Félagsbréf - 01.03.1962, Síða 22

Félagsbréf - 01.03.1962, Síða 22
18 FÉLAGSBRÉF Á þessum tímum, þegar Hannes hafði lokið námi, var ekki blóm- legt um að litast hér á landi. Áratugurinn 1880—90 hafði verið hinn versti á öldinni og gert þúsundir manna landflótta. Fæstir íbúar hinnar glæsilegu Reykjavíkur vorra tíma munu gera sér ljósf, hvers konar lífskjör hinar 3500 sálir, sem þá bjuggu hér, áttu allflestar við að búa. — Þrjú næstu árin vann Hannes mest að fræðistörfum og kennslu og lagði hart að sér, en árið 1891 réðst hann í að kaupa elzta blað landsins, Þjóðólf, fyrir allhátt verð, og gerðist ritstjóri þess, og tókst á næstu tveim árum að greiða andvirðið. Þjóðólf gaf Hannes út samfleytt í 18 ár og taldi jafnan síðar það tímabil hið þróttmesta í ævi sinni. Þjóðólfur var á þessu tímabili annað aðalskautið í íslenzkri þjóðmálabaráttu, en hitt var Isafold, með Björn ritstjóra í broddi fylkingar, en milli þessara höfuðmálgagna stóðu oftast þrumur og magnaðar eldingar. Þannig var Hannes kominn inn í stjórnmálaeldinn. Hann sat alls á 7 þingum sem fulltrúi Árnesinga, og á tveim hinum síðustu var hann forseti neðri deildar. Stjórnmálabarátta Hannesar er saga út af fyrir sig, sem hér skal ekki rakin. En eitt skal þó nefnt, að ræða sú er Hannes flutti á al- þingi hinn 26. júlí 1902 um stjórnarskrármálið, sýnir gleggst, að í þeim efnum hugsaði hann flestum bæði hærra og lengra. Hann fylgdi jafnan fast að málum Benedikt gamla Sveinssyni, meðan hans naut við, en hann hafði tekið við hinni stjórnmálalegu erfða- skrá Jóns Sigurðssonar. Samfylgd Benedikts sýslumanns launaði Hannes með því að rita ævisögu hans árið eftir að Benedikt dó, og var hún prentuð í Andvara aldamótaárið. Einn traustasti styrktarmaður og velunnari Hannesar á náms- árum hans og síðar var hinn ágæti lærdómsmaður Jón Pétursson, dómstjóri við landsyfirréttinn, sem eins og Hannes var búinn náð- argáfu á sviði ættfræði og hafði á árunum 1869—’73 gefið út hið eina tímarit hér á landi, sem eingöngu hefur verið helgað ættfræðú .1 litlum bæ, eins og Reykjavík, hlutu þessir menn, þrátt fyrir ald- ursmun, að dragast hvor að öðrum eins og járn og segull, enda

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.