Fréttablaðið - 10.09.2016, Qupperneq 20
Ég er einmitt í göngum núna. Ég fer bara hingað upp á hól svo ég sjái yfir,“ sagði Jóhannes H. Ríkharðsson, bóndi á Brúnastöðum í
Fljótum, þegar Fréttablaðið náði
tali af honum. Samkvæmt talningu
Bændablaðsins verða sextíu réttir
haldnar um land allt um helgina,
35 í dag, laugardag, og 25 á morgun,
sunnudag.
Það getur verið nokkrum vand-
kvæðum bundið að smala snemma
árs í jafn hlýju veðri og verið hefur
undanfarið um land allt. Ástæðan
er sú að kindurnar vilja síður koma
niður af fjallinu þegar vel viðrar.
Þegar kólnar í veðri færa þær sig
hægt og rólega niður fjallið og eru
þá nær réttinni. „Þær eru alveg
lausar við að vilja koma heim. Mér
sýnist þær vera lengst uppi á eggjum
í grjóti einhvers staðar. Þær hafa
engan áhuga á því að koma heim
strax,“ segir Jóhannes.
Í Fljótum er alltaf smalað aðra
helgina í september. „Við erum að
smala þrjár eða fjórar helgar í röð svo
við komumst þokkalega yfir það sem
við erum að gera. Svo þarf að koma
lömbunum í slátrun sem er orðið
mjög skipulagt þannig að það eru
ekki margir dagar í boði.“
Í lok smalatíðar er svo venjan að slá
upp heljarinnar réttaballi. Í Fljótum
fer ballið fram í félagsheimilinu Ket-
ilási. „Það er eins mikið stuð og það
getur orðið. Við réttum núna þrjá
daga í röð og svo er aðalréttin okkar
við hliðina á félagsheimilinu þannig
að það er stutt á ballið. Það mega allir
koma á ballið en það er mest stuðið í
þeim sem hafa verið lengst í göngum
og eru orðnir þreyttastir. Þeir verða
að halda sér á dansgólfinu því annars
sofna þeir bara.“ Á réttarballinu koma
allir aldurshópar saman. Jóhannes
má ekki vera að því að spjalla lengur
því hann á fullt í fangi með ærnar.
„Þær eru að gera árás á mig.“
Upplýsingar um réttir landsins um
helgina má nálgast á vef Bændasam-
takanna, bbl.is. Í mörgum þeirra eru
gestir velkomnir að aðstoða en best
er að hringja á undan sér.
snaeros@frettabladid.is
Réttir að hefjast
um land allt
Sextíu réttir fara fram um land allt um helgina og búast má við því
að hundruð Íslendinga og forvitnir ferðamenn geri sér ferð út á land
til að draga í dilka, hlaupa uppi óþekkt fé og uppskera ærlega.
Sextíu réttir fara fram um helgina um allt land. Í mörgum þeirra er áhugasömum velkomið að koma og hjálpa til við að draga í dilka. Fréttablaðið/Valli
Jóhannes H. ragnarsson, bóndi á brúnastöðum í Fljótum.
Það mega allir koma á
ballið en Það er mest
stuðið í Þeim sem hafa
verið lengst í göngum.
Nánari upplýsingar: leiga@festi.is
Verslunar- og
skrifstofuhúsnæði til leigu
REYKJAVÍKURVEGUR
HAFNARFJÖRÐUR
SKEMMUVEGUR KÓPAVOGUR
DALBRAUT AKRANES
GOÐAHRAUN VESTMANNEYJAR
FLETTISKILTI BÍLDSHÖFÐA 20
Til leigu um 1.100m² atvinnuhúsnæði á mjög
sýnilegum stað í Hafnarfirði við Reykjavíkurveg.
Mjög góð aðkoma er að húsnæðinu og
gengið er beint inn af stóru bílastæði. Húsið er
atvinnuhúsnæði á jarðhæð en íbúðir á efri hæðum.
Laust í ágúst 2016.
Til leigu um 430m² skrifstofuhúsnæði/lager á jarðhæð
á Skemmuvegi í Kópavogi. Góð aðstaða fyrir 20-30
starfsmenn í opnu rými, fjórar lokaðar skrifstofur
eða fundarherbergi, möguleiki á að nýta bæði sem
skrifstofur og lager. Skrifborð og stólar á staðnum.
Eldhús og salernisaðstaða með sturtu. Hér er hægt að
hefja rekstur strax.
Til leigu um 360 m² verslunar- eða veitingahúsnæði á
góðum stað á Dalbraut á Akranesi. Mjög góð aðkoma
er að húsnæðinu og gengið er beint inn af stóru
bílastæði. Í verslunarkjarnanum er m.a. Krónan,
Penninn Eymundsson, Tryggingarmiðstöðin, Subway,
snyrtistofa, blómabúð, bókasafn, tónlistarskóli og
Íslandsbanki. Hér er hægt að hefja rekstur strax.
Til leigu um 360 m² atvinnuhúsnæði á góðum stað við
Goðahraun í Vestmanneyjum. Mjög góð aðkoma er
að húsnæðinu, gengið er beint inn af stóru bílastæði.
Hér er hægt að hefja rekstur strax.
Laust auglýsingasvæði á flettiskilti á einum
besta stað í borginni.
1 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r20 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
helgin
1
0
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
7
-C
3
4
0
1
A
8
7
-C
2
0
4
1
A
8
7
-C
0
C
8
1
A
8
7
-B
F
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
9
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K