Kauphöllin - 01.12.1932, Qupperneq 15
Höfum ávalt nægar birgðir af kolum, bæði
enskum óg pólskum, ásamt koksi.
Vanti yður kol þá hringið í síma 19 3 3 og við
munum senda þáu heim um hæl.
Simi 1933
Sími 1933
KÁUPHÖLLIN
Er óviðjafnanlegur að gæðum.
lengur. Að fara að lýsa hinum bág-
bornu högum sínum fyrir þessum kalda
auðkýfingi eftir slíka móttöku, mundi
. hafa verið ölmusubæn og honum hreis
hugur við því.
Hann hefði eigi getað komið upp
einu orði, þótt hann hefði átt að verða
hungurmorða með konu sinni og börn-
um. Hann hneigði sig kurteislega fyr-
»> ir bankastjóranum og gekk út úr hinu
skrautbúna herbergi.
Það er hægra að ímynda sér ör-
vænting konu hans, heldur en að lýsa
henni, þegar hann kom heim og sagði
henni frá vonbrigðum sínum. — Hún
kvartaði sárt um hin grimmu forlög,
sem gjörðu leik að hjörtum hinna fá-
tæku og ógæfusömu, með því að láta
fjármuni berast upp í hendur þeirra,
aðeins til að reyna dyggð þeii’ra, og
fleýgja þeim síðan í sama þræla slitið,
sem eftir það verður ennþá óþolan-
legra.
En hr. Barret var einmitt maður,
sem kunni fyllilega að meta slíka ráð-
vendni. Hann sá þegar í stað, að hann
hafði fyrir sér fátækan mann, er hefði
getað haldið peningunum, án þess að
eiga á hættu að það kæmist nokkru
sinni upp. Slíkt dæmi dyggðar og ráð-
vendni vildi hann eigi láta ólaunað.
Hann bauð þegar í stað einum af skrif-
urum sínum að veita Kostlín eftirför,
og komast að, hvar hann ætti heima.
Síðari hluta dags fór hinn mikli auð-
maður sjálfur heim til Kostlíns,, sem
eigi varð all-Iítið hissa á því. Hin mikla
fátækt, sem þar var að sjá á öllu inn-
an veggja, hreif auðmanninn til enn
meiri virðingar fyrir þeim, er þar áttu
heima. Hann hlýddi með þolinmæði á
sögu Gerhards, hvernig efnin hefðu
smám saman gengið af honum, og leit
brosandi á hin mörgu meðmælabréf, sem
María kom með í flýti.
,,Það er mjög heppilegt, hr. Kost-
lín, að þér eruð dugandi verzlunar-
maður. Vitnisburðir yðar bera vott um
það, en sjálfir hafi'ð þér komið með
þau meðmæli, sem eg met mest. Mig
hefir um tíma vantað skrifstofustjóra,
og mér hefir gengið illa að finna
mann, sem eg gæti trúað fyrir því
starfi. Þessa stöðu vil eg nú bjóða yð-
ur, og ef þér viljið taka hana að yð-
ur, þá megið þér skoða yður sem ráð-
inn hjá mér með 8 þúsund dollara
árslaunum“.
Gerhard ætlaði naumast að geta
trúað því, sem hann heyrði; hið eina
svar, sem hann gat gefið, var straum-
ur heitra tára.
Hann rétti bankastjóranum hönd
sína til þakklætis. Bankastjórinn tók
hjartanlega í hönd hans, og reis upp,
til að fara. ,,Þér getið -fengið fyrir-
fram þá upphæð, sem yður er nauð-
synleg í bráðina, til þess að rétta við
hag yðar, og undirbúa heimili yðar
gleðileg jól“.
Það var þægilegt að heyra banká-
stjórann segja að skilnaði: ,,Svo vom
um vér að sjá yður bráðlega við skrif-
borð yðar, hr. Kostlín“.
Þegar Gerhard hafði fylgt honum
til dyra, og koni aftur inn í herbergi
sitt, þá varpaði kona hans sér í fang
honum og sagði grátglöð: „Þú sagð-
ir satt, Gerhard. Ráðvendnin er bezta
eignin, og náðugur guð stjórnar hög-
um okkar, þótt okkur stundum þyki
lífið dimmt og dapurlegt. Eg skal
aldrei oftar efast um náð guðs“.
CHERRY BLOSSOM
BOOT POLÍSH
In variouíi sizes — wi rb
easy opening aHacbmenl.
Ef þér viljið fá fyrsta
flokks jólasælgæti, þá
biðjið kaupmann yðar
um „VÍKINGS“ vörar.
SÆLGÆTISGERÐIN
„VÍKINGUR“.
Suðurgötu 3.
Sími 4928.
Verslunin Björn Kristjánsson
Jón, Björnsson & Co,,
Reykjavík.
Til jólanna:
Vefnaðarvörur
Rítfangadeíld V. B. K.
. CONKLINS lindarpennar, er
hafa 20 ára reynslu hjer á landi.
Brjefsefnakassar.
Teikniáhöld.
Kort.
Dreglar, pappírs.
Munndúkar, pappírs.
Skáktöfl.
Skákbretti.
Dominos.
Ludo.
- Ljósmyndabækur.