Fréttablaðið - 10.09.2016, Síða 32
Æfir í Mjölni
Hrefna Sætran: Ég æfi í Mjölni
með þjálfara sem heitir Gerða og
er snillingur. Þar sem ég er svo
lágvaxin passar mér illa að æfa
í tækjasal og því er Mjölnir minn
staður. Þar nota ég eigin líkams-
þyngd, ketilbjöllur, sippuband,
kaðla og fleira skemmtilegt. Mark-
miðið er að komast í handahlaup
en það hef ég aldrei gert á ævinni.
Einnig kíki ég í Goðaafl, Kick-
box og Víkingaþrekið þar inn á
milli. Ég er líka með klippikort
í Sólum þar sem ég fer í jóga og
jóga nidra sem er svefnjóga. Ég
geri líka jóga nidra heima fyrir
en finnst eiginlega betra að fara
út úr húsi til að æfa.
Ég fór í sjósund um daginn og
var í 20 mínútur ofan í sjónum.
Mig langar til að prófa það oftar
í vetur en ég fann strax hvað það
gerir manni gott. Svo er líka svo
hollt að fara út fyrir þæginda-
rammann því það heldur manni
við efnið.
Sartverji
Þórdís lóa Þórhallsdóttir: Ég er
Spartverji og æfi Metabolic í
Spörtu heilsurækt. Öll hreyfing
mín gengur út á heilbrigði og
að vera í góðu formi svo ég geti
stundað áhugamálin mín, s.s.
veiðar, skíði, ferðalög, göngur og
aðra útivist.
Undanfarið hef ég verið að
undirbúa mig fyrir hreindýra-
veiðar í september þannig að ég
hef verið að ganga ásamt því að
koma mér aftur af stað í Metabo-
lic eftir sumarið.
Í vetur langar mig einnig að
bæta við jóga. Það er mikil vinna
fram undan og mikilvægt fyrir
mig að hreyfa mig mikið því þá
eykst orkan mín og fókus.
Auk þess að hreyfa mig mikið
borða ég hollan og góðan mat
og sem minnst unninn. Ég veiði
mikið og rækta allt grænmeti
sjálf þannig að maturinn minn er
„slow food“ matur. Fram undan
er spennandi tími þar sem við
vinnum „gourmet“ mat úr því
sem við veiðum, t.d. silungi, laxi,
gæs, rjúpu og hreindýri.
landvÆttur
lukka Pálsdóttir: Um jólaleytið í
fyrra datt ég inn í einn skemmti-
legasta heilsuræktarhóp sem
ég hef kynnst. Þetta var hópur
fólks sem setti sér það markmið
að verða Landvættir og stundaði
skíðagöngu, hjólreiðar, náttúru-
hlaup og vatnasund saman undir
styrkri handleiðslu Ferðafélags Ís-
lands. Ég fór því vel út fyrir minn
þægindaramma og öðlaðist nafn-
bótina Landvættur í sumar. Þessi
ástundun og félagsskapur gaf mér
mikið og nú er markmið mitt að
gera þetta allt saman aftur og bæta
alla tímana mína. Það er fátt meira
nærandi en holl hreyfing í íslenskri
náttúru með gefandi fólki.
Hollt mataræði skiptir auðvit-
að miklu máli en í mínum huga
snýst það ekki um nýjasta tísku-
kúrinn eða ofurfæðu. Ég er hand-
viss um að því minna unnin sem
fæðan er, því hollari er hún, og
við getum borðað úr öllum fæðu-
flokkum ef við veljum hreint hrá-
efni og óunnið.
Trendið í vetur verður klárlega
út með sykur, inn með holla fitu og
mat sem nærir góða bakteríuflóru.
Við verðum að fara að opna augun
fyrir því að við getum ekki valið
bæði: mikinn sykur og góða heilsu.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Sviti og Púl fraM undan
Nú er sá árstími runninn upp þegar flestir landsmenn fara að huga að hreyfingu og líkamsrækt yfir veturinn. Fólk tekur
sér ýmislegt fyrir hendur í þeim efnum eins og sjá má. Sumir velja kraftlyftingar en aðrir skíðagöngu eða jóga.
Þar sem ég er
lágvaxin passar
mér illa að æfa í tækjasal
og því er Mjölnir minn
staður. Þar nota ég eigin
líkamsþyngd, ketilbjöllur,
sippuband, kaðla og fleira
skemmtilegt.”
Hrefna Sætran
Ég fór vel út fyrir
þægindarammann
og öðlaðist nafnbótina
Landvættur í sumar. Þessi
ástundun og félagsskapur
gaf mér mikið og nú er
markmiðið að gera þetta
allt saman aftur og bæta
alla tímana mína.”
Lukka Pálsdóttir.
Öll hreyfing mín
gengur út á heil-
brigði og að vera í góðu
formi svo ég geti stundað
áhugamálin mín eins og
veiðar, skíði, ferðalög,
göngur og aðra útivist.”
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Íslendingar vita að krækiber eru
sérlega holl og góð. Enn er hægt að
tína þau en berin vaxa um allt land.
Berin vaxa í köldu loftslagi og finn-
ast víða á Norðurlöndum. Kræki-
berin eru stútfull af andoxunarefn-
um, þau eru járn- og trefjarík, inni-
halda C- og E-vítamín. Þess utan
eru þau vatnslosandi.
Fyrir fólk sem er úti í náttúrunni
í göngum eru berin ákaflega góð til
að slökkva þorsta. Þau eru vatns-
mikil. Berin geymast í tvær vikur í
ísskáp og þau má nota í bakstur, í
sósur eða marineringar, í þeytinga,
út á hafragraut, jógúrt eða skyr.
Talið er að krækiber hafi mjög góð
áhrif á meltinguna.
Svo er gaman að eiga kræki-
berjavín um jólin.
Krækiberjavín
1,5 kg krækiber
1 flaska vodka
1,2 kg sykur
7 dl vatn
Setjið berin í smávegis vatn og látið
standa yfir nótt. Þá er vodkanu
hellt yfir berin og látið standa aðra
nótt. Þá er soðið sigtað í gegnum
bleiugas.
Sjóðið 7 dl af vatni með sykri í
fimm mínútur. Látið kólna.
Þá er vodka- og berjasaftin sett
saman við sykurvatnið. Þetta ætti
að gefa um 3 lítra. Geymið í að
minnsta kosti sex vikur áður en
drykkurinn er borinn fram.
HeiMagert KrÆKiberjavín
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 14-28
STÆRÐIR 14-28 EÐA 42-56
Fákafeni 9, 108 RVK
Sími 581-1552 | www.curvy.is
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ EÐA PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS
Afgreiðslutímar í verslun okkar að Fákafeni 9
Alla virka daga frá kl.11-18
Laugardaga frá kl. 11-16
1 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r4 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n
1
0
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
7
-A
A
9
0
1
A
8
7
-A
9
5
4
1
A
8
7
-A
8
1
8
1
A
8
7
-A
6
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
9
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K