Ljóðormur - 01.06.1989, Page 62
60 Þórður Helgason
þróast til meiri hnitmiðunai', kraftmeiri tjáningar og vand-
aðra myndmáls sem oft leynir á sér og færir lesandann undir
yfirborðið, á dýpri mið.
Kver sem er
Eftir Bjöm Þorsteinsson
Útg. höfundar 1989.
Nýlega leit dagsins ljós ljóðabókin Kver sem er eftir ungan
höfund, Bjöm Þorsteinsson, sem Ieitar nú fyrsta sinni hljóm-
grunns með ljóðum sínum.
I Kver sem er gengur höfundurinn á hólm við tilveru sína
sem hann fínnur margt til foráttu. Gjama takast á í ljóðum
hans vonin og vonleysið. Vonin er þá fólgin í ýmsum já-
kvæðum gildum lífsins, tilveru sem býður upp á frið, ást,
samhygð — eitthvert ijós sem lýsir í svarmættinu. Þessi
lífsöfl fara enga siguiför í ljóðum höfundar. Sigurvegararnir
em myrkrið og tómið, einmanaleikinn og eyðingin. Þar sem
bólar á von er hún vart í augsýn.
I samræmi við þetta er maðurinn oft sýndur á einmana-
legri göngu, reikandi, í leit einhvers sem réttlætir tilveruna,
starandi eftir jákvæðum merkjum, bíðandi eftir lífsmarki:
„Raunamædd og brostin / stara augu mín útí þykkt svart-
nættið,“ segii' í Sársauka sannleikans (13) og „Einmana
reikar maðurinn / um auðnina,“ staðhæfir höfundur í Stíl-
fcerðum sannindum um lífið (24).
Þannig er lífssýn ljóðanna heldur dökk eins og við höfum
lengi vanist í ljóðum ungra höfunda á þessari öld. Gallinn er
sá að Bjöm glímir enn sem komið er ekki á sannfærandi hátt
við dýpstu rök tilverunnar. Til þess skortir hann að því er ég
best fæ séð enn reynslu, mehi æfingu og ögun. Reyndari
höfundar, eins og Steinn Steinair, sem Björn hefur maigt
sótt til, hafa meitlað þessa heimspeki með þeim hætti að
varasamt er að fara í sömu spor.
Sumum þykir það heldur óviðfelldið er gagnrýnendur seil-
ast til skáldanna, setja þau á kné sér og fara að leggja þeim
lífsreglurnar: „Svona áttu ekki að gera, heldur svona.“ —
Eg ætla samt sem áður að láta þessa kennslu eftir mér. Björn
skemmir nefnilega oft fyrir sér með því að sniðganga gmnd-
vallarreglur sem öllum skáldum er nauðsynlegt að gera að
sínum.
Stundum ber á því að höfundur verði langorðaii en hollt er