Félagsbréf - 01.07.1962, Síða 60
56
FÉLAGSBRÉF
um seinna var hann orðinn víðlesnast-
ur allra skáldsagnahöfunda, sem þá
voru uppi. VikublöS, sem fluttu sög-
ur hans, voru rifin út í tugþúsundum
eintaka og liver bók hans af annarrí
kom út í risavaxnari upplögum en þá
voru dæmi til. Lesendur hans voru úr
öllum stéttum þjóSfélagsins, allt frá
konungbornu fólki til betlaranna á
götunni, og persónurnar í sögum hans
voru mönnum jafn raunverulegar og
nágrannarnir í næsta húsi.
Lengi fram eftir var svo aS sjá sem
fáir þyrSu aS vega aS þeirri miklu aS-
dáun, sem Dickens féll í skaut, og fór
því samt fjarri, aS allir væru jafn
ánægSir meS hann. ISjuhöldar lögðu
fæS á hann fyrir aS ráSast á borgara-
legar atvinnustofnanir, sem þeir töldu
hinn efnalega grundvöll þjóSfélagsins,
og vinstri | sinnaSir flokksforingjar
reiddust honum engu minna fyrir
fylgisleysi viS kerfisbundnar stjórn-
málakenningar. Loks komu til sögunn-
ar nýir höfundar, sem féllu betur í geS
hinni hörundsáru borgarastétt Viktoríu-
tímabilsins, þó að sumir ágætustu bók-
menntamenn Bretlands, svo sem Matt-
hew Arnold, Gissing og Chesterton,
hefð’u á lionum bctri skilning og þreytt-
ust ekki á að vegsama bækur hans. Á
fyrstu áratugum þessarar aldar leit
helzt út fyrir, aS Dickens yrði þokað
burt af sjónarsviðinu, en á síðustu
tuttugu árum hefur hann aftur hafizt
til vegs og virðingar, jafnvel umfram
það sem nokkru sinni var fyrr, og
Cliarles Dickens.
menn eru stöðugt að koma auga á
nýjar hliðar og nýja eiginleika í hin-
um margræða skáldskap hans. „ÞaS
fer ekki lengur framhjá mönnum, aS
hin hmtmiðaða og íjölbrugðna at-
burðarás í skáldsögum hans er stór-
kostleg sinfónisk hljómkviða, þar sem
stef og tilbrigði skila verkinu mark-
víst áfram, unz það’ nær hámarki í úr-
slilalausn lokatónanna,“ segir ameríski
bókmenntafræðingurinn Edgar Johnson
í nýlegri grein og enski rithöfundur-
inn Edmund Wilson kveður ekki síður
fast að orði: „Þeir sem töluðu fjálg-
legast um Dostójevskí létu sér gleym-
ast, að Dickens var hinn mikli læri-
faðir hans og meistari,“ hefur hann
1