Fréttablaðið - 10.09.2016, Blaðsíða 34
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Fyrir þremur árum þurfti tón-
listarmaðurinn Jón Hilmar Kára-
son hugmynd fyrir hádegistón-
leika sem hann ætlaði að halda.
„Ég settist því niður og af þess-
um fundi með sjálfum mér
þá fæddist hugmyndin um
BLIND verkefnið,“ útskýrir
Jón Hilmar. Á BLIND tón-
leikum upplifa gestir tón-
list, sögur, hljóð og ýmislegt
fleira með bundið fyrir
augun. Sagnaþulan
Berglind Ósk, gít-
arleikarinn Jón
Hilmar og hljóð-
listamaðurinn Guð-
jón Birgir fara með
þá í sérstakt ferða-
lag. Þessi nálgun
gefur listamönnunum
óteljandi tækifæri á að
koma gestum á óvart.
BLIND tónleikarnir
eru partur af Innrás
úr Austri sem fram
fer í Hörpu í kvöld.
Á s a mt B L I N D
munu hljómsveitirn-
ar FURA, VAX og
DÚTL koma fram
en öll þessi atriði
eiga rætur að rekja
til Austurlands.
Tónleikarnir
verða fjölbreytt-
ir þar sem gest-
ir fá að upplifa
ævin týraheim
BLIND, gítar-
bræðing frá
DÚTLI, rokk
og ról frá
VA X I o g
elektróníska tóna með vídeólista-
verkum frá FURU.
SérStök upplifun
„Við höfum fengið mismunandi
listamenn til að spila á BLIND
tónleikunum. Í rauninni upplifir
bæði gesturinn og tónlistarmað-
urinn tónleikana á allt annan hátt
en venjulega tónleika. Þegar bund-
ið er fyrir augun þá er ekkert
að trufla hlustunina, augun
eru ekki að teyma hugann
neitt annað og upplifunin verð-
ur mjög sérstök. Við dæmum
svo mikið með augunum en
allir fordómar hverfa
á BLIND. Við höfum
spilað á kaktus og allir
hlusta. Við höfum spil-
að á saumavél og eng-
inn hlær,“ segir Jón
Hilmar.
Engar myndir
Hann segir gesti tónleik-
anna eiga von á bæði góðri
skemmtun og því að verða
svolítið hissa í kvöld.
„Þetta verður að hluta til
svolítil óvissuferð og fólk
þarf að treysta okkur.
Þetta er spurning um
traust þegar fólk sest
niður með fullt af öðru
ókunnugu fólki og ætlar
að binda fyrir augun á
sér og ekki sjá neitt
í tuttugu mínútur.
Það getur verið óþægilegt ef það
nær ekki að treysta mér, ef ég
næ ekki að segja eitthvað fallegt
við það þannig að það treysti því
að það sé öruggt á tónleikunum.
Ég byrja því tónleikana með smá
tölu og fæ gesti á mitt band. Þegar
við höfum sýnt fyrir útlendinga
þá hafa þeir margir verið óróleg-
ir en yfirleitt nær fólk að slaka á
og njóta. En það þarf að treysta.“
Þess vegna hefur ekki verið leyft
að taka myndir á BLIND tónleik-
um. „Sennilega eru þetta einu tón-
leikarnir í heiminum þar sem eng-
inn hefur nokkurn tíma tekið upp
hljóð eða mynd á símann sinn. Við
höfum aldrei sýnt BLIND fyrir
fimm hundruð manns í einu eins
og von er á í kvöld og það verð-
ur spennandi að flytja tónleikana
fyrir svo marga.“
BlúS, fönk, rokk og ról
Auk BLIND tónleikanna munu
þrjár hljómsveitir koma fram í
kvöld. DÚTL sem leikur melód-
ískan blús og fönkskotna gítar-
tónlist og þar verður gítarleikar-
inn Jón Hilmar í broddi fylking-
ar, VAX sem leikur rokk og ról
af bestu gerð í anda sjöunda ára-
tugarins og hefur leikið víða um
heim og á flestum helstu rokk-
hátíðum landsins, eins og Aldr-
ei fór ég suður og Bræðslunni, og
hljómsveitin FURA sem er hljóm-
sveit Seyðfirðingsins Bjartar Sig-
finnsdóttur sem nýlega gaf út sína
fyrstu plötu sem ber nafn sveitar-
innar. FURA starfar í Danmörku
og hefur verið að spila á hátíðum
víða um heim. Með hljómsveitinni
koma vídeólistamennirnir Rasmus
Ottesen Stride og Hilmar Guðjóns-
son fram en annars skipa sveitina,
auk Bjartar, Emil Vissing og Tro-
els Holdt.
HluSta BEtur mEð
Bundið fyrir augu
Gestir Hörpu í kvöld eiga óvissuferð fyrir höndum þegar Innrásin úr
Austri fer þar fram. Þar verða áheyrendur með bundið fyrir augun
hluta af tónleikunum og hlusta líka á blús, rokk og elektróníska tónlist.
Jón Hilmar kemur líka
fram á tónleikunum
í kvöld með hljóm-
sveitinni DÚTL sem
leikur melódískan
blús og fönkskotna
gítartónlist.
Jón Hilmar hélt BLIND tónleika fyrir nemendur Landakotsskóla í gær. Í kvöld munu gestir Hörpu verða með bundið fyrir augun
á tónleikum hans. MYND/GVA
IÐNFYRIRTÆKI
TIL SÖLU
Rótgróið iðn- og þjónustufyrirtæki með 34 ára
sögu er nú til sölu.
Um er að ræða skerpingarverkstæði og rekstur
verslunar í Kópavogi. Fyrirtækið vinnur fyrir álver
og stærstu trésmíðaverkstæði landsins og hefur
leiðandi stöðu á sínu sviði. Góð vaxtartækifæri.
Rekstur fyrirtækisins er nú til sölu ásamt stórum
vélasal. Væntanleg ársvelta 2016 um 50 milljónir
króna. Hjá fyrirtækinu starfa tveir starfsmenn.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 840-3425.
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið
virka daga
kl. 11–18
laugardaga
kl. 11-15
2 skálmasnið
Gallabuxur á
11.900 kr
- stærð 34 - 52
- teygja í mitti
- engir vasar
- háar í mittið
- Snið slim
- 2 litir: dökk-
blátt, milliblátt
- Snið regular
- 3 litir:
dökkblátt,milli -
blátt, grátt
Skyrta á
8.900 kr.
1 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r6 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n
1
0
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
7
-F
4
A
0
1
A
8
7
-F
3
6
4
1
A
8
7
-F
2
2
8
1
A
8
7
-F
0
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
9
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K