Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.05.1983, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 11.05.1983, Qupperneq 10
10 Miðvikudagur 11. maí 1983 VÍKUR-fréttir Meistarafélag bygginga- manna á Suðurnesjum ORLOFSHÚS Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í oriofshúsi félagsins, á skrifstofunni að Tjarnargötu 7, Keflavík, mánudaga og mið- víkudaga frá kl. 17-19. Stjórnin Um allt og ekki neitt.... Vorið er komið * NJARÐVÍK Kartöflu- garðar Kartöflugarðar verða leigðir út í ár eins og undanfarin ár. Þeir sem vilja halda görðum sínum frá sl. ári greiði leigu fyrir þá fyrir mánudaginn 16. maí n.k.,annarsverðaþeir ieigðir öðrum. Garðarnir eru 10X15 metrar að stærð og kostar leigan kr. 100. Bæjarstjóri Njarðvíkurbæjar Það er vor í huga mér. Mér líður alveg einstaklega vel og vildi óska þess, að voriö hefði sömu áhrif á ykkur. Hafið þið tekið eftir því, hve bókstaflega allt breytist, þegardaginntekur að lengja? Þó að ég sjálf þrái alltaf haustið og rökk- ur, láti mig dreyma um kertaljós og rómantík, jafnast ekkert á við komu vorsins. Er ekki gaman að sjá krakkana sippa og sparka bolta? Þau hafa hent frá sér lopapeysum og vettl- ingum. Stundum dettur mér i hug, aö þau hafi gjörsam- lega gleymt skólanum og prófunum. Unga fólkið sprangar nú um göturnar í bleikum og gulum búningum - meiraað segja í samlitum striga- skóm. Hér og þar má sjá hjónakorn í görðum sínum í undirbúningsvinnu. Þau krunka saman um útsæöið, laukana, fræin og moldina. Þarna bogra þau í tíma og ótíma, þartil árangurerfiðis þeirra kemur í Ijós. Oft er kvartað yfir bakveiki og strengjum, en hvaö er það miðaö við alla litadýrðina og uppskeruna, sem við þeim blasir um síðir? Hjóna- kornin sameinast í ham- ingju og gleði eftir allt moldar- og arfapúlið. KEFLAVÍK Fasteigna gjöld Síðari gjalddagi fasteignagjalda er 15. maí. Góðfúslega greiðið á gjalldaga og forðist þannig álagningu dráttarvaxta. Kosningaskjálftinn er lið- inn hjá. Að vanda eru 50% ánægðir - hinir óánægðir. Það er annars merkilegt, hvað þetta allt er fljótt að gleymast. En þeim körlum, sem munu sitja Alþingi, ætti að geta liðiö eitthvað betur. Þeir hafa nú hvorki meira né minna en 9 skvísur til að horfa á. Gæti þaö ekki haft góð áhrif á liðið? En eitthvað hlaut að koma í staðinn fyrir kosn- ingaskrifin. Stjórnarmynd- unarviðræöur hafa gjör- samlega horfið í skuggann fyrir honum „Scarsdale" - blessaöur sé hann. Nú þurf- um við ekki lengur að berj- ast við aukakílóin meö svelti, nú lesum við bara þessa ágætu bók. Það lítur helst út fyrir að lesturinn einn nægi, svo mögnuð er bókin. Við getum sleppt því að borða bara egg og grape, nú getum við lesið og borðað svo til hvað sem er, þ.e.a.s. með réttu hugar- fari og ákvarðanatöku. Ekki þurfum við að forð- ast GLÓÐNA hans Axels, því að þar er hinn girnileg- asti salatbar. Sund, göngu- feröir og íþróttir hjálpa mikið, en það er ekkert nýtt. Sem sagt: Niðurstaðan er og verður alltaf hin sama: Tökum jákvæðar ákvarð- anir, sem við teljum bestar fyrir okkur sjálf. Enginn annar gerir það fyrir okkur. Vorið, sólin og bjartsýnin hjálpa okkur til aö lifa heil- brigðu lífi. Kveð ykkur að sinni með brosi. Ykkar einlæg, KLEÓ Blómafræflarnir: Tveir söluaðilar á Suðurnesjum Eftir að síðasta tölublað kom út hafði Hólmar Magn- ússon samband við blaðið vegna fréttar um að Gísli Reimarsson væri sölumaö- ur fyrir blómafræfla hér á Suðurnesjum. Sagði Hólm- ar að málum væri þannig háttað, að hann væri hinn rétti sölumaður, þ.e. beint frá sölusamtökunum sjálf- um, en Gísli seldi hins vegar í gegnum sölumann sem væri í Reykjavík. Þá sagði Hólmar að ástæðan fyrir því að töflur þessar væru ekki seldar í búðum eða apótekum væri sú, að veriö væri að halda verðinu niðri, og því væri þetta sölukerfi notað. Um geymsluna sagði hann að með þessi lyf væri eins og mörg önnur, þau þyrfti að geyma í ísskáp, annaö væri það ekki. Einnig tók hann fram að í þessum töflum væri engin aukaefni, þau virkuðu eins og kvöldrósarolían umtal- aða, nema hvað blóma- fræflarnir hafa fleiri bæti- efni sem koma beint frá náttúrunni sjálfri. Að lokum sagðist Hólm- ar koma með blómafræfl- ana heim til fólks, ef það óskaði þess, en að undan- förnu hefur mikið færst í vöxt að hans sögn, að vinnuhópar sameinuðust um að kaupatöflur. Hægter að ná í Hólmar í síma 3445, sem er heimasími hans. Gísli Reimarsson hafði samband við blaðið og sagði aðafgefnutilefni vildi hann láta það koma fram, að hann starfaði alveg eins fyrir sölusamtökin eins og Hólmar, og gæti hann stað- fest það með framvísun samnings þar að lútandi. Þá sagöist Gísli vita til þess að fleiri söluaðilar væru hér á svæðinu en þessir tveir. - epj. Innheimta Keflavíkurbæjar Video-útibú Hef opnað videoleigu að Gerðavegi 14a í Garði (fyrir neð- an Samkomuhúsið). Er með útibú fyrir Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna í Reykjavík, Regnbogann, Háskólabíó o.fl. Gott úrval í BETA og VHS. ATH: Nýjar myndir vikulega, með og án texta. Leigi einnig út videotæki og sjónvarpsspil. Opið mánudaga-föstudaga kl. 18-22 Laugardaga og sunnudaga kl. 14-21. Video-útibúið Garði - Sími 7180 Suðurnesja- mær ífegurðar- samkeppni Föstudaginn 13. maí fer fram i Broadway kynning á þeim stúlkum sem taka þátt í keppninni um titilinn Feg- urðardrottning (slands, en val á henni mun fara fram á sama stað þann 20. maí. 10 stúlkur hafa verið valdar til að taka þátt í keppninni, en ein þeirra er Suðurnesjamær, Hulda Lárusdóttir, fædd 22. jan. 1965 í Keflavík og alin upp í Njarðvík. Hún vinnurviðaf- greiðslustörf í Safír f.h. og í Poseidon e.h., og auk þess er hún þátttakandi í tísku- sýningarhópnum ,,VIГ. epj.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.