Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.05.1983, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 05.05.1983, Blaðsíða 1
6 ÍSLENDINGAR HANDTEKNIR f ROCKVILLE MEÐ HASS Sátu að sumbli ásamt einum varnarliðsmanni í íbúð hans Sex (slendingar voru handteknir meö hass í fórum sínum í Rockville s.l. föstudag. Voru þeirstaddir í íbúö eins varnarliðsmanns og sátu þar ásamt banda- ríkjamanninum viö drykkju og neyslu fíkniefna. Hafði varnarliðsmaðurinn út- vegað brennivín og bjór en (slendingarnir höfðu komiö með hass sem þeir keyptu í Reykjavík. Höfðu þeir komið með einkabíl snemma um morguninn þar sem þeir höfðu verið á dansleik að Hótel Borg. Komust þeir í gegnum va rðh I iðið sem er í Rockville en þar voru bandaríkjamenn við gæslu og virðast þeirekki hafaséð neitt athugavert við komu mannanna og hleyptu þeim í gegn. _ Voru mennirnir færðir á lögreglustöðina í Keflavik þar sem þeir voru síðan yfirheyrðir en varnarliðið mun sjá um mál banda- ríkjamannsins. Þrír þessara manna hafa ekki komið við sögu vegna fíkniefnabrota hjá lögreglunni áður. pket. SANDGERÐI: TROLLBÁTAR MEÐ UPP í 40 TONN Dauft var hljóðið í Jóni Júlíussyni á hafnarviktinni í Sandgerði þegar við spurðum hann um afla- fréttir síðasta þriðjudag. Sagði hann að nokkrir bátar væru búnir að taka upp, einir 4-5 bátar. Nokkrir af þessum smærri eru farnir að búa sig út á rækjuna eru það 20 - 40 tonna bátar, og munu þeir hefja veiöar í dag. Sagði hann að það myndi ráðast eftir aflabrögðum nú fram að helgi hvenær restin Suðurnesjamenn gangi fyrir í Helguvík Þar sem undirbúnings- framkvæmdir eru að hefjast við Helguvík leggur bæjar- ráð Keflavíkur á það áherslu að Suðurnesjamenn og verktakar af Suðurnesjum sitji fyrir vinnu og verkum þar, að því er kemur fram í fundargerð ráðsins 28. apríl sl. - epj. Húsagerðin áformar byggingu 100 íbúða í vestasta hluta bæjarins af netabátunum taka upp og eins hvenær linubátarnir hætta. Aðeinssmáglæta var í aflanum s.l. mánudag en þá komust netabátarnir upp í þetta 4-13 tonn eftir tvær nætur. Er þetta mun skárra og almennara en veriö hefur undanfarnar vikur. Trollbátarnir hafa aftur á móti verið að fiska ágætlega, af blönduöum S.S.S.: Eiríkur ráðinn Fjórar umsóknir bárust um starf framkvæmdastjóra SSS. Óskuðu tveir umsækj- enda nafnleyndar, en hinir voru Eiríkur Alexanders- son, settur framkvæmda- stjóri SSS, og Pétur Kristj- ánsson, rekstrartæknifræð- ingur, búsettur í Svíþjóð. Á fundi stjórnar SSS nú nýlega var samþykkt að ráða Eirík Alexandersson sem framkvæmdastjóra SSS. - epj. fiski, þ.e. ýsu, karfa og þorski að litlum hluta, lönduðu 4 þeirra í Sandgerði a laugardag og voru þrír þeirra með frá 30 og upp í 38,5 tonn eftir fjögurra daga útivist. Er þetta mjög blandaður afli, koli, karfi, ufsi og ýsa. epj. Braust inn í fylleríi og stal fyrir 70 þús. kr. - Skilaði þýfinu daginn eftir Brotist var inn í verslun- ina SAFÍR aðfaranótt 1. mai og stolið skartgripum fyrir um 70 þúsund. Var þetta ungur maður sem framdi verknaðinn í fylleríi. Er hann vaknaði morguninn eftir skilaði hann öllu þýfinu til lögregl- unnar, sem ekki hafði fengið vitneskju um inn- brotið. Voru litlar sem eng- ar skemmdir unnar i versl- uninni. Bíl var stolið við Njarðvíkur- höfn s.l. föstudagskvöld, en eigandi bílsins varskipverji á Gígjunni. Hafði þjófurinn brotist inn í skipið fyrr um kvöldið og náð lyklum og stal bílnum síðan seinna um nóttina. Var maðurinn fyrst tekinn við ölvun við akstur en þá kom í Ijós að hann var á stolnum bíl. Var þjófurinn einnig skipverji á Gígjunni og hafði ætlað í bæinn á bílnum. Bíllinn er nokkuð skemmdur eftir þessa ökuferð skipverjans. pket. Auglýsendur athugið! Vegna uppstigningar- dags kemur næsta blað út miðvikudag- inn 11. maí. Siðasti skilafrestur á auglýsingum er til kl. 16, mánudaginn 9. maí n.k. Hiö glæsilega fjölbýlishús, sem Hólmgarö i Keflavik, er vel á veg Bygging eins glæsi- legasta fjölbýlishússins f Keflavík er nú vel á veg komin eins og sjá má á meðfylgjandi mynd ertekin var fyrir skömmu. Þetta stóra fjölbýlishús er staðsett við Hólmgarð 2 og verður þetta bæði íbúðahús og auk þess stór verslunar- miðstöð sem byggð verður í tengslum við húsið og mun opna á næsta ári. (búðirnar verða afhendar Húsageröin er aö byggja viö komiö. í sumar þ.e. fyrra stigahúsið og seinni helmingurinn um áramótin. Húsagerðin mun nú innan skamms hefja byggingu 100 íbúða í vestasta hluta bæjarins þ.e. á milli ystu húsanna og grjótgryfjunnar. Það verða því ekki mörg ár liðin þar til byggðin verður komin að hesthúsunum ef framhaldið verður svona. pket. Dimmision í Fjölbraut. gósm.:Pket.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.