Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.05.1983, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 11.05.1983, Blaðsíða 12
Miðvikudagur 11. maí 1983 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Hafnargötu 32, II. hæð. - Sími 1717. SPARISJÓÐURINN Keflavík Síml 2800 NJarövík Sími 3800 Garöi Síml 7100 Sigurvegararnir Ómar og Jón Ragnarssynir á fullri feró. Eika-grill rall hjá Aksturs- íþróttafélagi Suðurnesja Akstursíþróttafélag Suð- I Eika-grill rall. Keppnin var | Hinir kunnu bræður, Ómar urnesja hélt sitt fyrsta rall um 280 km löng og þar af og Jón Ragnarssynir, sigr- um síðustu helgi, svonefnt | voru sérleiðir um 114 km. I uðu í rallinu, en rall þetta er það fyrsta í stigakeppninni um (slandsmeistaratitilinn. Fyrsti bíllinn var ræstur kl. 7 á laugardagsmorgun frá Tollvörugeymslunni í Keflavík og þaðan var ekið yfir Stapa og síöan hjá Sel- tjörn. Frá Seltjörn var ekið út á Reykjanes, en það var sérleiö, að Grindavík. Frá Grindavík var ekið út á (sólfsskálaveg og snúið þar við og (sólfsskálavegur ek- inn til baka aftur. 20 þátttakendur hófu keppni í Eika-grill rallinu, en 13 luku keppni eftir harða baráttu og fór svo að Ómar og Jón komu fyrstir í mark á Renault. ( öðru sæti urðu þeir Halldór Úlfarsson og Tryggvi Aðalsteinsson á Toyota, og í þriðja sæti urðu Steingrímur og Svavar á Datsun. (fjórða sæti urðu þeir Jón S. Halldórsson og Hjalti Hafsteinsson á BMW. pket. KARLAKÓR KEFLAVÍKUR: Fjölbreytt efnisval á tónleikunum n.k. þriöjudag og miðvikudag ( ávarpi formanns Karla- kórs Keflavíkur, Jóhanns Líndal, í söngskrá fyrir tón- leika 17. og 18. þ.m., kemur fram að í tilefni 30 ára af- mælis kórsins 1. des. n.k. hafi verið brugðið út af þeirri venju aö syngja ein- göngu hefðbundin karla- kórslög, heldur verði einnig sungin 7 lög eftir unga kefl- víska tónlistarmenn, og séu sumir textanna einnig eftir Suöurnesjamenn. Lögin út- setti stjórnandinn, Eiríkur Árni Sigtryggsson. Grunnskólinn í Keflavík: Prófin byrjuðu í gær Próf eru byrjuð í öllum skólum landsins, en í gær var fyrsta prófið í Grunn- skólanum í Keflavík, en síð- asti kennsludagur var sl. fimmtudag og var auövitað haldið upp á það með pompi og prakt með skemmtun, sem nemendur skólans héldu í skólanum þar sem kennarar voru einnig þátttakendur. Stóð sú skemmtun fram eftir degi en til skemmtunar voru ýmis uppátæki nemenda, mælskukeppni og ýmisiegt fleira. Að lokum var disko- tek um kvöldiö. Það má því segja að þaö hafi verið önnur og betri hegðun hjá krökkunum en í fyrra, sem ekki skal tiundað hér, en víst er að þetta fór allt fram með sóma og eiga krakkarnir hrós skilið fyrir framtak sitt á síðasta skóla- degi sínum. - pket. Viktor Kjartansson vann mælskukeppnina, en auk þess hlaut hann aðra viöurkenningu, eins og sjá má á myndinni. Einsöngvarar að þessu sinni eru Jón Kristinsson, Sverrir Guðmundsson, Steinn Erlingsson, Sævar Helgason og Haukur Þórð- arson. Undirleikarar eru Ragnheiöur Skúladóttir, Finnbogi Kjartansson og Magnús Kjartansson. Fram kemur að starfsemi kórsins hafi verið með ágætum á siöasta ári. Farið var til Austfjarða sl. vor. sungnir 3 konsertar þar. Arshátíð kórsins varhaldin í fyrsta skipti í félagsheimil- inu í vetur, en áætlað er að Ijúka við efri hæðina nú í sumar og taka hana í notk- un formlega þann 1. desem- ber n.k. á 30 ára afmælinu. jl/epj. ARNEY KE 50 AFLA- HÆST Á SVÆÐINU Annars staöar í blaðinu er birt aflaskýrslan fyrir vertíðina sem nú er að Ijúka. Eins og áður veröur að leggja saman tölur frá Keflavík, Sandgeröi, Grinda vík og jafnvel Þorlákshöfn til að sjá hverjar aflatölur einstakra báta eru. Blaöinu hefur tekist að afla talna yfir flesta Suður- nesjabáta, þó með þeirri undantekningu að í afla- skýrslunni frá Grindavík vantar tölur úr janúar. Stafar þetta af því að á haf n- arvigtinni þar er ekki gefin út helldarskýrsla, heldur aðeins skýrsla yfir hvern mánuð og hefur okkur ekki tekist að fá janúarskýrsl- una til aö leggja við hinar tölurnar. Fljótt á litið virðist þó vera svo, að af Sandgerðisbátum sé Arney KE 50 aflahæst með 629 tonn og af Kefla- víkurbátum sé það Happa- sæll KE 94 með 527 tonn. Þessar tölur eru þó með þeim fyrirvara að einhver annar bátur hafi landað afla í Grindavík í janúar, sem getur breytt dæminu. - epj. Spurningin: Er neysla fíkniefna að aukast? Erna Árnadóttir: ,,Ég hef ekki hugmynd um það, gæti þó ímyndað mér það." Sigurður Jónsson: ,,Ég hef ekki orðið var við það.“ Kristján Hansson: ,,Ég vona ekki.“ Gunnar Sveinsson: ,,Mér er ekki kunnugt um það.“

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.