Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.05.1983, Side 3

Víkurfréttir - 11.05.1983, Side 3
VÍKUR-ffréttir Miðvikudagur 11. maí 1983 3 Óskar Þórmundsson, fíkniefnarannsóknarlögreglumaður í viðtali: „Allt í lagi að stela frá Kananum“ „6 íslendingar handteknir í Rockville með hass“. Þessa fyrírsögn mátti sjá i siðasta tölublaði Vikur-frétta, en fikni- efnamál hafa verið mikið í fjölmiðlum undanfarið og flest allir viröast vera sammála um það, aö þróunin i þessum málum er geigvænleg og sé á eina leið, þ.e.: AÐ NEYSLA FÍKNIEFNA SÉ AÐ AUKAST. Til að geta veitt lesendum nánari upplýsingar um þessi mál fengum viö Óskar Þórmundsson, rannsóknarlögreglu- mann í viðtal, þar sem hann segir okkur nánar hvað sé aö ske i þessum málum í dag. Er notkun fikniefna að aukast hér á Suðurnesjum? ,,Já, tvímælalaust. Notk- unin er almennari núna er hún var á árum áður. At- hyglisvert er að aldurinn í þessu virðist hækka, þ.e.a.s. að þeir sem voru í þessu virðast ekki hætta, en það yngsta sem hefur verið viðriðið fíkniefni er svona 15-16 ára en hefur farið alveg niður í 14 ára, en það er sem betur fer sjaldgæft." koma öll af sömu plöntunni, Canabis, og hún er misjafn- lega sterk í sér, þ.e. eitur- efnin eða ofskynjunarefnin. En það sem er bannað og gerir vímugjafann er það eiturefni sem skammstafaö er T.H.C. og heitir Tedra Hydra Canabinol, og þaðer misjafnlega sterkt. Af þess- um þrem fyrrnefndu efnum er það marijuana sem hefur minnst af þessu eiturefni eða um 4%, í hassinu er það Óskar Þórmundsson með hinar ýmsu tegundir af fikniefnum Ertu með öðrum orðum að segja að sé maður kom- inn út i þetta þá losni maður ekki þaðan aftur? ,,Canabis-neysla er mest vanabindandi á sálræna sviðinu, þ.e. fólki langar að fara í þessa vímu þegar það er búið að gera það einu sinni út af áhrifum efnisins. Sem sagt, efnið er sálrænt vanabindandi en ekki líkamlega vanabindandi nema að mjög litlu leyti. Hver eru algengustu efn- in á markaðnum og hver eru hættulegust? ,,Canabis-efnin eru al- gengust, þ.e. hass, hassolía og marijuana. Þessi efni svona um 12-15%, en hass- olían er langsterkust og getur haft allt upp i 90% af THC. Þess má einnig geta, að alheimslæknaþingið gaf út þá samdóma yfirlýsingu ekki alls fyrir löngu, að Canabis-efnin væru mun hættulegri en haldiö var áður." Hvað með hættulegri efni eins og LSD og önnur hættuleg efni, er litið af þeim hér á landi? „LSD var hér á árum áður í kringum 1971 og alveg til 1976, en þá virðast íslend- ingar alveg hafa hætt notk- un þess, sem er mjög gott, því LSD er mjög sterkt of- skynjunarlyf og gersam- lega ruglar viðkomandi með þeim afleiðingum að allt snýst við og menn fara að sjá tóna og heyra liti og þá er fólk orðið svo ruglað, að það getur haldið að það sé fugl og því hoppað fram af húsþaki. Oft þegar fólk kemur saman til að neyta LSD, þá er yfirleítt einn með í hópnum sem ekki neytir og er bara til að passa liðið og er því nokkurs konar leiösögumaður hópsins. Kókain er efni sem er farið að bera meira á en áður, en það er mjög dýrt og kostar grammið um 3-4 þús. kr. Amfetamín (speed) hefur alltaf verið í gangi og morfín hefur alltaf verið misnotað, samanber alla þá þjófnaði í báta, en heróin höfum við verið nokkuð blessunarlega lausir við og þá erum við komnir að efn- Framh. á 9. siðu PASSAMYNDIR tilbúnar strax. Myndatökur við allra hæfi. nymynD Hafnargötu 26 - Keflavik - Simi 1016 Gengiö inn frá bilastæði. Eitt sinn náði Óskar 2'h kg af fikniefnum i einu, sem sjá má á þess- ari mynd. Ánœgóix vióskiptavinir erokkar auglýsing. Nú höiumviéselt íasteignir um öll Suournes í C > war „Segir þaóekki sitt! " / Rdógjöf / Rejrnskx / þjónusta Eignamiðlun Suðurnesja Hafnargötu 57 - Keflavík - Símar 3868 - 1700 5ára

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.