Ljóðormur - 01.06.1989, Side 60

Ljóðormur - 01.06.1989, Side 60
58 Þórður Helgason fuglasaungnum morgungolunni sólargeislanum Þannig snýst það sem gott var talið og gilt upp í andstæðu sína og verður ógn ógnanna af því að hún svíkst aftan að okkur búin fegurstu klæðum. I slíkum heimi er gleðin eins konar glópska, skynvilla eða upplogin bjartsýni: „hvílík: glópska / ætla fuglasaunginn / óp gleðinnai' vorsins / ástar- innar // sennilega / aðeins örvæntíngai'óp // er þá ekki fjarri sanni I Itrekað sýnir höfundurinn okkur manninn gjama þrúgað- an einsemd, verklausan, rúinn þreki til baráttu fyrir lífi sínu, nánast lamaðan, enda um veg að fara þar sem fáir vitar lýsa leið. Ljóðið í dimtnum skógi lýsir draumi manns sem „í dimmum skógi / unir sér best / við fullvissuna ...“ I lokalín- unni „er þó einginn ræktunannaðuri* kiistallast aðgerðai- leysið eða uppgjöfin. Fremur en aðrar aðgerðir velur maðurinn flóttaleiðir sem einlægt reynast haldlitlar. Nóttin með myrkri sínu og minn- ingaslitrum verður stundum haldreipið, en dögunin gerir það lítils virði: „þá sest að honum / dagurinn og gleymskan / með hlátrasköllum / og fánýtum harmleikjum“. Fyrsta ljóð bókarinnar undir kúplinum afneitai' í rauninni hlutverki fortíðaiánnar sem „streitist við að lifna tyllidaga / vaipa af sér hulu ryksins / og hverfa inní rykskýið“. Þannig sýnir höfundur okkur manninn dæmdan til til- gangslausrar ferðai', hér og nú, fortíðar- og framtíðailausan, til óviss leiðarenda, hjálpai'vana og þróttlausan, allar flótta- leiðir haldlausai'. Ljóðið fylgd lýsir ferð manns um nótt. Hann veit að „ein- hveri1 hefur slegist í för með honum en gerii' sér jafnframt grein fyrir að sá förunautur mun seint kynna sig: einhver á ferð ekki jólasveinninn álfakóngurinn sér hvergi í hvítan blett í hnakka í stutta ljóðinu sátt gerir höfundur grein fyrir heimsmynd

x

Ljóðormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.