Fréttablaðið - 21.11.2016, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 21.11.2016, Blaðsíða 13
s p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ð sport Sigurvegari Valgerður er hér brosmild enda verið að tilkynna henni um sigur í fyrsta bardaga hennar á ferlinum mynd/árni torfason Ég gat ekki hætt að brosa Valgerður Guðsteinsdóttir varð um helgina fyrsta íslenska konan til þess að keppa sem atvinnumaður í hnefaleikum. Atvinnumannsferill hennar fer vel af stað því hún var með mikla yfirburði í bardaganum. Hún ætlar sér stóra hluti eða sjálfan heimsmeistaratitilinn. Valgerður hefur æft hnefaleika í rúm sex ár. hneFALeikAr „Mér líður rosalega vel. Mjög sátt eftir góða uppskeru,“ segir Valgerður Guðsteinsdóttir himinlifandi er íþróttadeild heyrði í henni frá Svíþjóð í gær. Hún var þá enn í sjöunda himni eftir frábæra byrjun á atvinnumannsferli sínum. Hún mætti þá hinni sænsku Angelique Hernandez sem var að keppa sinn þriðja atvinnumanns­ bardaga. Hún hafði unnið einn bar­ daga og tapað einum. Annað tapið kom í Stokkhólmi á laugardag því hún átti aldrei möguleika gegn val­ kyrjunni frá Íslandi. mikill andlegur undirbúningur Það var ekki að sjá neitt stress á okkar konu sem tók strax völdin í bardaganum og kýldi Hernandez niður í fyrstu lotu. Yfirburðir Val­ gerðar héldu áfram út bardagann og hún vann yfirburðasigur á stigum. „Það er búinn að vera langur and­ legur undirbúningur og stífar æfing­ ar síðustu vikur. Þetta er ákveðinn léttir og mér líður vel að hafa upp­ skorið nákvæmlega eins og ég vildi,“ segir Valgerður en það var ekkert stress í henni í Stokkhólmi. „Mér leið mjög vel er ég labbaði inn í hringinn. Ég var ótrúlega glöð og gat ekki hætt að brosa. Ég var svo ánægð yfir því að þetta væri loksins að gerast. Það var smá jákvætt stress sem vann með mér,“ segir Valgerður og skellir upp úr er hún rifjar upp þessa eftirminnilega stund. „Allar loturnar gengu mjög vel og ég er yfir mig ánægð að hafa sýnt svona góða frammistöðu. Ég kýldi hana tvisvar niður. Það skipti mig engu máli hvort ég kláraði hana á stigum eða rothöggi. Það sem mér fannst skipta máli var að sýna góða frammistöðu.“ Eins og gefur að skilja var mikið spennufall eftir bardagann en hvernig hélt hún upp á sigurinn? „Við fórum út að borða. Ég fékk mér góða nautasteik og sósu. Það hefur verið lítið um sósur síðustu vikur. Svo var bara slakað á áður en ég sofnaði vel. Það var mjög gott.“ Elskar áskoranir Valgerður er 31 árs gömul og er búin að æfa hnefaleika síðan í lok ársins 2009. „Ég sá að þetta var íþrótt sem myndi henta mér vel. Þetta er spennandi og krefjandi íþrótt. Allt sem fær mig til að vaxa finnst mér heillandi. Ég reyni að taka áskorunum,“ segir Valgerður en hún spilaði fótbolta sem barn en svo ekkert þar til hún fór í hnefa­ leikana. Hún þreytti ellefu áhugamannabar­ daga á sex árum og það gekk vel hjá henni. Valgerður sá þá að hún hefði erindi í að fara lengra í íþróttinni. „Ég er búinn að hugsa alvarlega um þetta í tvö ár. Það krefst mikils undirbúnings ef maður vill gera þetta vel og þá er betra að bíða aðeins og vanda til verka. Ég er að æfa mjög mikið. Tvisvar og stundum þrisvar á dag. Ég reyni samt að æfa skipulega og skynsamlega. Ég er líka í tveimur störfum þannig að þetta tekur allan minn aukatíma,“ segir Valgerður sem er gift en barnlaus. Þau hjónin eru með hund sem Val­ gerður segist ætla að sinna vel er hún kemur heim. Eiginmaðurinn var með henni úti er hún keppti. „Hann er spenntur þegar ég keppi en hann veit alveg hvað ég get. Hann hefur því ekki miklar áhyggjur af mér í hringnum.“ Valgerður á sér stóra drauma og fer ekkert leynt með það. „Ég er búin að sýna mig og sanna og held að ég eigi að fá góðan bardaga næst. Ég ætla mér alla leið í þessu og það er heimsmeistaratitill. Ég á alveg góðan möguleika á því. Ég hef mikla trú á mér.“ henry@frettabladid.is hneFALeikAr Þungavigtarkappinn Kolbeinn Kristinsson er enn ósigr­ aður í átta bardögum. Kolbeinn mætti að þessu sinni Archil Gigolashvili og Georgíu­ maðurinn hafði ekkert að gera í hringinn gegn Garðbæingnum. Kolbeinn mun stærri og með lengri faðm. Kolbeinn nýtti sér stunguna vel til að halda Georgíumanninum frá sér og í annarri lotu kom Kol­ beinn þungu skrokkhöggi á Gigol­ ashvili sem felldi hann. Hann komst ekki á fætur fyrr en dómarinn hafði blásið bardagann af. Kolbeinn vann því á tæknilegu rothöggi. „Ég og þjálfararnir mínir vorum búnir að leggja upp það plan að vinna með vinstri stunguna og nýta hana til að stilla upp fyrir skrokk­ högg. Sú áætlun gekk óaðfinnanlega upp því strax í fyrsta skrokkhögginu fór hann á hné og lét telja sig úr bar­ daganum. Hann vildi greinilega ekki meira,“ sagði Kolbeinn. – hbg Enn og aftur rothögg Kolbeinn gengur inn í hringinn. Valgerður æfir 2-3 á dag. mynd/snorri björnsson 2 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 5 C -2 8 3 C 1 B 5 C -2 7 0 0 1 B 5 C -2 5 C 4 1 B 5 C -2 4 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.