Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.1983, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 27.05.1983, Qupperneq 1
Atvinnumálanefnd Suðurnesja: Um 13.3 milljóna tap hjá H.K. Stofnaður verði Iðnþró- unarsjóður Suðurnesja Atvinnumálanefnd Suö- urnesja gekkst ekki alis fyrir löngu fyrir fundi með full- trúum sveitarfélaganna á Suðurnesjum þar sem kynntar voru reglugerðir iðnþróunarsjóða sem fyrir eru í landinu, en þeir eru á Suðurlandi og Austurlandi og voru stofnaðir nú fyrir stuttu. Stefnt er að því að stofn- aður verði iðnþróunarsjóð- ur hér á Suðurnesjum og munu sveitarfélögin leggja ákveðið framlag í sjóðinn á ári hverju. - pket. Taka þátt í iðnsýningu ( nafni SSS ákváðu iðn- fyrirtæki á Suðurnesjum að taka þátt í iðnsýningunni á vegum F.(.(. sem halda á í Laugardalshöllinni á tíma- bilinu 19. ágúst til 4. sept- ember 1983. Fyrirtækin standa sjálf undir kostnaði við sýning- arsvæðið, en SSS hefur kostað starfskrafta sem unnið hafa að samræmingu og undirbúningi að þátt- töku fyrirtækja á sýning- unni. Nú þegar er komið módel að sameiginlegum sýning- arbás, sem hlotið hefur góðar móttökur þátttöku- aðila. Hugmyndir hafa komið fram um hugsanlegt trekkiafl að svæðinu. ( því sambandi hefur verið nefnt að staðsetja módel af Bláa lóninu í þessum sameigin- lega bás. - epj. Kaupir Keflavíkurbær Birkiteig 4-6? Eins og sést hefur í mörg- um undanförnum tölublöð- um hefur Hilmar Hafsteins- son verktaki úr Njarðvík gengið illa aö selja íbúðir þær sem hann er að byggja að Birkiteig 4-6 í Keflavík. Er það haft eftir Guðjóni Stéfánssyni, formanni bygg inganefndar fyrir aldraða, hér í blaðinu fyrir stuttu, að það væri mjög slæmt ef þessar ibúðir færu í frjálsa sölu, en hingað til hafa þær verið auglýstar sem heppi- legar fyrir aldraða. Framhald þessa máls er að Hilmar hefur nú boöið Keflavíkurbæ íbúðirnar til kaups, og á fundi bæjar- ráðs nýlega var málinu vís- að til bygginganefndarinn- ar, sem tók það til umræöu á fundi sínum 6. maí sl. og var eftirfarandi bókað um málið: ,,Tekið var fyrir bréf frá Hilmari Hafsteinssyni varð- andi sölu íbúða á Birkiteig, sem bæjarráð vísaöi til nefndarinnar. Til þessa tíma hafa þessar íbúðir ver- ið auglýstar sem mjög hepþilegar fyrir aldraða. Stærðin á hverri íbúð er 66 ferm. auk sameignar. Þá fylgir einnig hverri ibúð geymsla íkjallara, þurrkher- bergi og föndurherbergi, 45 ferm. í hvoru húsi. ( húsinu eru 8 íbúðir, en ein hefur þegar verið seld. Nefndin telur ibúðir þess- ar mjög hentugar fyrir full- orðið fólk og því mikilvægt að þær nýtist sem slíkar. Þó erfiðlega hafi gengið með sölu íbúðanna hingað til, telur nefndin að annað viðhorf kunni að skapast þegar nær dregur afhend- ingartima þeirra, sem áætlaður er 1. ágúst. Þess vegna sé mikilvægt að reyna að brúa fjárhagslega það bil sem á vantar til að Ijúka við húsið. Varðandi hugsanleg kaup bæjarins á íbúðunum, vill nefndin taka fram, að hún telur nauðsynlegt að fá sem fyrst niðurstöðu varð- andi áframhaldandi leigu á Hringbraut 57, hvort fram- lenging fáist á leigusamn- ingi, og ef ekki, þá verði kannaðir möguleikar á kaupum á Birkiteig 4-6 eða sambærrilegri eign". - epj. Næsta blað kemur út fimmtudaginn 2. júní. Snerting Rekstrarhalli hjá Hrað- frystihúsi Keflavíkur hf. á sl. ári varð rösklega 13.3 millj. kr., að því er fram kom á aðalfundi Kaupfélags Suð- urnesja, sem haldinn var 14. maí sl. Afskriftir námu rúm- lega 7 milljónum kr. en gíf- urlegur fjármagnskostnað- ur var sagður aðal orsökin fyrir þessum mikla rekstrar- halla, en fyrirtækið hefur mikið verið lokað eins og Ljósm.: epj. kunnugt er m.a. af þessum ástæðum. Hraðfrystihúsið rak tvo togara á árinu, b/v Aðalvik og b/v Bergvík, og keypti hlut Andra hf. og Einars Guðmundssonar í m/b Kefl- víkingi KE 100, eða 50%. Hinn helminginn á Fiskiðj- an hf. Jón Benediktsson út- gerðarstjóri hætti störfum hjá fyrirtækinu 15. október. Davíð Guðmundsson aðstoðarframkvæmdastjóri hætti störfum 1. október, og Benedikt Jónsson lét af störfum sem framkvæmda- stjóri 1. nóvember, en starf- ar áfram hjá fyrirtækinu. Ráðinn var framkvæmda- stjóri Guðmundur Stefán Maríasson, og tók hann til starfa 1. október. - epj. Eiga heima í nágrenni Fiskiðjunnar Að gefnu tilefni og til að forðast frekari misskilning skal það upplýst að tvíburar þeir sem tóku þátt í hroða- athæfinu við 7 ára dreng við Firkiðjuna og sagt var frá i síöasta blaði, eiga heima í nágrenni við Fiskiöjunaeða nánar tiltekið á Faxabraut- inni. Er þetta birt hér, þar sem aörir jafnaldrar þeirra, er eiga heima við Hátún, hafa orðiö fyrir aðkasti vegna málsins, en þeir eru aö sjálfsögöu alsaklausir. epj.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.