Fréttablaðið - 01.12.2016, Page 10
Jóladagatal
Foscarini. Binic.
Borðlampi.
Verð: 35.000 kr.
Í dag: 21.000 kr.
01/12
Skipholt 37 / www.lumex.is
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga
idex.is - sími 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi
- þegar gæðin skipta máli
Landbúnaður Nokkur fyrirtæki hafa
þegið boð forsvarsmanna Brúneggja
um að skoða aðstæður á búum fyrir
tækisins áður en þau taka endanlega
ákvörðun um að hætta viðskiptum
við fyrirtækið með öllu. Hætti þeir
viðskiptum verður hluta af stofninum
slátrað. Brúnegg hefur selt varphænur
sínar sem vistvænar unghænur.
Engu var slátrað frá fyrirtækinu til
manneldis árið 2015, þegar afskipti
Matvælastofnunar af rekstrinum
voru sem mest, en á fimmta þúsund
fuglum á þessu ári.
Kristinn Gylfi Jónsson, einn eig
enda Brúneggja, segir það smá glætu
í tilverunni að viðskiptavinir ætli að
skoða aðstæður, í ljósi þess að allir
kaupendur að vörum þeirra hafa hætt
viðskiptum við fyrirtækið.
Spurður um hvort Brúnegg hafi
stóran lager af eggjum sem nú er
óseljanlegur, eða að framleiðsla fyrir
tækisins safnist einfaldlega fyrir á
næstu dögum og vikum, svarar Krist
inn því til að fyrirtækið hafi til þessa
ekki annað eftirspurn.
„Við eigum því engan lager og
þurfum engu að farga. Við þurfum
ekki heldur að taka afstöðu til þess á
næstu dögum hvort þarf að gera slíkt.
Slík vandamál eru ekki komin upp. Í
lengstu lög reynum við að komast hjá
því að farga afurðum frá okkur,“ segir
Kristinn en flestir eggjaframleiðendur
reyna að eiga einnar til tveggja vikna
lager. Hann bætir við að áform um að
taka nýtt hús fyrirtækisins í notkun á
næstu dögum hafi ekkert breyst. „Við
erum að leggja niður elsta hlutann
af búinu okkar á Teigi í þessari viku.
Við gerum það eins og sakir standa
núna en framtíðin verður að leiða í
ljós hvort það er rétt ákvörðun,“ segir
Kristinn en í nýja varphúsinu verða
4.000 til 4.500 fuglar.
Þegar spurt er um stöðuna þegar
fram líður, og ef ekki tekst að endur
nýja fyrri viðskiptasambönd, telur
Kristinn aðeins um eitt að ræða.
„Þá slátrum við úr stofninum hjá
okkur. Við erum með mjög stóran
stofn enda vorum við með 18 til
20% markaðshlutdeild. Þannig að
það er kannski fimmta hver hæna í
landinu,“ segir Kristinn en vill ekki
gefa nánari upplýsingar um varp
stofn Brúneggja, framleiðslutölur eða
hvernig staðið verður að slátrun komi
til slíkra aðgerða.
„Oft er hænum slátrað og viður
kenndar aðferðir eru til þess. Þær
eru seldar sem unghænur kannski,
við höfum gert það aðeins í gegnum
tíðina,“ segir Kristinn þó, sem greindi
frá því í viðtali við Bændablaðið í
september 2014 að eftir að þeirra
fuglar ljúka varptíma sínum „er þeim
slátrað og höfum við reynt að nýta allt
kjöt sem til fellur. Við höfum slátrað
þeim hjá Ísfugli og selt sem vistvænar
unghænur. Það er fugl sem er ekki eld
aður eins og venjulegur kjúklingur,
hann þarf mun meiri eldun og er til að
mynda vinsæll í austurlenska matar
gerð.“ svavar@frettabladid.is
Kjötið selt sem vistvænar unghænur
Fyrirtækið Brúnegg markaðssetti kjöt af varphænum sínum sem vistvænar unghænur áður en úrbætur voru gerðar. Fyrirtækið á engin
egg á lager sem þarf að farga. Hluta af varpstofni Brúneggja verður slátrað ef ekki tekst að koma viðskiptasamböndum á að nýju.
Eftir að varphænur hafa lokið hlutverki sínu er þeim slátrað til manneldis. Brúnegg seldi sínar hænur sem vistvænar unghænur.
FréttaBlaðið/anton Brink
Oft er hænum
slátrað og viður-
kenndar aðferðir eru til þess.
Þær eru seldar sem unghænur
kannski, við höfum gert það
aðeins í gegnum
tíðina.
Kristinn Gylfi Jóns-
son, einn eigandi
Brúneggja
3.800
tonn af eggjum voru fram-
leidd á Íslandi í fyrra (áætlun
Hagstofu Íslands).
20%
markaðshlutdeild hafði
Brún egg – og framleiddi því
um 750 tonn.
Hafa ekki eftirlit með aflífun alifugla
Landbúnaður Sigurborg Daða
dóttir, yfirdýralæknir hjá Matvæla
stofnun, segir að skýrt sé kveðið
á um í lögum hvað er leyfilegt og
hvað ekki við aflífun dýra. Við hefð
bundna aflífun á búum sé notast
við koltvísýring og síðan eru hræin
urðuð. „Við höfum ekki haft sér
stakt eftirlit með aflífun á þessum
alifuglabúum,“ segir Sigurborg en
ekki er uppi grunur um að framleið
endur hafi verið að stytta sér leið
með aflífun fuglanna. Um mannúð
lega aðferð er að ræða, enda væri
hún ekki annars leyfð – fuglarnir
sofna fljótt af gasinu í þar til gerðum
tunnum eða körum.
Á hefðbundnu eggjabúi fara fugl
arnir í varphúsin í kringum 18 til 19
vikna aldur, og byrja að verpa á 23.
viku. Hver fugl er síðan í varpi í 12
til 16 mánuði. Að þeim tíma liðnum
hefur fuglinn skilað sínu.
„Ef þeim er slátrað þá eru fugl
arnir sendir í slátrun eins og hver
önnur dýr. Ef ekki er þeim fargað
með þeim hætti sem ég lýsti,“ segir
Sigurborg sem segir að ekkert af
þeim fugli sem Matvælastofnun
hafði afskipti af hjá Brúneggjum
hafi verið slátrað til manneldis.
„Það var ekki um það að ræða.
Mér er hins vegar kunnugt um að á
þessu ári, 2016, hefur 4.500 hænum
verið slátrað hjá Brúneggjum sem
þeir hafa dreift undir sínum merkj
um, enda staðan allt önnur á búinu
núna. Árið 2015 var engu slátrað
eftir því sem ég best veit, en ég get
ekki dæmt um hvort það hafi verið
vegna afskipta okkar. En í öllu falli
var engu slátrað það ár,“ segir Sigur
borg. – shá
Ef þeim er slátrað þá
eru fuglarnir sendir
í slátrun eins og hver önnur
dýr. Ef ekki er
þeim fargað.
Sigurborg Daða-
dóttir, yfirdýra-
læknir hjá Mat-
vælastofnun
neytendamáL Það sem blasir við
eftir að Kastljós fjallaði um Brún
eggjamálið á mánudag er að réttur
framleiðandans á Íslandi er mun
hærra skrifaður en neytandans. Það
er ámælisvert og þarf leiðréttingar
við. Það er vakning í neytendamál
um í samfélaginu og með tilkomu
samfélagsmiðla eru allir á vaktinni
– nokkuð sem þeir sem selja vöru og
þjónustu ættu að taka tillit til.
Þetta er mat Ólafs Arnarsonar,
formanns Neytendasamtakanna.
Hann segir það vonbrigði hvað staða
íslenskra neytenda er veik. Í því ljósi
hafi verið sláandi að sjá sitjandi land
búnaðarráðherra, Gunnar Braga
Sveinsson, segja í viðtali við Kastljós
á þriðjudagskvöld að hann vissi ekki
hver af samráðherrum hans færi með
neytendamál [Ólöf Nordal innan
ríkisráðherra fer með neytendamál].
Eins rifjar Ólafur upp orð forsætisráð
herra, Sigurðar Inga Jónssonar, þegar
reglugerð um vistvæna framleiðslu
var afnumin, að ekkert væri því til
fyrirstöðu að framleiðendur notuðu
merkingar um vistvæna framleiðslu
áfram.
„Gunnar Bragi, maðurinn sem
ber ábyrgð á búvörusamningunum
meðal annars, vissi þetta ekki. Þetta
segir okkur bara nákvæmlega hversu
hátt neytendamálin eru skrifuð hjá
núverandi stjórnvöldum. Þau virðast
skipta litlu sem engu máli í þeirra
augum,“ segir Ólafur.
„Birtingarmyndin er sú að réttur
framleiðandans er mikill og ríkulegur
en réttur neytandans er settur til hlið
ar. Þetta stendur upp úr,“ segir Ólafur
sem útilokar ekki hugmyndir Andr
ésar Magnússonar, framkvæmda
stjóra Samtaka verslunar og þjónustu,
um einkavæðingu eftirlitskerfisins –
aðspurður um lausnir.
„Maður veltir því fyrir sér, þegar
maður sér þetta, hvort við erum að
fá þá eftirlitsþjónustu sem við eigum
skilið. Ég held ekki og þetta komi
því til greina,“ segir Ólafur sem í dag
hittir Jón Gíslason, forstjóra Matvæla
stofnunar, að máli í leit að skýringum
á Brúneggjamálinu og öðrum álita
málum sem það hefur vakið upp.
„Það sem hefur breyst er að allir
eru á vaktinni. Neytendamál eru í
deiglunni – ekki síst vegna tilkomu
samfélagsmiðla. Viðbrögð neytenda
við þessu máli eru eitthvað sem þeir
sem bjóða sína vöru og þjónustu ættu
að hafa hugfast,“ segir Ólafur. – shá
Réttur framleiðandans í fyrirrúmi
Viðbrögð neytenda
við þessu máli eru
eitthvað sem þeir sem bjóða
sína vöru og þjónustu ættu
að hafa hugfast.
Ólafur Arnarson,
formaður Neyt-
endasamtakanna
Brúnegg eru ekki lengur í sölu.
FréttaBlaðið/anton Brink
1 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F I m m t u d a G u r10 F r é t t I r ∙ F r é t t a b L a ð I ð
0
1
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
F
-8
1
7
0
1
B
7
F
-8
0
3
4
1
B
7
F
-7
E
F
8
1
B
7
F
-7
D
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K