Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.1983, Síða 5

Víkurfréttir - 14.04.1983, Síða 5
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 14. apríl 1983 5 Níu netabátar staðnir að ólöglegum veiðum Einum að auki vísað í land vegna víta- verðs kæruleysis varðandi öryggisbúnað Níu netabátar, þar af 7 héðan af Suðurnesjum, voru staðnir að ólöglegum veiðum út af Reykjanesi á þriðjudagsmorgun eftir páska. Höfðu þeir „þjóf- startað" áðuren þorskveiði- banni lauk á hádegi. Þá var einum báti, Sæljóma GK 150 frá Sandgerði, vísað í Mannhæðar háar girðingar? Keflvíkingar, miklir bölv.. sóðar erum við og letingjar einnig. Alla vega er ekki hægt að hrósa okkur fyrir snyrtimennskuna þegar skoðuð er strandlengjan frá Básnum og fyrir Vatns- nesið. Þarna úir og grúir af alls kyns drasli, ísskápum, þvottavélum og öllu mögu- legu, vegna þess að við nennum ekki að fara með það nema eitt og eitt fet í stað þess að koma því út i Sorpeyðingarstöð. Ef einhvers staðar er autt svæði meðfram bænum, þarf um leið að eyðileggja það með þessu rusli, eða þá að girða svæðið af eins og gert var við Hraðfrystihús Keflavíkur og framan við Ungó og Keflavík hf. Ekki trúum við því hér á blaðinu, að í framtíðinni verði að reisa mannhæðar háar girðingar eða jafnvel ,,Berlínar-múra“ í krignum bæinn til þess að fólk nenni að koma sínu rusli á réttan stað. Vonandi tökum við á áður en það verður gert. epj. Dreginn í land af 3ja tonna trillu Sl. laugardagsmorgun fékk m.b. VikarÁrnason KE 121 net í skrúfuna út af Garðskaga, og við það gekk skrúfuöxullinn út þannig að skipið gat aðeins keyrt aftur á bak, og var þannig haldið af stað til Keflavíkur. En er báturinn var kominn inn undir Leiru stöðvaðist það alveg. Var þá fenginn 3ja tonna trillubátur, Þórir, til að fara út frá Keflavík og ná í Vikar Árnason. Gekk ferðin allvel, þrátt fyrir að stærðarmunur hafi verið rúmlega 13-fald- ur. Voru þeir komnirafturtil baka hálfum öðrum tíma eftir að þeir fóru úr höfn. Vikar Árnason er 40 tonna eikarbátur, og án efa er þetta stærsta sjóferðin sem þeir Davíð Eyrbekk og Valdimar Axelsson hafafar- ið á t/b Þóri KE 71. - egj. T/b Þórir KE 71 kemur tll hafnar mefi Vlkar Árnason, sem er rúm- lega 13 slnnum stærrl. land undir eftirliti Land- helgisgæslunnar vegna sama brots og einnig vegna vítaverðs kæruleysis varð- andi öryggisbúnað. Guðmundur Kjærnested hjá Landhelgisgæslunni sagði í viðtali við blaðið í síðustu viku, að þyrla Gæsl- unnar, Rán, hefði komið þarna að bátunum um kl. 9 um morguninn og hefðu þeir þá verið búnir að leggja, að undanskildum Sæljóma, sem vareingöngu kominn með bauju í sjó. Sagði Guðmundur að mál bátanna hefðu verið send fyrir sl. helgi til við- komandi yfirvalda, en bátar þessir eru Sigurborg AK 375. Arnar KE 260, Kristján KE 21, Sigurþór GK43, Sæ- mundur Sveinsson HF 85, Hrafn Sveinbjarnarson GK 11, Sveinn Guðmundsson GK315, JónGarðarKEI og Þorsteinn KE 10. Varðandi aðkomuna um borð í Sæljóma þá var hún hálf ömurleg. Björgunar- bátur haföi ekki verið skoð- aður síðan 1981, talstöð var biluð, engin neyðartalstöð um borð, einvörðungu ör- Knattspyrnumenn okkar á Suðurnesjum eru nú komnir áfulla ferð með bolt- ann og Suðurnesjamótið er nú komiö vel áleiðis. Þegar hafa verið leiknir 7 leikir. Auglýsið I Víkur- fréttum bylgjustöð var nothæf. Þá voru engin slökkvitæki finn- anleg og ekkert haffæris- skírteini af framangreind- um ástæöum. - epj. Úrslit leikja: Njarðvík-Hafnir ....... 2:0 Reynir S.-Grindavik . 4:0 Grindavík-Víöir ...... 0:1 Víðir-Reynir S........ 1:1 Hafnir-Víöir .......... 0:2 Njarðvík-Grindavik .. 1:0 Grindavík-Hafnir .... 4:0 Staðan í mótinu er því þessi: Víðir ........ 3 (4:1) 5 stig Njarðvík ... 2 (3:0) 4 stig Reynir..... 2 (5:1) 3 stig Grindavík .. 4 (4:6) 2 stig Hafnir ....... 3 (0:8) 0 stig Mótinu verður haldiö áfram um helgina. - pket. Suðurnesjamótið í knattspyrnu: Víðismenn efstir SUÐURNESJAMENN GEGN ÓSTJÓRN Almennur fundur um atvinnumálin og stjórn- málaviðhorfið verður haldinn í Bergás, fimmtudagskvöld 14. apríl kl. 20.30. Frummælendur: Fundarstjóri: Kjartan Jóhannsson Karl Steinar Guðnason Kristín H. Tryggvadóttir Gunnar Eyjólfsson, leikari Betri leiðir bjóðast. ALÞÝÐUFLOKKURINN Eflum einn flokk til ábyrgðar! Kjósum Sjálfstæðisflokkinn AUGLÝSING

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.