Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1995, Page 52
„Það hefði nú verið vel við hæfi,“ svara ég.
Hann tekur umslagið utan um farmiðann upp úr innri jakkavas-
anum og réttir mér til að ég geti skrifað heimilisfangið. Þegar ég læt
hann hafa umslagið aftur veiti ég því athygli í fyrsta sinn að hann er
ekki með neinn farangur með sér. Eg spyr hann hvort hann hafi
nokkuð gleymt gömlu fötunum sínum í Herradeild Andrésar en þá
verður hann kíminn á svip og segir þau ekki hafa verið upp á marga
fiska, hann hafi beðið afgreiðslukonuna um að henda þeim. Þó ekki
skónum, þeir séu ennþá brúklegir. Við kveðjumst og ég geng yfir
Klapparstíginn til að geta fylgst betur með hvort hann rati ekki
örugglega inn á Bíóbarinn. Hann staðnæmist við Kaffi List, leggur
andlitið að glugganum og gerir sig líklegan til að fara inn.
„Erlingur!“ hrópa ég. „Það er neðar!“
Hann veifar mér og brosir, eins og til merkis um að ég þurfí ekki
að hafa áhyggjur. Síðan heldur hann áfram niður eftir götunni og ég
sé að hann stoppar ekki við dyrnar að Bíóbamum heldur gengur út á
Hverfisgötuna og horfír upp eftir framhlið flutningabflsins á hominu.
Ég tek eftir að það er rautt ljós í gangbrautarvitanum og til að geta
fylgst betur með Erlingi, geng ég nokkra metra neðar í götuna. Ég er
kominn að Hárgreiðslustofunni á Klapparstíg þegar ég heyri bíl
bremsa harkalega á Hverfísgötunni, og í kjölfarið hátt og óþægilegt
hljóð sem ég þarf ekki að spyrja mig hvers kyns er. Ég hleyp eins
hratt og ég get niður að Bíóbar og þaðan að flutningabflnum. Bfllinn
sem bremsaði hefur fengið annan bfl aftan á sig og ég sé að nokkrir
vegfarendur standa í hnapp lengra úti á götunni. Báðir bílamir eru
opnir bflstjóramegin.
„Elín! Farðu þama inn og hringdu á sjúkrabfl!“ er kallað, og ung
stúlka hendist inn á Bíóbar. Ég smokra mér inn á milli fólksins á
götunni og sé Erling liggja hreyfingarlausan á grúfu með andlitið
lífvana í malbikinu.
„Veit einhver hver þetta er?“ heyri ég sagt, og það hljómar líkt og
maðurinn sem liggur í götunni sé eitthvað frábrugðinn öðru fólki.
. Ég forða mér upp á gangstétt og þaðan upp tröppurnar inn á bar-
50