Víkurfréttir - 20.01.1983, Síða 1
2. tbl. 4. árg. Fimmtudagur 20. janúar 1983
rCÉTTIC
54%
Fyrir hálfum mánuöi vant-
aði aðeins einn mann upp á
að tala atvinnulausra næöu
tölunni 200, og um sl. helgi
var talan svipuð. Hér er
aöeins átt við tölur úr Kefla-
vik og koma þá önnur
byggöarlög þessu til við-
bótar.
Ef reiknaö er út hve marg-
ir atvinnuleysisdagar voru í
Keflavík á sl. ári kemur fram
meira atvinnuleysi ’81-’82
Tæplega 10 þús. atvinnuleysisdagar sl. ár
að talan er 9.816, en árið
áður var heildartalan 6.383
dagar og er mismunurinn
því 54%.
Eins og sést á töflu þeirri
sem birt verður hér með, var
mest atvinnuleysi fyrstu
þrjá mánuöi ársins og síöan
nú í desember. Tafla sú sem
fylgir hér með eryfirárinfrá
1978 og er unnin af Félags-
málastofnun Keflavíkur-
bæjar:
1978 1979 1980 1981 1982
Jan. 440 1.464 407 1.309 3.705
Febr. 495 516 259 779 1.608
Marz 370 243 252 463 1.211
Apríl 118 132 195 76 221
Maí 85 279 221 75 225
Júní 244 251 172 1 582
Júlí 282 71 500 29 335
Ágúst 1.830 11 977 231 254
Sept. 797 38 472 148 245
Okt. 61 129 361 577 209
Nóv. 231 252 474 1.183 200
Des. 1.301 443 649 1.512 1.021
Alls 6.254 3.829 4.939 6.383 9.816
Þá gerði blaðið könnun á
því hvernig málum væri hátt
að í hinum byggðarlögun-
um á Suðurnesjum, og kom
fram að í Sandgerði voru sl.
föstudag 61 á skrá, Njarð-
vík 50, Vogum 15, Garði 13
og í Höfnum 3. Samkvæmt
því eru nú alls rúmlega 340
manns atvinnulausir á Suö-
urnesjum, að Grindavík
undanskilinni. - epj.
M.b. Pétur Ingi kom-
inn heim eftir gagn-
gerar endurbætur
A Þorláksmessu kom
m.b. Pétur Ingi KE 32 til
heimahafnar í Keflavík úr
mikilli breytingu, sem fram-
kvæmd var ytra. Af þessu
tilefni haföi blaðið samband
við útgerðarmann bátsins,
Margeir Margeirsson, og
var hann fyrst spurður í
hverju breytingarnar væru
fólgnar.
,,Það var skipt um allt í
vélarrúmi eins og það
leggur sig, ný Ijósavél og
nýr gír. Allt rafmagn var
endurnýjað í bátnum, spil-
kerfið er endurnýjað, byggt
er yfir hann, einangrað og
klætt millidekkið, sem yfir-
leitt hefur ekki verið gert í
öðrum bátum. Ný brú,
en mest af tækjunum voru
notuð áfram, alla vega þau
Heilsugæslustöö Suðurnesja:
Yfirtekur rekstur
sjúkrabifreiðarinnar
Ákveöiö hefurverjðaðfrá
og með 1. jan 1983 taki
Heilsugæslustöð Suður-
nesja við rekstri sjúkrabif-
Áhrif
atvinnuleysis
Þégar talað er um verð-
bólguna hér á landi er oft
sagt að hún sé betri en at-
vinnuleysið. Samkvæmt
nýjustu tölum er ekki nema
0.3% atvinnuleysi hér á
landi, en í sumum nálægum
löndum okkar 10-15%. En
hefur atvinnuleysiö áhrif á
heilsuna?
Prófessor nokkur i Banda
ríkjunum, Harvey Brenner
að nafni, heldur því fram að
1% aukning atvinnuleysis
leiöi til 2%aukningardánar-
tíðni, 3% fleiri innlagna á
geðsjúkrahús, 4%fjölgunar
á sjálfsmorðum og 6% aukn
ingar á mannvígum.
Síðustu fréttir eru svo
þær, að það sé 54% meira
atvinnuleysi á Suöurnesj-
um en í fyrra, og hana nú !!!
þket.
reiöarinnar í Keflavík, þ.m.t.
innheimta reikningafyrirþá
þjónustu.
Samþykkt þessi er gerð í
fullu samráöi við fulltrúa
Rauða kross deildar Kefla-
víkur og Rauða kross ís-
lands, þá Jón Ásgeirsson
f ramkvæmdastjóra og
Ómar Friðjónsson erind-
reka. Fyrirkomulag þetta
gildir fyrst um sinn, en
síöar verða teknar upp við-
ræöur við Rauða krossinn
um framtíðarskipan þess-
ara mála, þar sem þeir hafa
lýst áhuga á því.
Til aö fá nánari fregnir af
málinu hafði blaöið sam-
band við Eyjólf Eysteins-
son, og sagöi hann að áöur
hafi þetta verið þannig að
Rauði krossinn fékk allar
tekjurnar og sá um afskriftir
og endurnýjun á bifreiö-
inni. Sveitarfélögin hefðu
síöan staðið undir rekstrin-
um, þ.e. greitt laun og elds-
neyti. Aðalbreytingin er
því sú, að nú sér Heilsu-
gæslustöð Suöurnesja al-
farið um sjúkrabílinn bæöi
rekstrarlega og tekjulega.
epj.
sem voru í góðu formi.
Segja má því að allt hafi
verið endurnýjað nema lest-
in sjálf, og lítillega var gert
við mannaíbúðir, nema
borðsalur og eldhús sem
voru stækkuð og öll hrein-
Pétur Ingl á sigllngu
lætisaðstaða var löguð tölu-
vert. Þá er gert ráð fyrir að
setja megi upp línuvél með
því að lengja stjórnborðs-
ganginn fram eftir."
Eru þetta ekki dýrar fram-
kvæmdir?
„Jú, verkið í heild á af-
hendingardegi kostaði um
15 milljónir, þ.e. fyrir síð-
ustu gengisfellingu."
Hvar var þetta fram-
Framh. á 7. síðu
Belgískur togari
hirti af þeim línuna
Oft á tíðum hefur borið á
ýmsum árekstrum milli línu-
báta og togskipa og er
mönnum minnisstæðar
miklar umræður um þau
mál á sl. ári þar sem skip-
stjórar línubátanna kvört-
uðu sáran undan yfirgangi
togskipanna. En það eru
fleiri skip en íslensku tog-
skipin sem eru aö áreita línu
bátana, því nú hafa bæst í
þann hóp erlendir togarar,
að því er kom fram í viðtali
sem blaðið átti viö Garöar
Magnússon, útgerðarmann
í Njarðvík.
Hann sagði að belgískur
togari hefði í síðustu viku
togaö yfir línu tveggja línu-
báta er voru á Grindavíkur-
dýpi rétt innan við gömlu
tólf mílna mörkin. Þráttfyrir
að enginn togari hafi sést
þegar bátarnir lögöu línu
sína kom þessi togari
skömmu síðar á löngu togi
og sigldi yfir línurnar og
hirti þær af þeim.
„Það viröist ekki vera
hægt aö ná sambandi viö
þá, annað hvort vegna
kunnáttuleysis þeirra í mál-
um eða vegna þess að þeir
taka ekki tillit til til annarra.
Það virðist heldur ekkert
Ákveöiö hefur verið að
hafa opiö hús hjá Þroska-
hjálp á Suðurnesjum að
Suðurvöllum 9 í Keflavík,
fimmtudaginn 27. janúar
n.k. kl. 20.
Á fundinn mæta Margrét
Margeirsdóttir frá Félags-
málaráðuneytinu, og Helgi
Jónasson fræðslustjóri
Gengið hefur verið frá
stofnun hlutafélags um
rekstur Víkur-frétta, og er
stjórn fyrirtækisins skipuð
þeim Emil Páli Jónssyni,
Páli Ketilssyni og Vilhjálmi
þýða að kvarta til Landhelg-
isgæslunnar, jafnvel þó
þetta gerist aftur og aftur.
Þaö er kannski vegna þess
að varðskipin fá ekki oliu?
Þetta er alvarlegt mál, þvi
tjón á veiðarfærum getur
farið upp í 100 þús krónur
með fiski og öllu,“ sagði
Garðar. - epj.
Reykjanesumdæmis. Munu
þau flytja stutt erindi um
skólamál og sérkennslu, og
svara fyrirspurnum.
Vill stjórn félagsins hvetja
foreldra og aðra velunnara
félagsins sem áhuga hafa á
þessum málum, að mæta,
jafnframt því sem stjórnin
vonast til að sjá sem flesta.
H. Vilhjálmssyni, en í blað-
stjórn eru þeir Emil og Páll.
Aðsetur blaðsins er að
Hafnargötu 32, II. hæð, sími
1717, pósthólf 125, 230
Keflavík.
Opið hús hjá Þroskahjálp
Víkur-fréttir hf.