Fréttablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 66
Verkið Norður Var
sýNt í Verge gallery,
sidNey, 2016; art system
Wickham, NeWcastle, 2016.
ljósmyNd heNNar Valley
sNeak hlaut VerðlauN á
experimeNtal photo prize í
gaffa gallery, sidNey, 2016.
„Þessi Bach fiðlukonsert er vel
þekktur þó ég hafi ekki spilað
hann jafn oft og hina. Reyndar
bara tvisvar áður, fyrst í litlum bæ
í Pýreneafjöllunum í Frakklandi
og síðara skiptið í Ósló í Noregi. Í
báðum tilfellum voru það allt öðru
vísi tónleikar en þessir. Í Frakk-
landi var ég með barokksveit og í
Noregi var það lítil kammersveit
sem ég leiddi sjálf. Nú er ég með
Sinfóníuhljómsveit Íslands,“ segir
Elfa Rún Kristinsdóttir um Fiðlu-
konsert í E-dúr eftir Bach sem hún
leikur einleik í á aðventutónleikum
Sinfóníunnar í kvöld í Hörpu.
Tvö verk eftir Mozart ramma inn
efnisskrá tónleikanna, fjörmikill
forleikur að Brúðkaupi Fígarós og
sinfónía númer 39 sem var ein sú
síðasta sem hann samdi.
Hamrahlíðarkórarnir koma fram
með sveitinni í My heart is inditing,
hátíðlegu kórverki eftir Händel sem
var samið til flutnings við krýningu
Karólínu Bretadrottningar í West-
minster Abbey árið 1727.
En hvernig vill Elfa Rún lýsa
konsertinum sem hún leikur í?
„Hann er mjög léttur og bjartur,“
segir hún. „Fallegur og ómstr-
íður annar kafli og dansandi þriðji
kafli.“ Hún kveðst hafa verið að
hitta stjórnanda sveitarinnar nú,
hinn norska, Eivind Aadland, í
fyrsta skipti. „Okkur semur prýði-
lega,“ tekur hún fram glaðlega.
Elfa Rún átti heima á Akureyri
fyrstu fimm ár ævi sinnar og svo í
Reykjavík, uns hún hélt út til Þýska-
lands í frekara tónlistarnám haust-
ið 2003, þá nýlega útskrifuð úr
tónlistardeild Listaháskóla Íslands
þar sem hún naut handleiðslu
Guðnýjar Guðmundsdóttur og
Auðar Hafsteinsdóttur. Síðustu tíu
árin hefur hún búið í Berlín og á þar
franskan eiginmann sem er selló-
leikari. Ekki heyrist á mæli hennar
að hún tali ekki íslensku upp á
hvern dag. Þó segir hún „ábyggilega
eitt og eitt orð týnt“.
Hún hefur víða vakið athygli fyrir
færni sína í fiðluleik og var meðal
annars tilnefnd til Tónlistarverð-
launa Norðurlandaráðs árið 2015.
Nýr geisladiskur hennar með par-
títum meistara Bachs hefur líka
fengið afburða góða dóma.
Spurð hvort hún sé að spila úti
um allan heim svarar Elfa Rún:
„Já, mest á meginlandinu. En það
kemur alveg fyrir að ég fer til ann-
arra heimsálfa.“ Hún kveðst líka
alltaf koma heim af og til, nú tók
hún rúmlega ársgamlan son sinn
með.
„Ég var hér síðast að spila með
barokkbandinu Brák austur í Skál-
holti í sumar og ætla einmitt að
spila með því bandi aftur núna
á sunnudaginn í Norðurljósum í
Hörpu,“ upplýsir hún. Kveðst svo
fljúga aftur út á mánudaginn með
þann litla.
Fallegur, ómstríður og dansandi konsert
á aðventutónleikum sinfóníuhljómsveitar íslands í hörpu í kvöld hljómar hátíðleg tónlist eftir þrjá meistara
18. aldar: Bach, händel og mozart. einleikari í fiðlukonsert í e-dúr eftir Bach er elfa rún kristinsdóttir.
Elfa Rún er hvergi bangin þó hún hafi ekki áður spilað þennan fiðlukonsert með sinfóníuhljómsveit. Einu sinni verður allt fyrst. FRéttablaðið/GVa
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Ananas á tilboði
Sante er þýskt snyrtivörumerki sem er leiðandi í framleiðslu
lífrænna snyrtivara.Sante er með eftirtaldar vottanir:
BDIH vottun | Natrue vottun | Cruelty Free vottað | Vegan vottun á flestum þeirra vörum
NÝTT Í
Norður er nafn nýrrar sýningar í
Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur
með ljósmyndum eftir Simone
Darcy. Simone Darcy býr og starfar
í Newcastle í Ástralíu og hafa verk
hennar verið sýnd víða um heim.
Hún dvaldi í listamiðstöðinni Nes-
list á Skagaströnd árið 2015. Verkið
Norður var sýnt í Verge Gallery,
Sidney, 2016; Art System Wickham,
Newcastle, 2016. Ljósmynd hennar
Valley Sneak hlaut verðlaun á
Experimental Photo Prize í Gaffa
Gallery, Sidney, 2016.
Umfjöllunarefni sýningarinnar
er móðurhlutverkið og löngun
til að upplifa eitthvað sem ekki
getur orðið að veruleika. Mynd-
málið tvinnar saman fegurð og
sorg, þetta er saga kvenna þar sem
sameiginleg reynsla kemur fyrir.
Norður fjallar um ferðalag Simone
Darcy um Ísland og samanstendur
af myndum sem hún hefur tekið í
tímans rás. Ummerki hins áþreifan-
lega og óáþreifanlega eru í forgrunni
og sjónum beint að tilfinningalegri
og sjónrænni upplifun höfundar af
landinu.
Oft er upplifun okkar á ýmsum
viðfangsefnum bundin fyrirfram
ákveðnum hugmyndum og skil-
greiningum. Höfundurinn skorar á
gesti að leggja þessar skilgreiningar
til hliðar og lesa í myndmálið óháð
allri fyrirliggjandi vitneskju.
Sýningin Norður verður opnuð í
dag og stendur til 24. janúar á næsta
ári. – mg
Móðurhlutverkið og löngun til þess að upplifa
Ein af myndum Simone Darcy á
sýningunni Norður í ljósmyndasafni
Reykjavíkur.
1 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U d A G U r50 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
0
1
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
7
F
-8
B
5
0
1
B
7
F
-8
A
1
4
1
B
7
F
-8
8
D
8
1
B
7
F
-8
7
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K