Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.05.1983, Síða 7

Víkurfréttir - 11.05.1983, Síða 7
VÍKUR-fréttir Miðvikudagur 11. maí 1983 7 Heilsugæslan, góðan dag .... Hver kannast ekki við þessa setningu, eöa öllu heldur rödd sem kemur í símann þegar þú hringir í 3360? Þú hringir vanalega ekki þangað nema að eitt- hvað ami að þér og þú þarfnast „viðgerðar". Þú sem sagt hringir í heilsugæsluna þegar þú ert lasinn og sþyrð hvort þú getir fengiö tíma hjá lækni. Símastúlkan svarar ansi elskulega, að því miöur sé það ekki hægt í dag, en hvernig væri að prófa á morgun? Jú, það er allt í lagi, klukkan hálf tíu skaltu mæta. Þú ert oröinn öllu skárri eftir að hafa talað við röddina á heilsugæslunni. En þú kemst fljótt að raun um að það er bara plat-bati og þú hringirafturogsegist vera öllu verri en fyrr, kominn með yfir fjörutíu stiga hita, svitnir eins og í vinnunni og sért á klósett- inu öllum stundum. Hún (röddin) spyr hvort þú hafir reynt aö liggja fyrir með heitan bakstur við magann. Þú segist ekki hafa eirð í þér að liggja fyrir, en þú viljirfá lækni í húsvitjun. Hann kemur bara ef þaö er eitt- hvað nauösynlegt, segir röddin þá. Þú segir það vera alveg bráðnauðsynlegt, þú getir vara ekki verið svona lengur. Röddin segir að þú verðir að hringja eftir kl. 5. Þú þakkar fyrir þig. Klukkan tifar áfram, mikið er tíminn alltaf lengi að líða þegar þú ert veikur. Jæja, þá er klukkan orðin fimm, þú þrífur símann upp og hringir. Símsvarinn talar við þig og gefur þér upp annað símanúmer. Þú hringir aftur, í það númer, annar símsvari svarar, þar sem segir að læknirinn sé farinn í vitjun upp í Grinda- Hvar er pósthúsið? Ég er einn þeirra sem mikið ferðast innalands, bæði starfs míns vegna og til að kynnast landinu okk- ar. Á þessum ferðum þarf ég oft á þjónustu pósthús- anna á hinum ýmsu stöðum að halda. Hér í Keflavík gekk mér mjög erfiðlegaaðfinna það, þó það hafi tekist að lokum, og má það furðu sæta að engin merking skuli vera á þessari nauðsynlegu stofn- un. Aðkomumaöur Vegna þessa bréfs höfðum við samband við Björgvin Lútherssonar símstöðvar- stjóra. Hann sagði að nú væri í pöntun Ijósaskilti með merkingu Pósts og Síma, og væru liðin 3-4 ár síðan pöntunin varlögð inn. En það sem helst hafi dregið afhendingu á skilt- unum væri sú reynsla sem væri hér við Hafnargötuna, þarsem Ijósaskilti fá yfirleitt ekki að vera í friði fyrir skemmdarvörgum. Þetta þætti sér mjög slæmt og hefði hann reynt ítrekað aö fá skilti þrátt fyrir þessa reyslu. Árangurinn væri sá, að nú fyrir haustiö yrði sett hér upp Ijósaskilti sem merkti staöinn vel. Að vísu hefðum við mastrið stóra, sem sést víöa aö, en það vissu ekki allir hvað það merkti, en yfir höfuð væri hann mótfall- inn gluggaskiltum. En eins og áður segir leysast þessi mál með haustinu. - epj. Tíðar uppákomur í Vitanum Sl. sunnudag var haldið upp á ársafmæli veitinga- hússins Vitans í Sandgerði meö kaffihlaðboröi, auk þess sem Bergþóra Árna- dóttir vísnasöngkona skemmti gestum meö söng sínum. Hefur rekstur vieitinga- staðarins gengiö nokkuð vel þetta fyrsta ár sitt, en veitingamaðurinn hefur bryddað upp á ýmsum uppákomum þennan tíma, t.d. hefur Bergþóra komið fram fjórum sinnum auk þess sem hún hefur komið TRAKTORSGRAFA MF 50 B Tek að mér alla almenna gröfuvinnu. Frlðbjðm BjðmMon Slml 3734 óvænt í hádegismatartím- um. í sumar hefur veriö ákveöið aö hafa kaffihlaö- borð alla sunnudaga og ættu Suðurnesjamenn að koma við á sunnudagsrúnt- inum og kynnast því. - epj. Bergþóra Árnadóttir skemmtir i Vitanum vík, já, þeir veröa vist veikir þar líka. Þú reynir aftur seinna, þá er læknirinn úti i Sandgerði, eða var það úti í Garði? svo á hann eftir að vitja inni í Vogum og suður í Höfnum. Jæja, þá getur hann líka farið að byrja á Njarövik og Keflavík, ef hann er þá ekki búinn með hluta af þeim vitjunum strax. Já, hugsar þú með þér, skyldu þeir ekki vera þreytt- ir þessir menn, vera allan daginn á fullu, í símanum, vitjunum, móttöku og verið að kvabba á þeim allan dag- inn? Ekki vildir þú vera í þeirra sporum, aldrei friður. Nei, þú einfaldlega hættir viö að reyna að ná í lækni, því þú veist aö þú ert vís með að vera oröinn góður þegar það loksins hefst að ná í hann. Eins og gamall vinur minn sagði: Hér eru læknarnir lausir við stress, þó líflegt sé hjá þeim að gera. Þeir dæma þig annað hvort ákveðiö-,,hress“, ellegar ,,finitó“, búinn að vera. P.S. Heyrðu annars, mér finnst það nú ansi slæmt ef íslendingar þurfa að fara að kenna Könunum að reykja hass. Kannskieggiðséfarið að kenna hænunni? 0.0.7. Bílasala Brynleifs Vatnsnesveg 29a - Keflavík - Sími 1081 Vegna eftirspurnar vantar t.d. Hondur, Mözdur, Saab og Toyotur árgerðir 1979 - ’82. Opið alla virka daga og laugardaga. [Bílasala Brynleifs Tilkynning frá Hitaveitu Suðurnesja DRÁTTARVEXTIR VERÐA INNHEIMTIR frá og raeð 15. maí 1983. Hitaveita Suðurnesja Næsta blað kemur út 19. maí „GLÓÐIN“ býður þér upp á: • Gómsaeta sjávarrétti • Girnilega kjötrétti • Ljúffengar kaffiveitingar • Glæsilegan salat-bar og síðast en ekki síst • Indælt starfsfólk og rómantískt umhverfi, sem ekki sinn líkan. Opið frá kl. 9-21.30 alla virka daga. Laugardaga og sunnudaga frá kl. 10.30-22.30. Hafnargötu 62 Keflavík NEI, NÚ FER ÉG í TRIMMIÐ. Allt í trimmið. Hafnargötu 54 - Símí 1112

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.