Ljóðormur - 01.06.1989, Side 48

Ljóðormur - 01.06.1989, Side 48
46 T. S. Eliot þeitrar meginspumingar hvert sé hið sérstaka hlutverk ljóð- listar. Eg vil greina milli almenns og sérhæfðs hlutverks svo að ljóst sé hvað ekki er til umræðu hér. Skáldskapur kann að hafa markvissan, vísvitaðan félagslegan tilgang. I hinum frumstæðari formum hans er þessi tilgangur oft augljós. Til em, svo að dæmi séu nefnd, fornar rúnir og sönglandi sem gjaman höfðu mjög hagnýtan töffa-tilgang — að beina burt hinu illa auga, að lækna sjúkdóm eða að blíðka illan anda. Ljóð em snemma á tímum notuð í trúarlegu ritúali og þegar sálmar era sungnir er enn verið að nota skáldskap í tiltekn- um félagslegum tilgangi. Hin fornu form söguljóða og hetjusagna kunna að hafa miðlað því sem trúað var að væri sannsögulegt efni áður en þessar greinar urðu að því formi hópskemmtunar sem þær hafa varðveist í. Og áður en ritöld hófst hlýtur reglubundið kvæðaform að hafa verið afar mik- ilvægt fyrir minni fólks — og minni hinna fornu söngvaskálda, sagnaþula og lærðra manna hlýtur að hafa verið gífurlegt. I hinum þróaðri samfélögum, svo sem Grikklandi hinu foma, era viðurkennd félagsleg hlutverk skáldskapar einnig mjög áberandi. Grísk leiklist þróast upp úr helgisiðum og er áfram við lýði sem opinber atnöfn, tengd hefðbundnum trúarlegum hátíðahöldum. Pindarískur lofsöngur þróast í sambandi við sérstakt félagslegt tilefni. Þessi tilteknu not af kveðskap urðu áreiðanlega forsenda þess að fulikomnun náðist á vissum sviðum Ijóðlistar. I nútímalegri ljóðagerð era sum þessara forma enn til, s.s. sálmamir sem nefndir vora. Merking hugtaksinsýrav3.s7«/;<5<3 („didactic poetry“) hefur tekið nokkrum breytingum. Það getur falið í sér merkinguna að „flytja upplýsingar“ og einnig getur það þýtt „siðferðileg tilsögn“ eða það getur náð yfir þetta hvorttveggja. Fræðslukvæðið Georgica eftir Virgil er t.d. mjög fallegur skáldskapur og í því era ýmsar hollar ábendingar um farsælan landbúnað. En nú á dögum virðist ekki vinnandi vegur að rita bók sem væri eftir kröfum tím- ans um landbúnað og yrði jafnframt góður skáldskapur: í fyrsta lagi er efnið sjálft orðið miklu flóknara og vísinda- legra en áður var, og í öðru lagi er hægt að gera því greiðari skil í lausu máli. Ekki munum við heldur bregða á það ráð Rómverja að semja stjarnfræðilegar og heimsfræðilegar rit- smíðar í bundnu máli. Sýndaitilgangur ljóðsins er að koma fræðslu á framfæri en prósinn hefur tekið við því verkefni. Fræðslukveðskapur hefur smám saman takmarkast við sið- ferðileg áminningai-ljóð eða kvæði sem leitast við að sann-

x

Ljóðormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.