Fréttablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 26
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Nútímasamfélög krefjast háskólamenntunar á öllum sviðum enda er hún forsenda almennra efnahagslegra og félagslegra framfara. Þar með
er ekki sagt að öll störf krefjist háskólamenntunar en
flestir viðurkenna að hún er grunnstoð góðra lífskjara og
velferðar hér á landi. Með þetta í huga er dapurlegt að
horfast í augu við hversu lítill efnahagslegur ávinningur
háskólamenntunar er á Íslandi. Tekjuaukning sem rekja
má til háskólamenntunar er til muna minni hér á landi en
í nágrannalöndunum, eða 16% þegar miðað er við tekjur
þeirra sem aðeins hafa lokið grunnskólanámi. Í Finnlandi
og Danmörku geta háskólamenntaðir gert ráð fyrir að
langskólamenntun færi þeim 40 prósenta tekjuaukningu.
Í Noregi og Svíþjóð er hún 25,30 prósent (skv. OECD).
Sú tíð er liðin að háskólagráða tryggi fólki gott og
öruggt starf. Hún eykur vissulega líkurnar á því og bætir
samkeppnisstöðu fólks á vinnumarkaði en kjör háskóla-
menntaðra, sérstaklega hjá hinu opinbera, eru langt frá
því að vera samkeppnishæf við einkamarkað og útlönd.
Það er bæði málefnalegt og í raun samfélagsleg nauðsyn
að umbuna háskólamenntuðum í samræmi við fjárfest-
ingu þeirra í langskólanámi. Krafa BHM um að menntun
skuli metin til launa hefur hljómað um samfélagið
á liðnum misserum. Árið 2015 gripu 18 aðildarfélög
BHM til verkfallsaðgerða til að fylgja henni eftir. Þeim
aðgerðum lauk illu heilli með lagasetningu á Alþingi. Ríf-
lega ári eftir úrskurð gerðardóms hafa félagsmenn okkar
enn ekki fengið greitt samkvæmt sérstöku menntunar-
ákvæði hans. Hinu sama ákvæði hefur hins vegar verið
smurt yfir vinnumarkaðinn með ákvörðunum kjararáðs
og samningum á almennum vinnumarkaði. Þannig hafa
aðilar Salek-samstarfsins virt kröfu BHM um að menntun
sé málefnaleg breyta við ákvörðun launa að vettugi og
hleypt af stað nýju „höfrungahlaupi“ um kaup og kjör.
Við þetta verður ekki unað. Ríkisvaldið – sem er
langstærsti vinnuveitandi á Íslandi – verður að láta af
láglaunastefnu sinni gagnvart tilteknum hópum háskóla-
menntaðra hjá hinu opinbera. Um slíkar aðgerðir þarf að
sjálfsögðu að ríkja samstaða á vinnumarkaði, enda eru
þær nauðsynlegar ef ekki á að horfa til auðnar í starfs-
stéttum sem mynda hryggjarstykkið í menntun og velferð
þjóðarinnar.
Borgar sig að fara í háskóla?
Ríkisvaldið
– sem er
langstærsti
vinnuveit-
andi á Íslandi
– verður að
láta af
láglauna-
stefnu sinni
gagnvart
tilteknum
hópum
háskóla-
menntaðra
hjá hinu
opinbera.
Þórunn Svein-
bjarnardóttir
formaður BHM
Snemma í barnæsku er okkur kennt að neysla mjólkur sé nauðsynleg til að viðhalda tann-heilsu og styrkleika beina. D-vítamínið og kalkið í mjólkinni þjónar þessu hlutverki. Við mennirnir erum hins vegar eina tegundin sem lifir á jörðinni sem heldur áfram að neyta mjólkur eftir fyrstu
mánuðina í lífi sínu.
Gæði mjólkur fyrir heilsu eru stórlega ofmetin og
margir fara í gegnum lífið án þess að neyta mjólkurafurða
í miklum mæli. Mjólkin er hins vegar ein kalkríkasta
fæða sem völ er á og það er erfitt fyrir manneskjuna að
verða sér úti um aðrar kalkríkar vörur á lágu verði. Þessi
staðreynd og sterk markaðssetning landbúnaðarins er
svo ástæða þess að mjólkurafurðir eru jafn útbreiddar og
raun ber vitni.
Við sem samfélag þurfum að fara að svara því hvers
konar fyrirkomulag við viljum hafa á framleiðslu og sölu
mjólkurafurða hér á landi enda er ljóst að núverandi
kerfi er löngu gengið sér til húðar. Áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála felldi nýlega úr gildi ákvörðun Samkeppn-
iseftirlitsins og lækkaði sekt MS um 440 milljónir króna.
Í málinu var meðal annars tekist á um hvort samnings-
ákvæði um að selja tiltekið magn af hrámjólk á lægra
verði en almennt bauðst hefði fallið undir þá vernd sem
71. gr. búvörulaga tryggði afurðastöðvum Mjólkursam-
sölunnar. Áfrýjunarnefndin klofnaði í úrskurði sínum og
Jóhannes Karl Sveinsson, formaður nefndarinnar, skilaði
sératkvæði. Þar segir meðal annars: „Ég tel svo ekki vera
og rétt lögskýring leiði til þess að 71. gr. undanþiggi
einungis verkaskiptinguna sjálfa ákvæðum samkeppnis-
laga. Ekki sé í þeirri grein nein heimild til að markaðs-
ráðandi aðili taki höndum saman við aðra á markaði til
að mismuna í verði á ómissandi hráefni.“
Þetta er það sem MS gerði. Fyrirtækið mismunaði
kaupendum á hrámjólk. Sú staðreynd stendur þrátt
fyrir niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Þessi mismunun MS var bara talin lögmæt af meirihluta
áfrýjunarnefndarinnar. Dómstólar munu svara því hvort
meirihlutinn hafði rétt fyrir sér.
Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 5. ágúst 2010 var
á það bent að íslenskur mjólkurmarkaður hefði „mörg
einkenni samráðshrings“ sem á heilbrigðum samkeppn-
ismarkaði bryti í bága við 10. gr. samkeppnislaga. Það er
út af fyrir sig afrek að fyrirtæki eins og Arna í Bolungarvík
þrífist í samkeppnisumhverfi mjólkuriðnaðarins. Það
hefur fyrirtækinu tekist með mjög fjölbreyttu vörufram-
boði og nýjungum, meðal annars grískri jógúrt með alls
kyns bragðtegundum sem keppinauturinn hefur ekki
átt svar við til þessa. Vörur Örnu njóta líka vinsælda því
mörgum neytendum er misboðið og þeir hafa tekið
ákvörðun um að sniðganga vörur MS. Af þessu hafa verið
sagðar margar fréttir á síðustu árum. Við þurfum hins
vegar fleiri fyrirtæki eins og Örnu í Bolungarvík. Til þess
að það gerist þarf að breyta búvörulögum.
Það þarf að brjóta upp þennan samráðshring sem
mjólkuriðnaðurinn á Íslandi er. Vonandi hefur ný ríkis-
stjórn og nýtt löggjafarþing hugrekki til þess að taka það
löngu tímabæra skref neytendum á Íslandi til hagsbóta.
Brjótum upp
hringinn
Dómstólar
munu svara
því hvort
meirihlutinn
hafði rétt fyrir
sér.
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !
Vildu alla burt
Eftir upplausnarástandið í
apríl, þegar upp komst um
aflandsfélagið Wintris, létu
stjórnarflokkarnir tveir, Sjálf-
stæðisflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn, undan
kröfu háværra kjósenda um
nýjar kosningar. Allir stjórn-
málamenn sem áttu aðild að
aflandsfélögum skyldu burt
og einhverra hluta vegna voru
mál Bjarna Benediktssonar og
Ólafar Nordal lögð að jöfnu við
mál Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar og eiginkonu hans.
Alveg sama hversu gerólík
málin voru að eðli.
Öll skyldu þau burt
Eftir kosningar, þar sem annar
stjórnmálaflokkurinn styrkti
stöðu sína, hafa stjórnmála-
menn síðan keppst við að úti-
loka hver annan í ríkisstjórnar-
samstarfi. Nú hafa formenn VG
og Sjálfstæðisflokksins ákveðið
að athuga hvort forsendur séu
fyrir samstarfi. Ljóst er að þau
þurfa fleiri að borðinu til að
mynda stjórn og deilt er um
hver það á að vera. Ljóst þykir
að VG horfi til Samfylkingar-
innar. Og það yrði vissulega
áhugavert að fylgjast með við-
brögðum við því, eftir allt sem á
undan er gengið, að Samfylking-
in og VG myndu sameinast um
það að tryggja áframhaldandi
aðild Sjálfstæðisflokksins að
ríkisstjórn.
jonhakon@frettabladid.is
1 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U d A G U r26 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð
SKOÐUN
0
1
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
F
-8
B
5
0
1
B
7
F
-8
A
1
4
1
B
7
F
-8
8
D
8
1
B
7
F
-8
7
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K