Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.1983, Side 13

Víkurfréttir - 14.04.1983, Side 13
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 14. apríl 1983 13 Hæfileikakeppnin í Bergás: Hver hreppir utanlandsferðina? Annar riðill hæfileika- keppninnar var háður í Bergás ekki alls fyrir löngu, og er pá aðeins eitt kvöld eftir í úrslitakeppnina, en það er einungis spurning hvort fleiri þátttakendur fást. Hvort sem það verða fleiri skemmtikraftar eða ekki, þáverðurúrslitakvöld- ið innan skamms og mun það koma fram í blaöinu hvenær það verður. Á síðasta skemmtikvöldi komu tvö atriði fram. Þrír drengir úr Keflavík komu fram með einn gítar og vöktu verðskuldaða athygli fyriratriðið. Hitt atriðiðsem vakti feikna kátínu, var lát- bragðsleikur og eftirherm- ur þeirra félaga, Viktors og Baldurs, og má segja að þeir drengir hafi farið á kostum. Þeir sem hafa áhuga á að koma fram á síðasta undan- úrslitakvöldinu (ef af því verður) geta látið skrá sig hjá Ella Grétars í síma 2589. pket. Baldur og Vlktor I hflrku formi. Slökkvitækja- þjónusta Suðurnesja Kolsýruhleðsla - Dufthleðsla Viðhald og viðgerðir á flestum tegundum slökkvitækja. Reykskynjarar - Rafhlöður Brunaslöngur - Slökkvitæki Uppsetning, ef óskað er Viðurkennd eftirlitsþjónusta handslökkvitækja í bátum og skipum. Slökkvitækjaþjónusta Suöurnesja Háaleitl 33 - Keflavík - Simi 2322 Athygllsverfi frammista&a hjá þessu unga triól. Bikarkeppni HSÍ: Reynir - Þór Ve. á þriðjudag kl. 21 Eins og kunnugt er þá komst handknattleikslið Reynis úr Sandgerði í 8 liða úrslit bikarkeppninnar í handknattleik. Nú fyrir stuttu var dregið og má segja að Reynis- menn hafi haft heppnma með sér, því þeir drógust á móti Þór frá Vestmannaeyj- um, sem lék í 2. deild ívetur, og eiga því góða möguleika að komast í 4 liða úrslit, sem yrði virkilega saga til næsta bæjar. Leikurinn verður í íþrótta- húsinu i Sandgerði á þriðju- daginn kl 21. Það er þvi vonandi að Sandgerðingar og Suðurnesjamenn komi og styðji sína menn og hvetji þá til sigurs. - pket. Hreinsið saltplanið íbúi við Hafnargötuna rétt neðan við Víkurbraut hafði samband við blaðið nýlega og kvartaöi sáran yfir slæmri umgengni að loknum losunum úr saltskipum við plan Saltsöl- unnar, þar sem losun á salti fer fram. Virðist slóðaskapur vera ríkjandi þarna, því ekki tæki þaö langan tíma aö ganga þannig frá planinu að umgengni væri ekki ábótavant, eins og nú er við aðalinnkeyrslu í bæinn. Skorum við á eigendur Saltsölunnar að sjá svo um að þetta endurtaki sig ekki. epj. Harpan tók niðri Þegar Harpa RE 342 var á leið úr Grindavíkurhöfn tók skipið niðri með þeim af- leiðingum að stýrið laskað- ist. Skipið komst að bryggju en svo dró björgunarskipið Goðinn Hörpunatil hafnarí Njarðvík þar sem gert var við skemmdir. Ástæðan fyrir því að skip- ið tók niðri var sú, að það fór út á fjöru og grunnsævi því mikiö. Meðfylgjandi mynd sem Valdimar Valsson tók, sýnir Goðann draga Hörpuna til Njarðvíkur. - pket. Aðalfundur Þroskahjálpar á Suðurnesjum Aðalfundur Þroskahjálp- ar á Suðurnesjum verður haldinn að Suðurvöllum 9 í Keflavík, fimmtudaginn 14. apríl n.k. kl. 20.30. Félagsmenn eru hvattirtil að mæta og eins að hvetja aðra til að gerast félagar á fundinum. Kartöflu garðar Þeir leigjendur garðlanda í bæjargörðum, sem vilja nytja garða sína áfram á sumri kom- anda, greiði leigugjald sitt til Áhaldahúss Keflavíkur, Vesturbraut 10, fyrir 1. maí. Að öðrum kosti verður garðurinn leigður öðrum. Garðyrkjustjóri Bílasprautun Suðurnesja óskar að ráða nú þegar mann, helst vanan undirbúningsvinnu. - Uppl. í síma 1081. Leið þjóðarinnar til bjartari framtíðar er leiö Sjálfstæðis- flokksins. Kjósum Sjálfstæðisflokkinn AUGLÝSING

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.