Fréttablaðið - 16.07.2016, Page 62

Fréttablaðið - 16.07.2016, Page 62
Bækur Þar sem fjórir vegir mætast HHHHH Tommi Kinnunen Þýðing: Erla E. Völudóttir Útgefandi: Bjartur Prentun: Oddi Síðufjöldi: 290 Kápa: Erlend Askhov/Askhov Design „Þessar sögur áttu sér hvorki upphaf né endi og voru því eiginlega ekki almennilegar sögur. Til þess hefði hún þurft að segja þær oft áður, gleyma smám saman einhverjum smáatriðum úr þeim og finna önnur atriði úr öðrum sögum í staðinn, svo að þær mynduðu sem besta heild.“ Þetta litla brot úr finnsku skáldsögunni Þar sem fjórir vegir mætast eftir Tommi Kinnunen er í sjálfu sér ágætis lýsing á verkinu. Sögur Tommi Kinnunen eru þó almennilegar sögur af fólki og vel það og þær fléttast haganlega saman en þær eiga sér ekki endilega upphaf og endi umfram líf og dauða þeirra sem sagt er frá. Þar sem fjórir vegir mætast er ákaflega sterk og áhrifarík ættar- saga en á sama tíma saga fólksins í Norður-Finnlandi á liðinni öld. Saga þjóðar eru ótal sögur af venju- legu fólki. Upphaf sögunnar í hinni sjálfstæðu og hugrökku ljósmóður Maríu er einkar fallegt og tákn- rænt fyrir erfiða fæðingu þjóðar sem segja má að hafi vaxið úr grasi og náð miklum þroska á liðinni öld. Þetta er þjóð sem María kom í heiminn. Sumir lifðu fæðinguna af en aðrir ekki en áfram hélt þjóðin að mótast og verða að því sem hún er með kostum sínum og göllum. María er upphafspunktur ættar- sögunnar og Kinnunen vinnur með afkomendur hennar og þá sem þeim tengjast fram eftir öld- inni á áreynslulausan en í senn áhrifaríkan máta. Þó svo persónur séu að sumu leyti holdgervingar ákveðinna jaðarsettra eiginleika í finnsku samfélagi á hverjum tíma fyrir sig þá nær Kinnunen að skapa heildstæðar og sterkar persónur. Kannski ekki síst vegna breyskleika þeirra og ágalla sem gera þær svo óendanlega mannleg í heildrænni sögu af fólki sem ætlar sér stóra hluti en ekkert verður nokkurn tíma eins og það á að vera heldur eitthvað allt annað. Allt endurspeglast þetta í háreistu húsi fjölskyldunnar sem stendur í litla bænum á hjara veraldar þar sem fjórir vegir mætast. Það er algengt í finnskum skáld- sögum að saga þjóðarinnar á síð- ustu öld sé ekki langt undan. En Kinnunen tekst að finna þar einkar ferskan vinkil sem rétt er að eftir- láta lesendum að uppgötva. Það er þó ekki of mikið sagt með því að nefna að þrá persónanna eftir því að lífið sé ekki eins og það er heldur öðruvísi, er sterkur, sammannlegur þráður. Kinnunen tekst ágætlega til við að lýsa einföldum persónum með von í brjósti en sterkastar eru persónulýsingarnar í breyskleik- anum og vonbrigðunum. Þar sem fjórir vegir mætast er áhrifarík fjölskyldu- og þjóðarsaga fólks sem enn tekst á við að rjúfa múra þagnarinnar um allt það sem er forboðið að vera og gera. Fólks sem tekst á við drauminn um að fá að vera eins og það er en ekki það sem samfélagið ætlar þeim og í þessum kunnuglega þræði er þetta saga sem á erindi til okkar allra með einum eða öðrum hætti. Og þó svo frásögurnar séu misgóðar og haldi ekki allar jafn vel þá er heildin sterk. Erla E. Völudóttir þýddi og er ekki annað að finna en að það sé gert með sóma. Tungumálið þróast lítið eitt í gegnum tíma sögunnar, svona rétt eins og á meðal þjóða, og full ástæða til þess að þakka þýðanda fyrir að koma til okkar sögu þessarar grannþjóðar sem við eigum eflaust sitthvað skylt með en þurfum að kynnast betur. Magnús Guðmundsson Niðurstaða: Áhrifarík ættarsaga af fábrotnu fólki fléttast saman við magnaða sögu finnsku þjóðarinnar á liðinni öld. Saga þjóðar eru sögur af lífsbaráttu venjulegs fólks Hvað eiga fuglaveiðimaður, ungversk greifynja, dauða-dæmdur listmálari og ver- gjörn verkakona sameiginlegt? Jú, allt eru þetta persónur sem koma við sögu í óperugalasýningu í Hörpu á sunnudaginn. Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari hefur veg og vanda af dagskránni og hann segir að áætlaðir séu nokkrir slíkir tónleikar í sumar undir yfir- skriftinni óperugala. „Þetta eru fjórir söngvarar og einn píanisti sem skauta í gegnum sögu óperu- flutnings á Íslandi. Þetta eru fjórir einsöngvarar af yngri kynslóðinni, þau Lilja Guðmundsdóttir, Sigríð- ur Ósk Kristjánsdóttir, Egill Árni Pálsson og Kristján Jóhannesson en Matthildur Anna Gísladóttir er við píanóið. Söngvararnir syngja vel valda tónlist úr óperum, ekki síst svona nokkuð vel þekkta hittara ef svo má segja, en á sama tíma erum við að segja frá sögu óperunnar í Íslandi í máli og myndum. Þessi saga er reyndar ákaflega stutt á Íslandi, því þó svo að ópera hafi verið til í 500 ár þá nær þessi saga ekki hundrað árum hérlendis. Við vorum einfaldlega lengi vel bæði fátækt og fámennt samfélag sem hafði eðli málsins samkvæmt ekki kost á því að sinna slíkri listgrein. En ég ákvað samt að setja svona dagskrá saman vegna þess að það hefur engu að síður margt afar skemmtilegt gerst á þessum sjötíu til áttatíu árum eða svo. Til þess að draga þessa sögu fram í dagsljósið þá sýnum við líka myndir og myndskeið úr sjón- varpsþáttum og við gætum þess að þetta sé aðgengilegt og aldrei langt í skemmtilegheitin. Þetta er eigin- lega svona ópera 101 í leiðinni og því miklu meira en tilvalið fyrir þá sem vilja kynna sér óperulistina. Á sama tíma og þau eru að segja þessa sögu þá eru þau líka að spá í margt er varðar óperur eins og hvort útlitið skipti máli, hvernig söngvarar líta út, á hvaða tungu- máli sé rétt að syngja, hvort ópera geti ekki allt eins gerst á Kópaskeri eins og á Spáni og þannig mætti áfram telja.“ Spurður hvort saga óperunnar á Íslandi sé raunasaga þá lætur Bjarni Thor sé nú lítið bregða. „Nei, ég mundi nú ekki segja það en það hefur gengið á ýmsu. En það sem hefur í raun alltaf verið erfiðast að eiga við á Íslandi varðandi óperu eru einkum for- dómar. Það eru miklir fordómar hér gagnvart óperutónlist. En ef maður spáir í það þá eru vin- sælustu óperurnar, eins og sumar þeirra sem við erum að syngja úr, uppfullar af tónlist sem er búin að vera vinsæl í þrjú hundruð ár og er flutt á hverjum einasta degi ein- hvers staðar úti í heimi. En samt virðist erfitt að telja landanum trú um hvað þetta er skemmti- legt og það þrátt fyrir það hvað við erum söngelsk þjóð og það er ákveðin mótsögn í því. Ég held að þetta sé bara fyrst og fremst það að við höfum ekki haft mikið af þessu í okkar umhverfi því við erum í raun mjög móttækileg. Við þurfum bara að byrja fyrr og láta það eftir okkur að njóta þessarar fallegu tónlistar.“ Tónleikarnir eru í Kaldalóni Hörpu á sunnudaginn kl. 16 og svo í þrjú skipti síðar í sumar eftir það. – mg Vinsæl tónlist í 300 ár Bjarni Thor Kristinsson hefur sett saman söngdagskrá undir yfirskriftinni Óperugala þar sem áhorfendur kynnast perlum óperutónlistarinnar og sögu óperunnar á Íslandi í senn. Bjarni Thor segir að saga óperunnar á Íslandi sé stutt en viðburðarík og margt skemmtilegt hafi á daga drifið. Jazz undir fjöllum verður haldin í þrettánda sinn í dag en það er árleg djasshátíð í Skógum undir Eyjafjöllum. Hátíðin samanstendur af tveimur mismunandi viðburðum en aðalnúmer hátíðarinnar verður Pálmi Gunnarsson sem kemur fram á tónleikum í félagsheimilinu Foss- búð sem hefjast kl 21.00. Pálmi hefur ekki verið þekktur fyrir að spila djasstónlist en hann mun taka nokkra djassstandarda, blús og svo nokkur af Mannakorns- lögum Magnúsar Eiríkssonar. „Þetta hefur alltaf verið stórskemmtileg hátíð hérna í sveitinni en það er einstaklega gaman að fá Pálma til þess að spila með okkur í ár,“ segir Sigurður Flosason, einn af skipu- leggjendum hátíðarinnar en hann mun einnig stíga á svið með Pálma og leika á saxófón. Með þeim munu Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson spila á kontrabassa og Benedikt Brynleifsson á trommur. Dagskráin hefst klukkan 14.00 í Skógakaffi þar sem lifandi tónlist verður í gangi til klukkan 17.00 en ekkert kostar inn á þann viðburð. „Þetta er upplagt fyrir þá sem eru á ferðinni og vilja kíkja en fólk hefur verið að koma og fara að vild í gegn- um tíðina. Svo seinna verða tón- leikarnir með Pálma en þá eigum við von á fólki alls staðar frá. Það er löngu uppselt á hótelinu en það er fínasta tjaldsvæði í grenndinni þar sem fólk getur tjaldað eða mætt með fellihýsin.“ Fyrri hátíðir í Skógum hafa fengið frábæra aðsókn og góða dóma. Aðgangur er ókeypis á tónleikana í Skógakaffi en aðgangseyrir er 2.000 krónur í Fossbúð. Búist er við mikl- um fjölda gesta enda er veðurspáin fyrir helgina ansi góð. – gj Lifandi stemning á árlegri djasshátíð í Skógum undir Eyjafjöllum Sigurður Flosason saxófónleikari er einn af skipuleggjendum hátíðarinnar og mun einnig stíga á svið með Pálma Gunnarssyni. Pálmi Gunnarsson tekur nokkur djasslög í bland við gamla slagara. 1 6 . j ú l í 2 0 1 6 l a u G a r D a G u r34 M e N N i N G ∙ F r É t t a B l a ð i ð menning 1 6 -0 7 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 0 5 -0 3 F 0 1 A 0 5 -0 2 B 4 1 A 0 5 -0 1 7 8 1 A 0 5 -0 0 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.