Víkurfréttir - 11.05.1983, Síða 12
Miðvikudagur 11. maí 1983
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Hafnargötu 32, II. hæð. - Sími 1717.
SPARISJÓÐURINN
Keflavík
Síml 2800
NJarövík
Sími 3800
Garöi
Síml 7100
Sigurvegararnir Ómar og Jón Ragnarssynir á fullri feró.
Eika-grill rall hjá Aksturs-
íþróttafélagi Suðurnesja
Akstursíþróttafélag Suð- I Eika-grill rall. Keppnin var | Hinir kunnu bræður, Ómar
urnesja hélt sitt fyrsta rall um 280 km löng og þar af og Jón Ragnarssynir, sigr-
um síðustu helgi, svonefnt | voru sérleiðir um 114 km. I uðu í rallinu, en rall þetta er
það fyrsta í stigakeppninni
um (slandsmeistaratitilinn.
Fyrsti bíllinn var ræstur
kl. 7 á laugardagsmorgun
frá Tollvörugeymslunni í
Keflavík og þaðan var ekið
yfir Stapa og síöan hjá Sel-
tjörn. Frá Seltjörn var ekið
út á Reykjanes, en það var
sérleiö, að Grindavík. Frá
Grindavík var ekið út á
(sólfsskálaveg og snúið þar
við og (sólfsskálavegur ek-
inn til baka aftur.
20 þátttakendur hófu
keppni í Eika-grill rallinu,
en 13 luku keppni eftir
harða baráttu og fór svo að
Ómar og Jón komu fyrstir í
mark á Renault. ( öðru sæti
urðu þeir Halldór Úlfarsson
og Tryggvi Aðalsteinsson á
Toyota, og í þriðja sæti
urðu Steingrímur og Svavar
á Datsun. (fjórða sæti urðu
þeir Jón S. Halldórsson og
Hjalti Hafsteinsson á BMW.
pket.
KARLAKÓR KEFLAVÍKUR:
Fjölbreytt efnisval
á tónleikunum n.k. þriöjudag og miðvikudag
( ávarpi formanns Karla-
kórs Keflavíkur, Jóhanns
Líndal, í söngskrá fyrir tón-
leika 17. og 18. þ.m., kemur
fram að í tilefni 30 ára af-
mælis kórsins 1. des. n.k.
hafi verið brugðið út af
þeirri venju aö syngja ein-
göngu hefðbundin karla-
kórslög, heldur verði einnig
sungin 7 lög eftir unga kefl-
víska tónlistarmenn, og séu
sumir textanna einnig eftir
Suöurnesjamenn. Lögin út-
setti stjórnandinn, Eiríkur
Árni Sigtryggsson.
Grunnskólinn í Keflavík:
Prófin byrjuðu í gær
Próf eru byrjuð í öllum
skólum landsins, en í gær
var fyrsta prófið í Grunn-
skólanum í Keflavík, en síð-
asti kennsludagur var sl.
fimmtudag og var auövitað
haldið upp á það með
pompi og prakt með
skemmtun, sem nemendur
skólans héldu í skólanum
þar sem kennarar voru
einnig þátttakendur. Stóð
sú skemmtun fram eftir degi
en til skemmtunar voru
ýmis uppátæki nemenda,
mælskukeppni og ýmisiegt
fleira. Að lokum var disko-
tek um kvöldiö.
Það má því segja að þaö
hafi verið önnur og betri
hegðun hjá krökkunum en í
fyrra, sem ekki skal tiundað
hér, en víst er að þetta fór
allt fram með sóma og eiga
krakkarnir hrós skilið fyrir
framtak sitt á síðasta skóla-
degi sínum. - pket.
Viktor Kjartansson vann mælskukeppnina, en auk þess hlaut hann
aðra viöurkenningu, eins og sjá má á myndinni.
Einsöngvarar að þessu
sinni eru Jón Kristinsson,
Sverrir Guðmundsson,
Steinn Erlingsson, Sævar
Helgason og Haukur Þórð-
arson. Undirleikarar eru
Ragnheiöur Skúladóttir,
Finnbogi Kjartansson og
Magnús Kjartansson.
Fram kemur að starfsemi
kórsins hafi verið með
ágætum á siöasta ári. Farið
var til Austfjarða sl. vor.
sungnir 3 konsertar þar.
Arshátíð kórsins varhaldin í
fyrsta skipti í félagsheimil-
inu í vetur, en áætlað er að
Ijúka við efri hæðina nú í
sumar og taka hana í notk-
un formlega þann 1. desem-
ber n.k. á 30 ára afmælinu.
jl/epj.
ARNEY KE 50 AFLA-
HÆST Á SVÆÐINU
Annars staöar í blaðinu er
birt aflaskýrslan fyrir
vertíðina sem nú er að
Ijúka. Eins og áður veröur
að leggja saman tölur frá
Keflavík, Sandgeröi, Grinda
vík og jafnvel Þorlákshöfn
til að sjá hverjar aflatölur
einstakra báta eru.
Blaöinu hefur tekist að
afla talna yfir flesta Suður-
nesjabáta, þó með þeirri
undantekningu að í afla-
skýrslunni frá Grindavík
vantar tölur úr janúar.
Stafar þetta af því að á haf n-
arvigtinni þar er ekki gefin
út helldarskýrsla, heldur
aðeins skýrsla yfir hvern
mánuð og hefur okkur ekki
tekist að fá janúarskýrsl-
una til aö leggja við hinar
tölurnar.
Fljótt á litið virðist þó vera
svo, að af Sandgerðisbátum
sé Arney KE 50 aflahæst
með 629 tonn og af Kefla-
víkurbátum sé það Happa-
sæll KE 94 með 527 tonn.
Þessar tölur eru þó með
þeim fyrirvara að einhver
annar bátur hafi landað afla
í Grindavík í janúar, sem
getur breytt dæminu. - epj.
Spurningin:
Er neysla fíkniefna
að aukast?
Erna Árnadóttir:
,,Ég hef ekki hugmynd
um það, gæti þó ímyndað
mér það."
Sigurður Jónsson:
,,Ég hef ekki orðið var við
það.“
Kristján Hansson:
,,Ég vona ekki.“
Gunnar Sveinsson:
,,Mér er ekki kunnugt um
það.“