Víkurfréttir - 11.05.1983, Blaðsíða 6
6 Miðvikudagur 11. maí 1983
VÍKUR-fréttir
Frá Barnaskólanum í Keflavík
Skólaárið
1983 - 1984
Foreldrar,
athugið
Innritun 6 ára barna fer fram ískólanum vi6
Skólaveg, fimmtudaginn 19. maí og föstu-
daginn 20. maí kl. 10-12 og 13-14.
Foreldrar/forráöamenn barna í Keflavík
eru vinsamlega beðnir aö tilkynna
skrifstofu skólans aðsetursskipti eða flutn-
ing, standi það til hjá viðkomandi fyrir
næsta skólaár.
Skólastjóri
Fyrirbæna-
fundur
Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja heldur
fyrirbænafund 17. maí n.k. kl. 20.30 í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja. Miðillinn og fyrir-
lesarinn Jóna Rúna Kvaran mun annast
efni fundarins, miðlarnir Ósk Guðmunds-
dóttir og Ingibjörg Hjörleifsdóttir, ísafirði,
koma einnig fram. Sálrænt fólk frá ýmsum
stöðum af landinu mun taka þátt í fundin-
um undir handleiðslu Jónu Runu. Hlíf Kára
dóttir mun syngja fyrir fundarmenn við
undirleik Ólafs V. Albertssonar.
Stjórnin
LITLA LEIKFÉLAGIÐ, GARÐI
PILTUR OG STÚLKA
Höfundur: EMIL THORODDSEN
Lelkstjóri: GUNNAR EYJÓLFSSON
Litla leikfélagið í Garðin-
um frumsýndi Pilt og Stúlku
eftir Emil Thoroddsen (
Samkomuhúsinu á föstu-
dagskvöldið, við mjög góð-
ar undirtektir áhorfenda,
sem þökkuðu leikurum og
leikstjóra með langvinnu
lófataki að leikslokum.
Það þurfti vissulega kjark
til að ráöast i aö taka til
sýningar Pilt og Stúlku, af
hálfu L.L. Verkið er nokkuð
langt, tekur á þriðju klukku-
stund og yfir 20 hlutverk og
margar leikmyndir - á litlu
sviði. Auk þess gerist
leikur-inn í fortíðinni, sem
krefst sannrar leikmyndar
og klæðnaðar, sem erfitt er
getur reynst aö verða sér úti
um, og þetta tókst þeim LL-
mönnum að yfirstíga svo
sýningin var í hæsta máta
trúverðug.
Sumar persónurnar í
leiknum eru vandeöfarn-
ar og krefjast góðra leikara,
svo eftirvænting áhorfenda
var mikil hvernig til myndi
takastog þeirurðu ekki fyrir
vonbrigöum. Sýningin rann
létt í gegn, svo að segja frá
byrjun til enda. Auðséð er
að leikstjórinn, Gunnar Eyj-
ólfsson, hefur lagt mikla
alúð í verkið og getur vissu-
lega verið ánægður með ár-
angurinn af starfi sínu í
Garöinum.
Freistandi væri að fjalla
um frammistöðu hvers og
eins leikanda fyrir sig, - en
það yrði of langt mál, vegna
fjöldans, -en ístuttu máli þá
skiluðu allir hlutverkum
sínum mjög vel og fóru
sínum mjög vel og þótt svo
þeir færu sumir með fleira
Golfarar athugið
Nýkomið mikið úrval af golfvörum:
Kúlur frá kr. 29,00 - Kerrur - Pokar
Tí - Sólder
Einnig regngallar frá HENSON
og góður hlífðarfatnaður
frá DON CANO.
Hringbraut 96 - Keflavik
Siml 2006
Só/uð radial
sumardekk
Brekkustígur 37 Njarðvík. Sími 1399.
en eitt í leikritinu.
En svo aöeins sé vikiö að
viðamestu hlutverknum, þá
var Sigfús Dýrfjörö, sem aö
þessu sinni er inni á svið-
inu - óborganlegur í hlut-
verki GuömundaráBúrfelli,
hins kynlega kvists, sem var
Sviðsmyndir úr
Pilti og Stúlku
bæði rauðnefjaöur og
tannfár.
Bragi Einarsson tjáði vel
matgogginn Þorstein, sem
hugsaði vart um annað en
mat. Einnig fór hann með
hlutverk Jóns fyllibyttu og
sjóara af engu minni inn-
lifun.
Mæðgurnar Ingveldur í
Tungu og dóttir hennar
voru skemmtilegar í
meðförum mæðgnanna
Kolbrúnar Sigurðardóttur
og Svönu Sturludóttur,
„stúlkunnar" í leiknum. Þá
má geta Gróu á Leiti, sem
Ásta Hansdóttirfórvel með.
„Pilturinn" í leiknum var í
höndum Ólafs Sæmunds-
sonar, sem var mátulega
rómantískur og elskulegur,
eins og saklausir sveitapilt-
ar eiga að vera, en sigraði
réttlát ástin aö lokum.
Jogn Gregory Iskra var
skörulegur sem Möller
kaupmaður, bæði í fasi og
róm. John er Bandaríkja-
maður, búsettur í Garðinum
og með tilliti til þess að
hann hefur dvalist stutt á (s-
landi er frammistaða hans
enn athyglisverðari.
Ólafur Sigurðsson var
góður i hlutverki „fóstrans'
en náði sér ekki eins vel á
strik í kaupmannshamn-
um, - vantaði meira hrogna-
mál hjá Levin kallinum.
Ragnheiður Guðmunds-
dóttir tjáði vissulega yfir-
stéttarmerkilegheitin í hlut-
verki Maddömu Ludvigsen.
Leikmyndin var vel unnin
og var þar um hópvinnu að
ræða og búningar voru í
góðu samræmi við þann
tíma sem leikurinn gerist á.
Leikstjórinn, Gunnar Eyj-
ólfsson, ávarpaði gesti að
leikslokum. Lýsti hann mik-
illi ánægju með samstarfið
við LL, sem hefði verið ein-
staklega gott. Hann sagðist
fagna því hve leiklistin hefði
skotið mörgum frjósprotum
á Suðurnesjum, „en ég,
Keflvíkingurinn, er ættaður
úr Garðinum og Leirunni,"
og fögnuðu leikhúsgestir
þeim orðum með kröftugu
lófataki. - ná.
AUGLÝSINGASÍMINN
1717
AUGLÝSINGASÍMINN
QDO
Legg flísar og
marmara
ásamt
arinhleðslu.
Einnig alhliða
múrverk.
Þröstur Bjarnason
Múrarameistari
Hólabraut 16 - Siml 3532
Prjónakonur
Kaupum fallega vel prjónaða sjónvarps-
sokka, 60 cm langa.
Móttaka miðvikudaginn 18. maí kl. 13-15
að Iðavöllum 14b, Keflavík
ÍSLENZKUR MARKADUR HF.
rniismí