Víkurfréttir - 14.04.1983, Síða 13
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 14. apríl 1983 13
Hæfileikakeppnin í Bergás:
Hver hreppir utanlandsferðina?
Annar riðill hæfileika-
keppninnar var háður í
Bergás ekki alls fyrir löngu,
og er pá aðeins eitt kvöld
eftir í úrslitakeppnina, en
það er einungis spurning
hvort fleiri þátttakendur
fást. Hvort sem það verða
fleiri skemmtikraftar eða
ekki, þáverðurúrslitakvöld-
ið innan skamms og mun
það koma fram í blaöinu
hvenær það verður.
Á síðasta skemmtikvöldi
komu tvö atriði fram. Þrír
drengir úr Keflavík komu
fram með einn gítar og
vöktu verðskuldaða athygli
fyriratriðið. Hitt atriðiðsem
vakti feikna kátínu, var lát-
bragðsleikur og eftirherm-
ur þeirra félaga, Viktors og
Baldurs, og má segja að
þeir drengir hafi farið á
kostum.
Þeir sem hafa áhuga á að
koma fram á síðasta undan-
úrslitakvöldinu (ef af því
verður) geta látið skrá sig
hjá Ella Grétars í síma 2589.
pket.
Baldur og Vlktor I hflrku formi.
Slökkvitækja-
þjónusta
Suðurnesja
Kolsýruhleðsla - Dufthleðsla
Viðhald og viðgerðir á flestum
tegundum slökkvitækja.
Reykskynjarar - Rafhlöður
Brunaslöngur - Slökkvitæki
Uppsetning, ef óskað er
Viðurkennd eftirlitsþjónusta
handslökkvitækja í bátum og skipum.
Slökkvitækjaþjónusta Suöurnesja
Háaleitl 33 - Keflavík - Simi 2322
Athygllsverfi frammista&a hjá þessu unga triól.
Bikarkeppni HSÍ:
Reynir - Þór Ve. á
þriðjudag kl. 21
Eins og kunnugt er þá
komst handknattleikslið
Reynis úr Sandgerði í 8 liða
úrslit bikarkeppninnar í
handknattleik.
Nú fyrir stuttu var dregið
og má segja að Reynis-
menn hafi haft heppnma
með sér, því þeir drógust á
móti Þór frá Vestmannaeyj-
um, sem lék í 2. deild ívetur,
og eiga því góða möguleika
að komast í 4 liða úrslit, sem
yrði virkilega saga til næsta
bæjar.
Leikurinn verður í íþrótta-
húsinu i Sandgerði á þriðju-
daginn kl 21. Það er þvi
vonandi að Sandgerðingar
og Suðurnesjamenn komi
og styðji sína menn og
hvetji þá til sigurs. - pket.
Hreinsið
saltplanið
íbúi við Hafnargötuna
rétt neðan við Víkurbraut
hafði samband við blaðið
nýlega og kvartaöi sáran
yfir slæmri umgengni að
loknum losunum úr
saltskipum við plan Saltsöl-
unnar, þar sem losun á salti
fer fram.
Virðist slóðaskapur vera
ríkjandi þarna, því ekki
tæki þaö langan tíma aö
ganga þannig frá planinu
að umgengni væri ekki
ábótavant, eins og nú er við
aðalinnkeyrslu í bæinn.
Skorum við á eigendur
Saltsölunnar að sjá svo um
að þetta endurtaki sig ekki.
epj.
Harpan tók niðri
Þegar Harpa RE 342 var á
leið úr Grindavíkurhöfn tók
skipið niðri með þeim af-
leiðingum að stýrið laskað-
ist. Skipið komst að bryggju
en svo dró björgunarskipið
Goðinn Hörpunatil hafnarí
Njarðvík þar sem gert var
við skemmdir.
Ástæðan fyrir því að skip-
ið tók niðri var sú, að það fór
út á fjöru og grunnsævi því
mikiö.
Meðfylgjandi mynd sem
Valdimar Valsson tók, sýnir
Goðann draga Hörpuna til
Njarðvíkur. - pket.
Aðalfundur
Þroskahjálpar
á Suðurnesjum
Aðalfundur Þroskahjálp-
ar á Suðurnesjum verður
haldinn að Suðurvöllum 9 í
Keflavík, fimmtudaginn 14.
apríl n.k. kl. 20.30.
Félagsmenn eru hvattirtil
að mæta og eins að hvetja
aðra til að gerast félagar á
fundinum.
Kartöflu
garðar
Þeir leigjendur garðlanda í bæjargörðum,
sem vilja nytja garða sína áfram á sumri kom-
anda, greiði leigugjald sitt til Áhaldahúss
Keflavíkur, Vesturbraut 10, fyrir 1. maí. Að
öðrum kosti verður garðurinn leigður öðrum.
Garðyrkjustjóri
Bílasprautun Suðurnesja
óskar að ráða nú þegar mann, helst vanan
undirbúningsvinnu. - Uppl. í síma 1081.
Leið þjóðarinnar til
bjartari framtíðar er
leiö Sjálfstæðis-
flokksins.
Kjósum
Sjálfstæðisflokkinn
AUGLÝSING