Víkurfréttir - 27.05.1983, Side 1
Atvinnumálanefnd Suðurnesja:
Um 13.3 milljóna tap hjá H.K.
Stofnaður verði Iðnþró-
unarsjóður Suðurnesja
Atvinnumálanefnd Suö-
urnesja gekkst ekki alis fyrir
löngu fyrir fundi með full-
trúum sveitarfélaganna á
Suðurnesjum þar sem
kynntar voru reglugerðir
iðnþróunarsjóða sem fyrir
eru í landinu, en þeir eru á
Suðurlandi og Austurlandi
og voru stofnaðir nú fyrir
stuttu.
Stefnt er að því að stofn-
aður verði iðnþróunarsjóð-
ur hér á Suðurnesjum og
munu sveitarfélögin leggja
ákveðið framlag í sjóðinn á
ári hverju. - pket.
Taka þátt í iðnsýningu
( nafni SSS ákváðu iðn-
fyrirtæki á Suðurnesjum að
taka þátt í iðnsýningunni á
vegum F.(.(. sem halda á í
Laugardalshöllinni á tíma-
bilinu 19. ágúst til 4. sept-
ember 1983.
Fyrirtækin standa sjálf
undir kostnaði við sýning-
arsvæðið, en SSS hefur
kostað starfskrafta sem
unnið hafa að samræmingu
og undirbúningi að þátt-
töku fyrirtækja á sýning-
unni.
Nú þegar er komið módel
að sameiginlegum sýning-
arbás, sem hlotið hefur
góðar móttökur þátttöku-
aðila. Hugmyndir hafa
komið fram um hugsanlegt
trekkiafl að svæðinu. ( því
sambandi hefur verið nefnt
að staðsetja módel af Bláa
lóninu í þessum sameigin-
lega bás. - epj.
Kaupir Keflavíkurbær Birkiteig 4-6?
Eins og sést hefur í mörg-
um undanförnum tölublöð-
um hefur Hilmar Hafsteins-
son verktaki úr Njarðvík
gengið illa aö selja íbúðir
þær sem hann er að byggja
að Birkiteig 4-6 í Keflavík.
Er það haft eftir Guðjóni
Stéfánssyni, formanni bygg
inganefndar fyrir aldraða,
hér í blaðinu fyrir stuttu, að
það væri mjög slæmt ef
þessar ibúðir færu í frjálsa
sölu, en hingað til hafa þær
verið auglýstar sem heppi-
legar fyrir aldraða.
Framhald þessa máls er
að Hilmar hefur nú boöið
Keflavíkurbæ íbúðirnar til
kaups, og á fundi bæjar-
ráðs nýlega var málinu vís-
að til bygginganefndarinn-
ar, sem tók það til umræöu
á fundi sínum 6. maí sl. og
var eftirfarandi bókað um
málið:
,,Tekið var fyrir bréf frá
Hilmari Hafsteinssyni varð-
andi sölu íbúða á Birkiteig,
sem bæjarráð vísaöi til
nefndarinnar. Til þessa
tíma hafa þessar íbúðir ver-
ið auglýstar sem mjög
hepþilegar fyrir aldraða.
Stærðin á hverri íbúð er 66
ferm. auk sameignar. Þá
fylgir einnig hverri ibúð
geymsla íkjallara, þurrkher-
bergi og föndurherbergi, 45
ferm. í hvoru húsi. ( húsinu
eru 8 íbúðir, en ein hefur
þegar verið seld.
Nefndin telur ibúðir þess-
ar mjög hentugar fyrir full-
orðið fólk og því mikilvægt
að þær nýtist sem slíkar.
Þó erfiðlega hafi gengið
með sölu íbúðanna hingað
til, telur nefndin að annað
viðhorf kunni að skapast
þegar nær dregur afhend-
ingartima þeirra, sem
áætlaður er 1. ágúst. Þess
vegna sé mikilvægt að
reyna að brúa fjárhagslega
það bil sem á vantar til að
Ijúka við húsið.
Varðandi hugsanleg
kaup bæjarins á íbúðunum,
vill nefndin taka fram, að
hún telur nauðsynlegt að fá
sem fyrst niðurstöðu varð-
andi áframhaldandi leigu á
Hringbraut 57, hvort fram-
lenging fáist á leigusamn-
ingi, og ef ekki, þá verði
kannaðir möguleikar á
kaupum á Birkiteig 4-6 eða
sambærrilegri eign". - epj.
Næsta blað
kemur út
fimmtudaginn
2. júní.
Snerting
Rekstrarhalli hjá Hrað-
frystihúsi Keflavíkur hf. á sl.
ári varð rösklega 13.3 millj.
kr., að því er fram kom á
aðalfundi Kaupfélags Suð-
urnesja, sem haldinn var 14.
maí sl. Afskriftir námu rúm-
lega 7 milljónum kr. en gíf-
urlegur fjármagnskostnað-
ur var sagður aðal orsökin
fyrir þessum mikla rekstrar-
halla, en fyrirtækið hefur
mikið verið lokað eins og
Ljósm.: epj.
kunnugt er m.a. af þessum
ástæðum.
Hraðfrystihúsið rak tvo
togara á árinu, b/v Aðalvik
og b/v Bergvík, og keypti
hlut Andra hf. og Einars
Guðmundssonar í m/b Kefl-
víkingi KE 100, eða 50%.
Hinn helminginn á Fiskiðj-
an hf.
Jón Benediktsson út-
gerðarstjóri hætti störfum
hjá fyrirtækinu 15. október.
Davíð Guðmundsson
aðstoðarframkvæmdastjóri
hætti störfum 1. október, og
Benedikt Jónsson lét af
störfum sem framkvæmda-
stjóri 1. nóvember, en starf-
ar áfram hjá fyrirtækinu.
Ráðinn var framkvæmda-
stjóri Guðmundur Stefán
Maríasson, og tók hann til
starfa 1. október. - epj.
Eiga heima í nágrenni
Fiskiðjunnar
Að gefnu tilefni og til að
forðast frekari misskilning
skal það upplýst að tvíburar
þeir sem tóku þátt í hroða-
athæfinu við 7 ára dreng við
Firkiðjuna og sagt var frá i
síöasta blaði, eiga heima í
nágrenni við Fiskiöjunaeða
nánar tiltekið á Faxabraut-
inni. Er þetta birt hér, þar
sem aörir jafnaldrar þeirra,
er eiga heima við Hátún,
hafa orðiö fyrir aðkasti
vegna málsins, en þeir eru
aö sjálfsögöu alsaklausir.
epj.