Víkurfréttir - 24.03.1983, Qupperneq 12
12 Fimmtudagur 24. marz 1983
VÍKUR-fréttir
Atvinnuleysi á Suðurnesjum - Úrbætur:
Hvað getur þú gert?
Hver er aðalvandi at-
vinnulífs á Suöurnesjum?
Að mínu mati er það skortur
á fjölbreytni í atvinnulífinu á
meöal okkar sjálfra. Vissu-
lega má segja, aö þessi
staðhæfing sé ekki á rök-
um reist, aö ég gleymi aö
taka inn i dæmiö þá miklu
atvinnubót sem tengist og
hlýst af veru hulduliösins
uppi á hæöinni. En hve
lengi megum við njóta
heimsóknar þess, - því vit-
anlega er þaö gestur í okkar
landi. þótt viðhorfi Islend-
inga til þess megi deila i
þrennt: Andvígir, hlynntir,
kæra sig kollóttan.
Sjálfan tel ég mig í hópi
þeirra sem andvígir eru.
Ekki get ég veriö andvígur
mönnunum sjálfum sem
einstaklingum, heldur því
atvinnuleysi sem veröur
eftir brottför þeirra.
En það er með mig, sem
og svo marga aöra sem leit-
aö hafa í faöm gestanna, ég
sá mig knúinn til aö leita at-
vinnu þar, vegna þess hve
lítiö úrvaliö var hér í Kefla-
vík, auk þess sem launakjör
eru nokkru betri en t.d. í
fiskvinnslunni. En hve lengi
býöst þessi atvinna.
Nefnd á vegum Banda-
ríkjaþings var falið aö
kanna hve mikil þörf væri
fyrir hinar ýmsu her- og
njósnastöövar Bandaríkj-
anna utan eigin landsvæöis
og hver áhrif það heföi fyrir
„heimsfriöinn" annars veg-
ar og efnahagslíf heima
fyrir hins vegar, ef þessar
stöövar yröu lagöar niður.
Nefndin komst að niður-
stöðu:
,,Á tímum þeirrar miklu
tækni sem viö nú ráöum yfir
heyra þessar stöðvar sög-
unni til. Njósnahnettir í
geimnum geta gegnt við-
vörunarhlutverkinu mun
betur en stöövar á jöröu
niöri. Hvaö varðar þörfina
fyrir bandaríska hermenn í
fjarlægum löndum leggjum
viö til aö þeir veröi kallaöir
heim og stöövarnar aflagð-
ar fyrir 1985. Þessar að-
gerðir myndu hafa mjög
styrkjandi áhrif á banda-
rískt efnahagslíf. Minnk-
andi kostnaður viö varnir
landsins sem minnkaöi
skattálögur og yki kaup-
máttinn." (Newsweek).
Ef marka má þessar nið-
urstööur munu gestirnir
kveðja okkur fyrr en varir,
en hvaö verður um okkur
þá? Hér yröi algjör ringul-
reiö, atvinnuleysi illviöráð-
anlegt, fólksflótti og bæj-
arfélögin og stjórnir þeirra
kæmust í bobba viö lækk-
andi útsvarstekjur. Eigum
viö ekki aö byrgja brunninn,
svo ekki verði sllkt ástand?
Þjónustan viö gestina
hefur veriö aöalundirstaöa
lífs fjölmargra Suöurnesja-
búa, og margir telja hana
veröa til eilífðarnóns. Sú
staðreynd að þörf virðist
vera fyrir þessa þjónustu
hefur verið hinn mesti
Þrándur í Götu allrar heil-
brigðrar atvinnuþróunar
meöal íslenskra Suður-
nesjabúa. Þvl veröur
naumast á móti mælt, aðoft
þegar einhverjir framtaks-
samir hafa ætlaö sér aö
setja á stofn nýjan atvinnu-
rekstur, eöa aö efla þann
sem fyrir er, hefur fjárhags-
aðstoð viö þá veriö dregin í
hiö óendanlega, þannig aö
ekkert hefur oröið aö.
Nægir aö minnast á sauma-
stofuna sálugu, sem nokkr-
ar framsínar konur stofn-
uöu í Keflavík. Hugöust þær
þannig efla sitt atvinnuör-
yggi, jafnframt sem aukin
fjölbreytni fengist I atvinnu-
möguleika hér í bæ. En
engin fékkst fyrirgreiöslan.
Það er alkunna, að á ís-
landi hefur einn atvinnu-
vegur staöið undir þeirri
lifskjarabyltingu sem hér
hefur orðiö eftir aöra heims
styrjöldina. Hann heitirfisk-
veiðar og hefur veriö stund-
aöur aö ráði frá seinni helm-
ingi síöustu aldar. Þá komu
þilfarsskipin til meö aukinni
buröargetu sem og auknu
öryggi. Áriö 1904 kom fyrsti
togarinn, og enn fjölgar
þeim sem starfa viö sjávar-
útveg. Bændaliði fækkar,
því fólksflutningar til
strandar aukast.
Ég hef það eftir afa mín-
um, Gunnari heitnum Ólafs-
syni, sem lést á árinu 1980
eftir tæpra 90 ára tilveru, aö
kjörum fólks á fyrri hluta
aldarinnar og þeim síöari sé
ekki líkjandi saman.
Annar öldungur, Þórður
Kristinsson, 77 ára og starf-
ar sem ungur væri í Baldri
hf., sagði mér að breyting
hafi vart oröiö áSuöurnesj-
um fyrr en eftir aö kaninn
kom. Atvinnumöguleikar
hafi aukist svo um munaöi.
Vinna fékkst viö vegalagn-
ingu, flutninga, ýmsa
þjónustu svo og stjórnunar-
störf. En hér niöur frá var
ekkert að hafa nema fisk-
inn.
(máli öldunganna er mik-
ill fróðleikur um þaö, hvað
gestirnir hafa í raun breytt
miklu meö og í þessari
„heimsókn" sinni hingað á
Suöurnesin. En viö höfum
ekki nýtt okkur þessa
,,himnasendingu" sem
skyldi. Við hefðum átt aö
innheimta af þeim afnota-
gjald (gestatoll, eins og
gyöingar ku innheimta af
sínum gestum), og nota þaö
fétil uppbyggingaratvinnu-
Kfsins. Einnig væri sjálfsagt
og eölilegt, aö verktakarnir
flyttu ekki gróöann úr
byggðarlaginu, leggöu
hann heldur i atvinnuupp-
byggingarsjóö. Ef svona
heföi veriö aö farið væri
ástandiö ekki slíkt sem raun
ber. En ef til vill er ekki of
seint í rassinn gripiö, ein-
hverju má bjarga.
Ég átti tal við mann sem
rekur sitt eigiö fyrirtæki í
Keflavík og hefur gert í
nokkur ár. Hann tjáöi mér
aö þaö heföi ekki gengið
þrautalaust fyrir sig, aöal-
lega vegna lítils skilnings
bæjaryfirvalda. Viöhorf
þeirra viröist einkennast af
því, aö ekkert skuli aöstoöa
atvinnurekendur fyrr en
þeir hafi sannaö hvð f þeim
búi. Þessi maður hefur bar-
ist í bökkum, en af þraut-
seigju og eljusemi tekist aö
koma sér upp traustu smá-
fyrirtæki, sem veitir sex
manns atvinnu. Þetta hefur
tekist án nokkurrar fyrir-
greiöslu frá þvi opinbera.
Frétt hef ég af öörum,
reyndar hugvitsmanni, sem
vildi stækka viö sig, en gekk
í stöppum meö alla fyrir-
greiöslu, og hugðist því
flytja starfsemi sina annaö,
þar sem skilningur yröi
meiri. Þá fyrst tóku bæjar-
yfirvöld á sig rögg og veittu
honum þá aöstoö sem til
þurfti. Svona lagað megum
viö ekki láta líöast í okkar
litla bæjarfélagi. Viö þurf-
um aö neyta allra ráöa til að
efla og treysta okkar eigiö
atvinnulíf, því aö ekki vilj-
um viö til þess hugsa aö hér
veröi slíkt upplausnar-
ástand, og lýst var að
framan, ef brottför gest-
anna ber brátt aö.
Niöurlag
Væri ekki ráö að láta
gömul deilumál liggja milli
hluta, um hvort hér eigi að
vera herstöð eða ekki, því
ekki munu þeir sjá sér hag í
því að hafa hér njósnastöö
finnist önnur hagkvæmari
lausn, og hún viröist vera í
sjónmáli. Heldurskulum viö
klóra okkur í höföinu og
hugleiða: Er nokkurt vit í aö
vera að rífast um hin og
þessi mál, stendur nokkur
uppi sem sigurvegari aö rif-
rildinu afloknu? Væri ekki
nær aö lifa og stjórna þessu
samfélagi eins og full-
þroska menn?
Hvað get ég gert til að
bæta rekstur þessa samfé-
lags, muntu eflaust spyrja
sjálfan þig. Eflaust ekki
hætis hót. Nema þá aðeins
aö þú reyndir aö fá aöra til
liðs við þig, aö ryðja
hugmyndum þínum braut-
argengi. Samelnaöir stönd-
um vér, en sundraðir föllum
vér.
AUGLÝSING
um aöalskoöun bifreiöa í lögsagnarum-
dæmi Keflavíkur, Njarövíkur, Grinda-
víkur og Gullbringusýslu fyrir áriö 1983
Aðalskoðun bifreiða í Grindavík fer fram
dagana 28., 29. og 30. marz n.k. kl. 9-12 og
13-16 við lögreglustöðina í Grindavík.
11
Aðalskoðun í Keflavík
n.k. sem hér segir:
þriðjudaginn
miðvikudaginn
fimmtudaginn
föstudaginn
mánudaginn
þriðjudaginn
miðvikudaginn
fimmtudaginn
föstudaginn
mánudaginn
þriðjudaginn
miövikudaginn
föstudaginn
mánudaginn
þriðjudaginn
miðvikudaginn
fimmtudaginn
föstudaginn
hefst síðan 5. apríl
5. apri
aprí
apn
8. aprí
aprí
12. aprí
13. aprí
14. aprí
15. aprí
18. aprí
19. aprí
20. aprí
22. aprí
25. aprí
26. apri
27. apri
28. aprí
29. aprí
Ö- 1
ö- 101
ö- 201
ö- 301
ö- 401
ö- 501
ö- 601
Ö- 701
ö- 801
ö- 901
Ö-1001
Ö-1101
Ö-1201
Ö-1301
Ö-1401
Ö-1501
Ö-1601
Ö-1701
- ö- 100
- ö- 200
- ö- 300
- Ö- 400
- ö- 500
- Ö- 600
- ö- 700
- Ö- 800
- ö- 900
- Ö-1000
- Ö-1100
- Ö-1200
- Ö-1300
- Ö-1400
- Ö-1500
- Ö-1600
- Ö-1700
- Ö-1800
Skoðunin fer fram að Iðavöllum 4, Keflavík,
milli kl. 8-12 og 13-16.
Á sama stað og tíma fer fram aðalskoðun
annarra skráningarskyldra ökutækja, s.s.
bifhjóla og á eftirfarandi einnig við um um-
ráöamenn þeirra.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskírteini. Framvísa
skal og kvittun fyrir greiðslu bifreiðagjalda
og gildri ábyrgðartryggingu.
í skráningarskírteini bifreiðarinnar skal
vera áritun um aö aðalljós hennar hafi verið
stillt eftir 31. júlí 1982.
Vanræki einhver að færa bifreið sína til
skoðunar á auglýstum tíma, verður hann
látinn sæta ábyrgð að lögum og bifreiðin
tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst.
17. mars 1983.
Lögreglustjórinn í Keflavík,
Njarðvík, Grindavík og
Gullbringusýslu
Ólafur Þór Elrfksson
UPPBOÐ
Samkvæmt 42. gr. lögreglusamþykktar
fyrir Gullbringusýslu nr. 456 frá 1980 verð-
ur selt a opinberu uppboði þrjár hvítar ær,
ein svört og ein grá, og kollóttur hrútur.
Uppboðið fer fram við húsið Krapaskjól í
Hafnahreppi, þriðjudaginn 29. marz n.k. kl.
16, til lúkningar á greiðslu kostnaðar við
handsömun og fóðrun framangreinds
sauðfés.
Uppboðshaldarinn í Gullbringusýslu
Keflavíkurbær óskar að ráða starfskraft til
aðstoöar á skrifstofu félagsmálafulltrúa.
Upplýsingar um starfið veitir félagsmála-
fulltrúi í síma 1555.
Umsóknarfrestur er til 6. apríl n.k.
Félagsmálaráð
Keflavíkur