Fréttablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 36
HANDBOLTI Fyrir aðeins fimmtíu
dögum sátu Haukarnir í fallsæti
Olís-deildarinnar með aðeins
fjögur stig í húsi af fjórtán mögu-
legum. Íslandsmeistararnir voru
búnir að tapa fimm af sjö fyrstu
leikjum sínum og höfðu fengið á
sig 31 mark að meðaltali í leik.
Það er því ekkert skrítið að þjálf-
arinn Gunnar Magnússon hafi sofið
illa þessa daga í september og októ-
ber þegar meistaraliðið var nánast
óþekkjanlegt úti á gólfinu. Nú, sjö
vikum síðar, hafa hans menn farið
í gegnum algjör hamskipti og nú
síðast unnið hvern stórsigurinn á
fætur öðrum á efstu liðum deildar-
innar. Hvernig fór hann að þessu?
Framleikurinn vekjaraklukkan
Gunnar segir að vekjaraklukkan
hafi farið í gang eftir 41-37 tap á
móti Fram á heimavelli í lok sept-
ember. „Við héldum alltaf fram að
því að þetta væri að koma og væri
að koma. Eftir það tap, þar sem
við fengum á okkur 41 mark, þá
áttum við okkur á vandamálinu að
við værum bara lélegir og þyrftum
að spýta verulega í lófana,“ segir
Gunnar. Það fór ekki fram hjá
mörgum að varnarleikurinn var
akkillesarhæll liðsins í upphafi
móts.
„Við vorum í miklum vand-
ræðum með vörnina hjá okkur.
Við vorum með nýja leikmenn í
nýjum stöðum sem tók smá tíma,“
segir Gunnar og bendir á eina
tölfræði sem sýnir vel muninn á
varnarleiknum. „Við erum búnir
að tvöfalda fjöldann hjá okkur í
fríköstum frá þessum Framleik.
Það sýnir líka baráttuna og
hugarástandið. Fá meiri baráttu og
fá fleiri fríköst. Við erum búnir að
tvöfalda fjölda hraðaupphlaupa
og tvöfalda fjölda fríkasta sem við
höfum fengið á okkur með því að
bæta þessa vörn. Um leið
og vörnin hefur skánað
hjá okkur þá hefur mark-
varslan líka verið betri,“ segir
Gunnar.
„Ég sagði það eftir þennan sept-
embermánuð, þar sem við gátum
ekki rassgat, að ég héldi að við
kæmum bara sterkari út úr þessu.
Í öllu þessu mótlæti, þegar við töp-
uðum fimm leikjum af sjö, þá var
aldrei einhver örvænting og aldrei
datt mórallinn niður. Við umturn-
uðum engu. Við vissum bara að við
vorum lélegir og að við þyrftum
að leggja harðar að okkur,“ segir
Gunnar. Hann hugsaði þó um lítið
annað en hvað hann gæti gert.
Svaf ekki rólegur
„Ég svaf ekkert rólegur á meðan
liðið spilaði mjög illa. Mér stóð
ekki á sama því ég fékk það til að
virka sem við vorum að fara með
inn í leikina. Ég lagði þá bara helm-
ingi meira á mig eins og strákarnir.
Ég vann bara myrkranna á milli til
að finna lausnir og hvernig ég gæti
snúið þessu við,“ sagði Gunnar og
hann breytti nokkrum hlutum.
Gunnar veltir einnig upp mögu-
leikanum á að hans menn hafi
verið saddir eftir velgengni síðustu
ára.
„Eitt af því sem ég skynjaði eftir
þennan Framleik var að mér fannst
við ekki ná því að gíra okkur inn í
leikina. Mér fannst við vera í mjög
góðu formi og það var því ekki
vandamálið. Við náðum ekki að
gíra okkur almennilega inn í þessa
leiki,“ segir Gunnar og bætir við:
„Margir í liðinu voru búnir að vinna
tvö ár í röð og umræðan var síðan
þannig að við værum langbestir og
í undirmeðvitundinni héldu menn
að þetta kæmi svolítið af sjálfu sér.“
Það var magnað að fylgjast með
Haukalestinni á fullri ferð fyrr
í þessum mánuðum þegar liðið
vann fjögur topplið í deildinni með
meira en 40 mörkum samanlagt.
Koma sterkari út úr þessu
„Við erum búnir að bæta okkar leik
meira með því að fara í alla þessa
vinnu innan og utan vallar. Við
komum sterkari út úr þessu af því
að við tókum á vandamálunum.
Við vorum bara lélegir og hin liðin
voru bara betri en við í byrjun
október,“ segir Gunnar.
Næsti leikur er einmitt á móti
Fram í kvöld. Mótherjar kvöldsins
voru vekjaraklukka Haukaliðsins
fyrir tveimur mánuðum en hvernig
verður framhaldið nú þegar allt er
komið í lag?
„Við erum ekkert komnir á
þann stað sem við viljum vera á
í deildinni. Við erum alls ekkert
sáttir við stöðuna enn, því okkur
langar að sjálfsögðu að komast á
toppinn. Þangað stefnum við og
við erum ekkert sáttir þangað til,“
segir Gunnar. Hann sér hungrið og
leikgleðina aftur í sínum mönnum.
Sér það í augunum á þeim
„Inni í klefa, þegar við erum að fara
í leikina, þá sér maður bara í aug-
unum á mönnum hvort þeir eru til-
búnir. Maður þarf ekkert að öskra
þá í gang lengur því maður sér það
bara að þeir eru tilbúnir. Það er allt
annað að horfa á liðið í dag,“ segir
Gunnar. ooj@frettabladid.is
Hamskipti Haukanna í handboltanum
Það kostaði Gunnar Magnússon margar svefnlausar nætur að vekja sína menn í meistaraliði Hauka af værum blundi eftir matraðar-
byrjun á mótinu. Það tókst hins vegar og liðið sem var í fallsæti fyrir mánuði hefur rúllað yfir topplið deildarinnar á síðustu vikum.
Svekktur út í sjálfan sig
Gunnar Magnússon horfði upp á sína menn tapa fjórum af fyrstu
fimm leikjunum áður en hann áttaði sig almennilega á því að nú
þurfti að hrista vel upp í hlutunum. „Ég sem þjálfari þarf að læra
af þessu. Ég er svekktur yfir að hafa ekki skynjað þetta. Ég
skynjaði þetta ekki á æfingunum,“ segir Gunnar.
„Í fyrra unnum við deildina með ansi mörgum
stigum og við mættum nánast í alla leiki til-
búnir. Það var aldrei vandamál með hugar-
farið. Ég skynjaði ekki í haust að þetta yrði
vandamál. Næst þegar ég lendi í þessu, ef
ég lendi í þessu, þá þarf ég að bregðast við
fyrr heldur en ég gerði núna. Ég kannski
vanmat aðeins vandamálið of lengi,“ segir
Gunnar.
Baumruk og allir
hinir tilbúnir að
hjálpa til
Gunnar Magnússon var mjög
ánægður með hvernig allt félagið
brást við þegar ekkert gekk hjá
karlaliðinu í upphafi tímabilsins.
„Það leggjast allir á eitt. Stjórnin
stóð dyggilega við bakið á mér
og hjálpaði til eins og hún gat.
Húsverðirnir, Petr Baumruk og
þau öll þarna, voru öll að koma
til mín og spyrja hvort þau gætu
hjálpað. Það lögðust allir á eitt í
félaginu fannst mér,“ segir Gunn-
ar. „Oft þegar illa gengur þá sér
maður úr hverju menn eru gerðir
og hvernig félagið er. Mér fannst
svo frábært að sjá alls staðar að
það voru allir tilbúnir að hjálpa
og leggja sitt á vogarskálarnar.“
Haukarnir hafa orðið Íslandsmeistarar undanfarin tvö tímabil og hér fagna þeir Íslandsmeistaratitli sínum síðasta vor. Slök byrjun með nánast óbreytt lið kom því mörgum mjög á óvart. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
✿ Staðan í Olís-deild karla 12. október
LEIKIR S J T STIG SIGURLEIKIR HAUKANNA
1. Afturelding 7 6 0 1 12 (35-17) +18
2. ÍBV 7 4 1 2 9 (32-24) +8
3. Stjarnan 7 3 2 2 8 (33-28) +5
4. Valur 7 4 0 3 8 (34-29) +5
5. Grótta 7 3 1 3 7 (34-32) +2
6. Fram 7 3 1 3 7 1. desember
7. FH 7 3 1 3 7 15. desember
8. Selfoss 7 3 0 4 6 (40-30) +10
9. Haukar 7 2 0 5 4 -----------
10. Akureyri 7 1 0 6 2 10. desember
Reynslunni ríkari í næsta leik n Tap n Sigur
ÍBV
Afturelding
Selfoss
Valur
-6
-1
+3
-4
+8
+18
+10
+5
LEIKUR 1 LEIKUR 2 MISMUNUR
+14
+19
+7
+9
Ég lagði þá
bara
helmingi meira á
mig eins og strák-
arnir. Ég vann bara
myrkranna á
milli til að
finna
lausnir.
Gunnar
Magnússon,
þjálfari
Hauka-
liðsins.
1 . D E S E M B E R 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R
SPORT
0
1
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
F
-A
D
E
0
1
B
7
F
-A
C
A
4
1
B
7
F
-A
B
6
8
1
B
7
F
-A
A
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K