Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.02.1983, Síða 1

Víkurfréttir - 17.02.1983, Síða 1
Verðkönnun Verðlagsstofnunar á Reykjanesi: Innkaupakarfa 9 Að þessu sinni hefur Verðlagsstofnun gert könnun á verði í matvöru- verslunum á Reykjanesi, þ.e. 10 verslunum i Hafnar- firði, 8 í Keflavík, 2 í Njarð- víkum, 2 í Sandgerði, 1 í Vogunum og 1 í Garðinum. Þessi níunda Innkaupa- karfa Verðlagsstofnunar er allumfangsmikil, því i henni var kannað lægsta og hæsta verð 36 vörutegunda og birt hvar dýrustu og ódýrustu vörurnar fást og auk þess hvaða vörumerki það eru. Jafnframt er gerð- ur sérstakursamanburðurá vörumerkjum í þremur vöruflokkum. Helstu niðurstöður eru þær, að heildarverðmunur er öllu meiri i þessum 26 verslunum en þeimverslun- um, sem áður hafa verið kannaðar í Reykjavík. Megin skýringin er mishár innflutningskostnaður. Sé litið á einstakar vöru- tegundir kemur m.a. eftir- farandi fram: Mestur munur á lægsta og hæsta verði er á hand- sápu 215%, en í öðrum níu tilvikum er þessi munuryfir 100% og má þar m.a. nefna uppþvottalög, kaffi, korn- flögur, hveiti og egg. Þessi innkaupakarfa leiddi í Ijós, að verölagning var ólögleg í a.m.k. 10 tilvik- um og hefur þaö verið leið- rétt fyrir atbeina Verölags- stofnunar. Eins ogsjámáaf könnun- inni er nokkur munur á verðlagningu verslana og er það einkum ein verslun, sem sker sig úr í skrá yfir verslanir með lægsta verð. I þriðju Innkaupakörf- unni var gerður sérstakur samanburður á verði miðað við vörumerki. Þá kom í Ijós talsverður munur á verði og sömu sögu er að segja í þessari Suðurnesjakönnun. Þannig er munurinn á ódýr- asta og dýrasta hveitinu 83%, á þvottadufti 82% og á uppþvottalegi 135%. Af Innkaupakörfu 9 verð- ur dregin sú ályktun, að verðmunur á milli vöru- merkja er meiri en verð- munur á milli verslana og er það raunar sama niður- staða og aðrar innkauþa- körfur Verðlagsstofnunar hafa sýnt. Verðkannanir Verðlags- stofnunar liggja frammi fyrir almenning í Verðlags- stofnun og hjá fulltrúum stofnunarinnar úti á landi. Þeir sem þess óska geta gerst áskrifendur að verð- könnunum Verðlagsstofn- unar. Síminn er 27422. Sjá tOflu á bls. 12 Eiríkur til S.S.S. Vegna hins snögga frá- falls Haraldar Gíslasonar og mikilla verkefna hjáSSS, taldi stjórn sambandsins brýna nauðsyn til þess að ráða framkvæmdastjóra svo fljótt sem frekast væri kostur. Þar sem Eiríkur Alexand- ersson er af láta af störfum sem bæjarstjóri í Grindavík um þessar mundir, kom fram áskorun áfundi stjórn- ar sambandsins 10. febrúar sl., til Eiríks um að gefa kost á sér til starfsins. Varð Ei- ríkur við áskoruninni. Samþykkti því stjórnin að ráða Eirík sem fram- kvæmdastjóra SSS til bráða birgða frá og með 10. febr- úar sl. Boranir í Eldvörpum Síðar í þessum mánuði er áætlað aö hefja boranir í Eldvörpum til að rannsaka hvaö sé mikið um hita þartil staöar. Eru þaö Hitaveita Suðurnesja og Landsvirkj- un sem standa sameigin- lega aö athugunarborunum þessum. - epj. Smygluðu áfengi og tóbaki [ síðustu viku komst upp smyglmál á Keflavíkurflug- velli, þar sem 2 varnarliðs- menn og nokkur fjöldi ís- lendinga kom við sögu. Stóð rannsókn yfir hjá lög- reglunni á Keflavíkurflug- velli þegar blaðið fór í prentun. Vegna þessa máls hafði blaðið samband við Þorgeir Þorgeirsson, lögreglu- stjóra á Keflavíkurflugvelli, og upplýsti hann að hér væri um að ræða mál þar sem 2 varnarliðsmenn hafa staðið i viðskiptum við all- marga íslendinga nú í ein- hvern tíma. Um er að ræða smygl út af vellinum af nokkru magni af áfengi og tóbaki og er upplýst að bæði varnarliðsmennirnir og íslendingarnirsáu um að smygla því. - epi. HÖRÐUR HF. MEÐ RAÐSMÍÐAÁFORM Hjá Skipasmiðjunni Herði hf. í Njarðvík stendur nú yfir smíði á rækju- og togveiðiskipi fyrir Þorstein hf. á (safirði. Að sögn Ólafs Sigtryggssonar framkv.stj. Harðar hf. er hér um að ræða 20 m langt og 5 m breitt skip og á smíði þess að vera lokið í vor. Skipið verður 2ja þilfara og um 70 tonn að stærð, það verður búið öllum ný- tísku togveiðibúnaði og mjög vel búið fiskileitar- og siglingatækjum og er nán- ast með sama búnað og togari. Með skipi þessu er verið að reyna að sameina lítið skip sem getur á vetrum veitt rækju inni á ísafjarðar- djúpi og getureinnig veriðá úthafsrækju á sumrin á djúpmiðum. Um fleiri áform sagði Ól- afurað þeirværu meðsamn ing um smíöi fyrir Akurnes- ing á stærra skipi, en beðið væri eftir svari frá kerfinu, og síðan eru þeir með áframhaldandi áform um raðsmíði, þ.e. að komast inn í þann hóþ sem fær að smíða svokölluð raðsmíða- skip, ,,ef þetta á ekki bara að vera prívat fyrir stóru smiðj- urnar þrjár, þ.e. Stálvík, Þorgeir og Ellert og Slipp- stöðina á Akureyri, en þann ig var þetta ekki fyrirhugað í upphafi," sagði Ólafur. Raðsmíðaskip þau sem Hörður hf. hefur fyrirhug- að að smíða eru 25.5 m löng og 7.6 m breiö og sést útlit þeirra á meðfylgjandi mynd. Er hér um að ræða teikningu Haröar hf., sem hönnuð er af Karli Lúðvíks- syni, skipaverkfræðingi, og því algjörlega þeirra hug- mynd. Raðsmíöaskip Harðar hf. er helmingi ódýrara en þau stóru skip sem hinar skipa- smíðastöðvarnar áforma. Samt er áætlað aö þessi skip geti fiskaö 70-80% af afla stærri skipanna. Ættu því skip Harðarað vera hag- kvæmari miðað viö sömu forsendur. - epj. Telknlng af raSamlbaaklpi HarSar hf.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.