frá henni komið. En sjálf hefur
stofnunin barizt i bökkum lengst af. Slarfssviðið var of pröngt
þegar i upphafi og hefur ávallt verið pað. Áherzla hefur verið lögð
á að brautskrá hœfa embœttismenn, og hefur pað vissulega tekizt
með ágœtum. En aldrei hefur pess orðið vart, að frjó andleg menn-
ing próaðist meðal nemenda háskólans nc nýir menningarstraum-
ar bœrust út frá þeim sem heild. Stafar pað áreiðanlega miklu
fremur af slœmum skilyrðum til félagslifs og vafasamri undirbún-
ingsmenntun en þvi, að kennendur háskólans sé um að saka.
Itaunvísindi og' íslenzk menning;
Af þeim gjöfum, sem háskólanum bárust á afmœli sinu, en
par bar hœst 5 milljón króna gjöf frá Bandarikjunum til raun-
visindadeildar og tveggja milljóna króna gjöf frá ónefndum
Norðmanni til handritarannsókna og islenzkra frœða, er auðséð
hvar menn telja helzt eflmgar pörf i nœstu framtið, enda er hvort
tveggja, aukin raunvisindastarfsemi og alúð við islenzkar menn-
ingarerfðir, þjóðinni ckki aðeins œskilegt, heldur nauðsynlegt.
Raunvisindadeild við háskólann er undirstaða tæknimenntaðs
pjóðfélags, en efnahagsmál vor í dag sýna, að aultin iðnvœðing og
par með tœknimenntun er oss lifsnauðsyn. Og á hinu atriðinu,
fullri rœkt við islenzka menningu, byggist einnig andleg og ver-
aldleg tilvera vor. Þjóðmenning vor á sinum forna og sterka stofni
er meginforsenda fyrir sjálfstrausti pjóðarinnar og virðingu ann-
arra fyrir oss. Og hún er miklu meira. Hún er t.d. grundvöllurinn
undir pá von og vissu, að oss auðnist framvegis að búa einir
í landi voru, auðugu, en strjálbýlu. Minnumst pess, að
heimurinn verður œ péttbýlli. Innan skamms gæli t.d. rekið að
þvi, að flytja verði tugmilljónir fólks af péttsetnustu svæðununi
til hinna strjábýlli. Vér mundum áreiðanlega kjósa að komast hjá
slikum innflutningi hingað, en stæðum pvi aðeins vcl að vígi
að sporna gegn honum, að hér byggi virðingarvcrð pjóð, sem
hefði eitthvað það að varðveita, sem heimurinn teldi varðveizlu
vert.