Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.05.1983, Page 1

Víkurfréttir - 19.05.1983, Page 1
MILLJÓNATJÓN er stórbruni varð Stórbruni varö í frysti- húsi Keflavíkur hf. sl. þriðjudagskvöld ereldur kom upp í ísklefa húss- ins sem staösettur er í suðurenda hússins. Allt tiltækt slökkvilið var þegar kallað út og þegar leið á kom Slökkvilið Mið neshrepps til hjálpar og voru um 50-60 slökkvi- líðsmenn að störfum, og einnig kom aðstoö frá slökkviliöinu á Keflavík- urflugvelli sem kom með stóran tankbíl, en mjög illa gekk að ráöa niður- lögum eldsins, sem breiddist út um alltfrysti- húsiö með lofti, en með- fram allri lengjunni voru umbúðageymslur sem eldurinn læsti sig ( og varð húsiö fljótt orðiö al- elda. Eftir fjögurra tíma slökkvistarf eða um mið- nætti tókst loks að ráða niöurlögum eldsins að mestu. Frystihúsið er mjög mikið skemmt, en þó slapp norðurendi hússins undan eldin- um þarsem flökunarvél- ar eru staðsettar. Einnig sluþpu frystitæki og pressur nokkurn veginn frá eldinum en þó kom þar mikiil reykur og vatn. Aöstaða starfsfólks slaþp einnig, beitningar- aðstaða og humar- vinnslan. Óvíst er aö birgðir af frosnum fiski, um 13.000 kassar, hafi sloppið, en þær voru í stærsta frysti- klefa hússins, en þegar blaðiö fór í prentun í gær var það óljóst. Verðmæti Þessi mynd var tekin skömmu ettir aö slökkviliöiö kom á vettvang. Eins og sjá má myndaöist mikill reykur sem lagöist ytir bæinn meö hjálp noröanáttarinnar og olli tjóni á nærliggjandi húsum. kassa eru um milljónir króna þessa 18-20 virði. Tjóniö skiptir tugum milljóna á húseign og vélabúnaði, en hjá fyrir- tækinu vinna um 120 manns og um 60-70 skólakrakkar yfir sumar- tímann, og Ijóst er að margir munu missa atvinnu sína um óákveð- inn tima. Eldsupptök eru óljós ennþá, en taliö er liklegt að kviknað hafi í út frá rafmagni. - pket. í Keflavík hf. „Gengið“ ... á móti sól Ljósm.: pket. Ljótt athæfi við 7 ára dre Seinni partinn sl. sunnu- dag voru tveir 10 ára dreng- ir og einn 11 ára uppvísir að Ijótu athæfi viö 7 ára dreng, í námunda við Fiskiöjuna í Keflavík. í upphafi voru þeir að leika sér að binda hver ann- an, að því er fram kom við yfirheyrslu yfir drengjun- um, inni í gamla dekkja- verkstæðinu, og endaði sá leikur með því að þeir taka þann litla óblíðum höndum. Píndu þeir hann fyrst og fóru síðan með hann niður fyrir húsið og hentu honum í sjóinn. Að sögn Víkings Sveins- sonar, rannsóknarlögreglu- manns, hafa þeir viður- kennt að hafa síðan haldið honum undir ræsi þar sem m.a. er afrennsli frá Hita- veitunni, til að hlýja honum eftir sjóbaðið, en síöan var hann barinn með bareflum, jafnframt þvi sem þeir spörkuðu í hann. Stórsér á drengnum og var farið með hann til læknis, en hann var orðinn mjög kaldur og illa haldinn eftir að hafa veriö notaður sem píslarvottur í þessum Ijóta leik. - epj. Hór fyrir neöan Fiskiöjuna átti atburöurinn sór staö. gatnamót Kirkjuvegar og Vesturbrautar, þar sem bill og mótorhjól lentu i árekstri með þeim afleiðingum að annar drengjanna sem voru á hjólinu varsendurísjúkra- hús og gert að meiðslum hans, en hann mun hafa Framh. á 9. sfðu Árekstraalda í kjölfar hækkandi sólar: 4 óhöpp sama daginn Sl. mánudagur var svo sannarlega annadagur hjá lögreglunni í Keflavík, því hvorki fleiri né færri en 4 óhöpp áttu sér stað þann dag. Um morguninn eða rétt fyrir hádegi ók ungur drengur á léttu bifhjóli aftan á bíl. Slapp hann ómeiddur og bíllinn lítið skemmdur. Rétt eftir hádegi var síöan bilvelta við gatnamót Flug- vallarvegar og Sunnubraut- ar. Líkleg orsök veltunnarer of hraður akstur. Þriðja óhapp dagsins var er kyrrstæður bíll rann úr bílastæði fyrir framan Stapafell og rann á annan kyrrstæðan bíl hinum megin við götuna. Eru bíl- arnir ekki mikið skemmdir. ( eftirmiðdaginn var síð- an umferðaróhapp við

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.