Fréttablaðið - 10.09.2016, Side 73
Elskulegur eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Frímann Frímannsson
Brekatúni 30, Akureyri,
andaðist hinn 4. september
síðastliðinn í faðmi fjölskyldu sinnar á
hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð. Útförin
fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 16. september
klukkan 13.30.
Sigríður Guðrún Árnadóttir
Ásdís Frímannsdóttir Marc Carlson
Frímann Frímannsson Ester Sigurðardóttir
Soffía Frímannsdóttir Elías Kristjánsson
Harpa Frímannsdóttir Davíð Scheving
Hulda Frímannsdóttir Skúli Eyjólfsson
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður,
sonar og afa,
Axels E. Sigurðssonar
Alúðarþakkir til allra þeirra er stutt
hafa okkur með minningargjöfum.
Guð blessi ykkur öll.
Laufey M. Jóhannesdóttir
Linda Rún Axelsdóttir
Hrafnhildur María Axelsd. Ledger Vincent Ledger
Sigurður Axel Axelsson Bryndís Þóra Gylfadóttir
Björn Torfi Axelsson Hafdís Mjöll Lárusdóttir
Sigurður Axelsson Hrafnhildur Kristinsdóttir
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Guðmunda Kr. Jónsdóttir
frá Vorsabæjarhóli, síðar til heimilis
að Grænumörk 5, Selfossi,
lést fimmtudaginn 8. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Svala H. Steingrímsdóttir
Helga Ívarsdóttir
Markús Kr. Ívarsson
Jón M. Ívarsson
Jason Ívarsson Hulda Sváfnisdóttir
Margrét Ó. Ívarsdóttir
Áslaug Ívarsdóttir Pálmi Vilhjálmsson
Ingibjörg Ívarsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
María Ingólfsdóttir
Kveldúlfsgötu 24, Borgarnesi,
andaðist miðvikudaginn 7. september
á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Akranesi.
Helga Ólöf Halldórsdóttir
Lilja Guðrún Halldórsdóttir Guðmundur Jónsson,
Garðar Halldórsson Guðlaug S. Guðlaugsd.
Ingólfur Halldórsson Rut Olsen,
Ólöf Halldórsdóttir Sveinn Guðnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir og afi,
Halldór Grétar Gunnarsson
Karlagötu 10, áður Austurgötu 43, Hf.,
lést á háskólasjúkrahúsi í Cordoba
á Spáni 15. ágúst sl. Útför hans fer fram
frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
13. sept. kl. 13.00.
Elías Halldórsson, Hekla Halldórsdóttir,
Samúel Halldórsson, Rósa Dögg Ómarsdóttir,
Ólöf, Jóhanna, Kristín, Halldóra og Gunnhildur
Gunnarsdætur,
Ólavía Rós, Emma, Villads, Sigríður Rós
Eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdasonur,
tengdafaðir og afi,
Magnús Þormar Hilmarsson
frá Siglufirði,
lést á líknardeild Landspítalans
4. september. Útför hans fer fram frá
Kópavogskirkju mánudaginn 12. september kl. 13.00.
Hafdís Arnardóttir,
Hrönn Magnúsardóttir, Magnea Magnúsardóttir,
Hörður Valgarðsson, Harpa Hrund Berndsen,
Sesselja Magnúsdóttir,
Máni Snær Hafdísarson,
tengdaforeldrar og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Margrétar Katrínar
Valdimarsdóttur
áður til heimilis að Ölduslóð 44,
Hafnarfirði,
sem lést 10. júlí sl. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun og hlýju í
veikindum hennar.
Steingrímur Guðjónsson Sigríður Inga Sævarsdóttir
Valdís Birna Guðjónsdóttir Einar Kristján Jónsson
Þórdís Guðjónsdóttir Sigurður Björgvinsson
Ólafía Sigríður Guðjónsdóttir Jón Auðunn Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hótel Örk í Hveragerði á 30 ára sögu
að baki og heldur afmælishátíð um
helgina. „Það hefur verið góður gangur
í rekstrinum síðustu ár en hótelið var
mikill pakki á sínum tíma,“ segir Jakob
Arnarson sem hefur verið hótelstjóri
Hótels Arkar í tólf ár. „Þetta er eina hót-
elið á Íslandi með eigin útisundlaug og
hér eru mikil salarkynni, húsið er 5.200
fermetrar að stærð en herbergin 85. Frá
því fyrsta skóflustunga var tekin og þar
til starfsemi var hafin í húsinu liðu bara
níu mánuðir. Hér var sannarlega byggt
af stórhug en meira af kappi en forsjá.“
Raunverulega átti byggingin að vera
1.500 fermetrar í byrjun en svo var enda-
laust byggt ofan á, að sögn Jakobs „Það
var ekkert vesen í þá daga, bara hringt
á bæjarskrifstofuna og spurt hvort það
væri ekki í lagi að bæta við hæð! Þetta
væri ekki hægt í dag. Bara það að fá leyfi
fyrir sundlaug er stórmál.“
Það var Helgi Þór Jónsson byggingar-
verktaki sem reisti Hótel Örk og rak það
í byrjun. Jakob segir hann fyrst bara
hafa ætlað að byggja veitingastað. „Svo
datt honum í hug að það væri kannski
snjallt að vera með svona 15 herbergi
líka en það endaði svona. Pælingin var
að þetta yrði heilsuhótel því Þjóðverjar
fóru mikið í heilsuferðalög á þessum
tíma. Hér störfuðu sjúkraþjálfarar og
læknar í byrjun þannig að ekki skorti
metnaðinn. Hins vegar var allt byggt á
víxlum og reksturinn var þungur framan
af.“
Haldið verður upp á 30 ára afmælið
með fjölskylduvænum hætti, fyrir utan
tilboð á gistingu og mat er opið hús milli
klukkan 15 og 17 í dag. Þar er boðið upp
á afmælisköku, ís fyrir krakkana, laser-
tag og Einar einstaki töframaður ætlar
að koma í heimsókn. „Þeir sem vilja geta
komið með golfkylfur því það er golf-
völlur hér við hliðina á hótelinu,“ bendir
Jakob á. „Örkin er eitt af fáum hótelum á
landinu sem státar af því.“
gun@frettabladid.is
Hótel Örk í Hveragerði
reis á níu mánuðum
Það var töfrum líkast hvernig Hótel Örk í Hveragerði spratt upp fyrir 30 árum. Afmælis-
tilboð eru um helgina og í dag er opið hús með ís, köku, leikjum og töfrabrögðum.
„Í tilefni afmælisins fórum við í miklar endurbætur á hótelinu, veitingastaðurinn var tekinn í gegn og móttakan endurnýjuð,“ segir Jakob.
Það var ekkert vesen í
þá daga, bara hringt á
bæjarskrifstofuna og spurt
hvort það væri ekki í lagi að
bæta við hæð!
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð 33L a U G a R D a G U R 1 0 . s e p t e m B e R 2 0 1 6
1
0
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
7
-E
A
C
0
1
A
8
7
-E
9
8
4
1
A
8
7
-E
8
4
8
1
A
8
7
-E
7
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
9
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K