Víkurfréttir - 10.03.1983, Page 1
Léleg aflabrögð
Eins og fram kemur í afla-
skýrslum frá Keflavík, Sand-
geröi og Grindavík, hafa afla-
brögð veriö fádæma léleg
þaö sem af er og í heildina
mun minni en á sama tíma í
fyrra, þrátt fyrir þaö að meiri-
hluti janúarmánaðar þá fór í
verkföll.
Ef skoðaður er afli ein-
stakra báta viröist Happasæll
KE 94 skera sig úr með 243.9
tonn, en þetta segir þó ekki
alla söguna, því nokkrir bát-
ar, s.s. Helgi S., hafa landað á
yfirstandandi vertíð einhverj-
um afla i Þorlákshöfn.
Þá má einnig hafa það
með, að nokkrir netabátar
eru á útilegu og koma því
með slægöan fisk að landi,
án þess að það komi fram í
aflaskýrslum, og því er sam-
anburður ekki réttur.
En þrátt fyrir það að dauft
sé í mönnum hljóðið varð-
andi aflabrögðin og fádæma
ótíð að undanförnu, líta
menn björtum augum á
komandi vikur með von um
betri vertíð. - epj.
Ljósm.: pket.
Niðurgreidd raforka?
Frá Keflavikurhöfn
Á fundi í rafveitunefnd
Keflavíkur 17. febr. sl. var raf-
veitustjóra falið að fá úr því
skorið, hvort rafveiturnar á
Suðurnesjum fengju raforku
til hitanotkunar niðurgreidda
sbr. skýrslu nefndar um
jöfnun upphitunarkostnaöar
í áföngum. Rafhitun á Siglu-
firði og Vestmannaeyjum er
t.d. þegar niöurgreidd, þrátt
fyrir að þar séu hitaveitur.
Meðan þessi könnun verð-
ur gerð leggur nefndin til að
leyfileg hækkun komi á alla
taxta, en hún var 23.1% frá 1.
febrúar 1983. Forsenda þess-
arar beiðni er að hækkun á
heildsöluverði varð 29%frá 1.
febrúar og annar rekstrar-
Sr. Jón Thorarensen heiðraður
Laugardaginn 5. marz sl.
stóðu Leikfélag Keflavíkurog
Bæjarbókasafnið fyrir kynn-
ingu á ritverkum sr. Jóns
Thorarensen í tilefni af 80ára
afmæli hans í október sl.
í upphafi flutti Andrés
Kristjánsson fyrrverandi rit-
stjóri, erindi um sr. Jón og rit-
störf hans og kom víða við.
Þórdís Þormóðsdóttir las úr
Útnesjamönnum, Guðriður
Magnúsdóttir úr Rauðskinnu
og Albert K. Sanders úr Litla
skinninu. Karlakór Keflavík-
ur söng Útnesjamenn eftir
Ólinu og Herdísi Andrésdæt-
ur, en þær eru frænkur sr.
Jóns. Leifur ísaksson, for-
maður SSS, flutti ávarp og
færði skáldinu Skarðsbók að
gjöf frá Sambandi sveitarfé-
laga á Suðurnesjum. Þórar-
inn St. Sigurðsson, sveitar-
stjóri í Höfnum, flutti einnig
ávarp og tilkynnti að sam-
þykkt hefði verið á hrepps-
nefndarfundi í Höfnum að
gera sr. Jón að heiöursborg-
ara Hafnahrepps.
Kynnir á samkomunni var
Hilmar Jónsson, bókavörður.
Að lokum flutti sr. Jón
nokkur þakkarorð. Sagði
hann m.a. að þetta væri í
fyrsta sinn sem sér væri
sýndur slíkur sómi opinber-
lega, og þætti sér þeim mun
vænna um það, sem hann
kæmi frá Suðurnesjamönn-
um.
Bókmenntakynningin var
allvel sótt og undirtektir
góðar.
E.J.
Sprengjuhótun
Um kl. hálf-sex mánudag-
inn 28. febr. sl. hringdi ung
karlmannsrödd í Verslunar-
bankann og tilkynnti að
sprengja myndi springa í
bankanum innan stundar.
Fór lögreglan í Keflavík
strax á staöinn og var hafist
handa við að flytja fólk út úr
bankanum, Bústoð og skrif-
stofum þeim sem í húsinu
eru.
Leituðu lögreglumenn síð-
an að sprengjunni í bankan-
um, en engin fannst. Skv. síð-
ustu fréttum hefur ekki
komist upp hver á símtaliö.
Andrés Kristján«aon flutti
ávarp um ritstörf Jóns
kostnaður fer sifellt hækk-
andi vegna verðbólgu.
Komið hafa fram óánægju-
raddir með mismunandi hita-
taxta á svæðinu. Rafveitu-
nefnd Keflavíkur leggur
áherslu á að unnið verði að
samræmingu allra raforku-
taxta á Suðurnesjum, þar
sem í Ijós hefur komið aö
nokkur munur er ennþá á
þeim.
Rafveitunefnd telur
eölilegt að rafveitan reyni aö
selja hitaorkuna eins hag-
kvæmt og hún getur, fyrir-
tækinu að skaðlausu. - epj.
Sjómælingar
í Helguvík
Að undanförnu hafa staðiö
yfir sjómælingar vegna bygg-
ingar væntanlegra hafnar-
mannvirkja í Helguvík.
Til að framkvæma mæling-
ar þessar hafa mælinga-
menn tekið á leigu björgun-
arbát Slysavarnafélagsins,
m.b. Gísla J. Johnsen. - epj.
Hentugt fyrir aldraða
epj.
Jón Thorarensen ásamt konu slnnl, Inglbjörgu, og dsstrum
Hilmar Hafsteinsson hefur hafið byggingu 8 fbúða sambýlishúss
að Birkiteig 4-6 í Keflavík. Er hér um að ræða íbúðir hentugarfyrir
aldraða. - epj/pket.
Næsta blað
kemur út
17. marz