Fréttablaðið - 01.12.2016, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 8 4 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 1 . d e s e M b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
Fréttir Helmingur þingmanna
fær tvöföld laun. 2
skoðun Þórunn Svein-
bjarnardóttir
spyr
hvort
það borgi
sig að fara í
háskóla. 26
sport
Hamskipti
Haukanna
í handbolt-
anum. 36
lÍFið Eyþór
snýr aftur í
Tappa tíkar-
rass. 68
FrÍtt
Glæsilegar
jólagjafir
klementínur 750g, Spánn
Grön Balance lífrænar
389 kr.pk.
stjórnMál Stjórnarmyndunarvið-
ræður Vinstri grænna og Sjálfstæðis-
flokks gætu strandað á viljaleysi
annarra flokka til að vera þriðja
hjól í samstarfinu. Reynt hefur verið
að reka fleyg á milli Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar, til að máta síðar-
nefnda flokkinn við þriggja flokka
stjórn sem næði frá vinstri til hægri,
en án nokkurs árangurs. Þingmenn
Bjartrar framtíðar meta stöðu sína
sterkari í samstarfi við Viðreisn.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að Vinstri græn leggi á það
áherslu að Samfylkingin komi inn
í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki.
Vinstriblokk stjórnarinnar hefði þá
þrettán þingmenn en Sjálfstæðis-
flokkur 21. Ekki komi til greina
að fá Pírata í stjórn af hálfu Sjálf-
stæðisflokks og ekki komi til greina
að Framsóknarflokkur verði þriðji
flokkur í stjórn, af hálfu Vinstri
grænna. Logi Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar, segist sjálfur
hafa heyrt að sá möguleiki hafi verið
ræddur.
„Staðreyndin er sú að það er
mjög langt á milli okkar og Sjálf-
stæðisflokksins í mjög mörgum
málum og ýmislegt á milli okkar og
Vinstri grænna í öðrum málum. Ég
ímynda mér í fljótu bragði að það
séu svo stór mál að þetta komi ekki
til greina.“
Í samtali við fréttastofu í gær
sagði Bjarni Benediktsson að hans
vonir stæðu til að hægt væri að
gera vopnahlé um ákveðin mál sem
ágreiningur er um.
„Og leggja til hliðar þau mál sem
flokkarnir, sem eiga að starfa með
honum, berjast fyrir? Ef það eru
stjórnar skráin, Evrópumálin og
sjávarútvegurinn þá segi ég bara nei,
við munum ekki gera vopnahlé um
slík mál,“ segir Logi.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að Viðreisn, Píratar, Samfylking og
Björt framtíð séu jafnvel tilbúin að
reyna aftur við fimm flokka stjórn.
Ákveðið hefur verið að þing komi
saman 6. desember næstkomandi,
óháð því hvort ný ríkisstjórn hafi
verið mynduð eða ekki. – snæ
Gæti verið erfitt að finna samstarfsflokk
Formaður Samfylkingarinnar segir að þrátt fyrir að flokkurinn sé í viðkvæmri stöðu komi ekki til greina að fórna málefnum sem hann
leggur mesta áherslu á. Reynt hefur verið að slíta samstarfi Viðreisnar og Bjartrar framtíðar án árangurs. Alþingi kemur saman 6. desember.
Bjarni Benediktsson ræddi við Steingrím J. Sigfússon, fyrrverandi formann VG, á leið sinni til fundar við Katrínu Jakobsdóttur, formann VG, í gær. Fréttablaðið/Eyþór
neytendaMál Brúnegg hefur selt
varphænur sínar sem vistvænar
unghænur. Þetta kemur fram í
umfjöllun Fréttablaðsins um fyrir-
tækið. Engu var slátrað frá fyrirtæk-
inu til manneldis árið 2015, þegar
afskipti Matvælastofnunar af rekstr-
inum voru sem mest, en á fimmta
þúsund fuglum á þessu ári.
Í umfjölluninni kemur líka fram
að nokkur fyrirtæki hafa þegið boð
forsvarsmanna Brúneggja um að
skoða aðstæður á búum fyrirtæk-
isins áður en þau taka endanlega
ákvörðun um að hætta viðskiptum
með öllu. – shá / sjá síðu 10
Seldu kjöt af
varphænum
Nokkur fyrirtæki hafa
þegið boð forsvarsmanna
Brúneggja um að skoða
aðstæður á búunum. plús sérblað l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
0
1
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
1
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
7
F
-4
6
3
0
1
B
7
F
-4
4
F
4
1
B
7
F
-4
3
B
8
1
B
7
F
-4
2
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K