Víkurfréttir - 17.02.1983, Page 1
Verðkönnun Verðlagsstofnunar
á Reykjanesi:
Innkaupakarfa 9
Að þessu sinni hefur
Verðlagsstofnun gert
könnun á verði í matvöru-
verslunum á Reykjanesi,
þ.e. 10 verslunum i Hafnar-
firði, 8 í Keflavík, 2 í Njarð-
víkum, 2 í Sandgerði, 1 í
Vogunum og 1 í Garðinum.
Þessi níunda Innkaupa-
karfa Verðlagsstofnunar er
allumfangsmikil, því i henni
var kannað lægsta og
hæsta verð 36 vörutegunda
og birt hvar dýrustu og
ódýrustu vörurnar fást og
auk þess hvaða vörumerki
það eru. Jafnframt er gerð-
ur sérstakursamanburðurá
vörumerkjum í þremur
vöruflokkum.
Helstu niðurstöður eru
þær, að heildarverðmunur
er öllu meiri i þessum 26
verslunum en þeimverslun-
um, sem áður hafa verið
kannaðar í Reykjavík.
Megin skýringin er mishár
innflutningskostnaður.
Sé litið á einstakar vöru-
tegundir kemur m.a. eftir-
farandi fram:
Mestur munur á lægsta
og hæsta verði er á hand-
sápu 215%, en í öðrum níu
tilvikum er þessi munuryfir
100% og má þar m.a. nefna
uppþvottalög, kaffi, korn-
flögur, hveiti og egg.
Þessi innkaupakarfa
leiddi í Ijós, að verölagning
var ólögleg í a.m.k. 10 tilvik-
um og hefur þaö verið leið-
rétt fyrir atbeina Verölags-
stofnunar.
Eins ogsjámáaf könnun-
inni er nokkur munur á
verðlagningu verslana og er
það einkum ein verslun,
sem sker sig úr í skrá yfir
verslanir með lægsta verð.
I þriðju Innkaupakörf-
unni var gerður sérstakur
samanburður á verði miðað
við vörumerki. Þá kom í Ijós
talsverður munur á verði og
sömu sögu er að segja í
þessari Suðurnesjakönnun.
Þannig er munurinn á ódýr-
asta og dýrasta hveitinu
83%, á þvottadufti 82% og á
uppþvottalegi 135%.
Af Innkaupakörfu 9 verð-
ur dregin sú ályktun, að
verðmunur á milli vöru-
merkja er meiri en verð-
munur á milli verslana og er
það raunar sama niður-
staða og aðrar innkauþa-
körfur Verðlagsstofnunar
hafa sýnt.
Verðkannanir Verðlags-
stofnunar liggja frammi
fyrir almenning í Verðlags-
stofnun og hjá fulltrúum
stofnunarinnar úti á landi.
Þeir sem þess óska geta
gerst áskrifendur að verð-
könnunum Verðlagsstofn-
unar. Síminn er 27422.
Sjá tOflu á bls. 12
Eiríkur til S.S.S.
Vegna hins snögga frá-
falls Haraldar Gíslasonar
og mikilla verkefna hjáSSS,
taldi stjórn sambandsins
brýna nauðsyn til þess að
ráða framkvæmdastjóra
svo fljótt sem frekast væri
kostur.
Þar sem Eiríkur Alexand-
ersson er af láta af störfum
sem bæjarstjóri í Grindavík
um þessar mundir, kom
fram áskorun áfundi stjórn-
ar sambandsins 10. febrúar
sl., til Eiríks um að gefa kost
á sér til starfsins. Varð Ei-
ríkur við áskoruninni.
Samþykkti því stjórnin að
ráða Eirík sem fram-
kvæmdastjóra SSS til bráða
birgða frá og með 10. febr-
úar sl.
Boranir í
Eldvörpum
Síðar í þessum mánuði er
áætlað aö hefja boranir í
Eldvörpum til að rannsaka
hvaö sé mikið um hita þartil
staöar. Eru þaö Hitaveita
Suðurnesja og Landsvirkj-
un sem standa sameigin-
lega aö athugunarborunum
þessum. - epj.
Smygluðu áfengi og tóbaki
[ síðustu viku komst upp
smyglmál á Keflavíkurflug-
velli, þar sem 2 varnarliðs-
menn og nokkur fjöldi ís-
lendinga kom við sögu.
Stóð rannsókn yfir hjá lög-
reglunni á Keflavíkurflug-
velli þegar blaðið fór í
prentun.
Vegna þessa máls hafði
blaðið samband við Þorgeir
Þorgeirsson, lögreglu-
stjóra á Keflavíkurflugvelli,
og upplýsti hann að hér
væri um að ræða mál þar
sem 2 varnarliðsmenn hafa
staðið i viðskiptum við all-
marga íslendinga nú í ein-
hvern tíma. Um er að ræða
smygl út af vellinum af
nokkru magni af áfengi og
tóbaki og er upplýst að
bæði varnarliðsmennirnir
og íslendingarnirsáu um að
smygla því. - epi.
HÖRÐUR HF. MEÐ
RAÐSMÍÐAÁFORM
Hjá Skipasmiðjunni
Herði hf. í Njarðvík stendur
nú yfir smíði á rækju- og
togveiðiskipi fyrir Þorstein
hf. á (safirði. Að sögn Ólafs
Sigtryggssonar framkv.stj.
Harðar hf. er hér um að
ræða 20 m langt og 5 m
breitt skip og á smíði þess
að vera lokið í vor.
Skipið verður 2ja þilfara
og um 70 tonn að stærð,
það verður búið öllum ný-
tísku togveiðibúnaði og
mjög vel búið fiskileitar- og
siglingatækjum og er nán-
ast með sama búnað og
togari.
Með skipi þessu er verið
að reyna að sameina lítið
skip sem getur á vetrum
veitt rækju inni á ísafjarðar-
djúpi og getureinnig veriðá
úthafsrækju á sumrin á
djúpmiðum.
Um fleiri áform sagði Ól-
afurað þeirværu meðsamn
ing um smíöi fyrir Akurnes-
ing á stærra skipi, en beðið
væri eftir svari frá kerfinu,
og síðan eru þeir með
áframhaldandi áform um
raðsmíði, þ.e. að komast
inn í þann hóþ sem fær að
smíða svokölluð raðsmíða-
skip, ,,ef þetta á ekki bara að
vera prívat fyrir stóru smiðj-
urnar þrjár, þ.e. Stálvík,
Þorgeir og Ellert og Slipp-
stöðina á Akureyri, en þann
ig var þetta ekki fyrirhugað í
upphafi," sagði Ólafur.
Raðsmíðaskip þau sem
Hörður hf. hefur fyrirhug-
að að smíða eru 25.5 m löng
og 7.6 m breiö og sést útlit
þeirra á meðfylgjandi
mynd. Er hér um að ræða
teikningu Haröar hf., sem
hönnuð er af Karli Lúðvíks-
syni, skipaverkfræðingi, og
því algjörlega þeirra hug-
mynd.
Raðsmíöaskip Harðar hf.
er helmingi ódýrara en þau
stóru skip sem hinar skipa-
smíðastöðvarnar áforma.
Samt er áætlað aö þessi
skip geti fiskaö 70-80% af
afla stærri skipanna. Ættu
því skip Harðarað vera hag-
kvæmari miðað viö sömu
forsendur. - epj.
Telknlng af raSamlbaaklpi HarSar hf.