Félagsbréf - 01.07.1962, Qupperneq 36

Félagsbréf - 01.07.1962, Qupperneq 36
32 FÉLAGSBRÉF hendur gersamlega tómar,'en brennandi þrá eftir menntun og knýjandi köllun í brjósti. En það varð lítið úr skólagöngu; fátæktin var alls staðar ójdirstíganlegur þröskuldur. Kristmann hefur sjálfur lýst þessu átakanlega, en af fullkomnu raunsæi í fyrsta bindi ævisögu sinnar. Hann segir svo: „Á íslandi var enn morgunn tímans. Þar bafði lítið gerzt í 900 ár. Við sváfum. En það var enginn Þyrnirósublundur, heldur martröð hinnar ömur- legustu örbirgðar, sem nokkur siðuð þjóð hefur átt við að búa. Nú var hún að vísu tekin að rumska. Fátæktin var óskapleg. Er ég man fyrst eftir mér, hafði þjóð mín ekki safnað meiri fjársjóðum á jörðu, en nema myndi eignum eins eða tveggja þeirra íslendinga, sem nú eru fjáðastir. Peningar voru nálega engir manna á meðal og flest fólk var klæðlítið. Sultur var næsta algengur og mestöll þjóðin þjáðist af efnaskorti.“ Þér haldið, ef til vill, að þessi lýsing sé ýkjur einar og firrur. Hún er það ekki. Hún er dagsönn. Ég þekki þessa veröld, af því að ég er fæddur inn í hana, þekki allan kulda hennar, tillitsleysi og borginmannlega vesöld. Ég hef séð tugi af jafnöldrum mínum standa andspænis henni með stóra drauma, brennandi framaþrár, ótvíræða hæfileika, og bogna fyrir henni, gefast upp, sætta sig við lífskjör, sem voru gersamlega ósamboðin hæfi- leikum þeirra, brotna í kurl í niðurlægjandi áþján, eða koðna í búra- legri sjálfsánægju, en bera þó í launklefa hugans sviðann af glötuðum mar.ndómsdraumi til endadægurs. En Kristmann Guðmundsson var af ann- arri gerð. Hann átti að vísu í sér þokuna rauðu. En hann átti líka í sér logann hvíta. Hann var skáld — og ævintýrið í lífi hans byrjar í alvöru, þegar hann fer að koma skálddraumi sínum í framkvæmd. — Mennta- skólinn er honum að vísu lokaður sakir fátæktar, en Kristmann er þúsund- þjalasmiður, hefur ofan af fyrir sér með hinum margvíslegustu störfum, les óhemju, lærir á eigili spýtur, kynnist fólki, kynnist lífshögum manna, kynnist skorti, kynnist ástinni, verður veikur, fer á Vífilstaði — kynnist hinu sérkennilega baráttulífi fólksins í þessari nýlendu dauðans og ólg- andi lífsvona, les, yrkir og gefur út ljóðabók, — en fær að finna það átakanlega, að hann er maður, sem herst um þegnrétt og inngöngu utan lokaðra dyra. Sár, en óbugaður, ákveður hann að fara til Noregs vorið 1924, nema, vinna, og verða rithöfundur á norska tungu. Og fer — vitanlega alls- laus — hann á einungis fötin, sem hann stendur í, og svo sem fyrir einni máltíð þegar hann stígur á strönd þess lands, sem á að verða orrustuvöllur hans og önnur fóstra. Hvað var þetta eiginlega? Feigðarflan? Eða mont og yfirlæti unglings, sem hafði nóga krafta til að róa á sjó, jafnvel
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.