Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.1983, Síða 7

Víkurfréttir - 27.05.1983, Síða 7
VÍKUR-fréttir Föstudagur 27. maí 1983 7 Haukur strandaði í Sandgerði Laust upp úr kl. 13 sl. föstudag, þegar skuttogar- inn Haukur GK 25 var á út- leið frá Sandgerði, varð bil- un í stýrisútbúnaði skips- ins með þeim afleiðingum að togarinn sigldi í strand um 50 m nær landi en inn- siglingarrennan er. Mikill halli kom fljótt á skipið og flæddi sjór inn um slorlúg- una og voru því fengnar dælur úr landi frá Hitaveitu Suðurnesja og Slökkvilið- inu í Grindavík. Björgunarskipið Goðinn dró síðan Hauk af strand- stað á flóðinu hálfum sólar- hring síðar, en skipið er talið litið skemmt. Vegna þess hve gott var í sjóinn yfirgaf áhöfnin ekki skipiöá strandstað. B/v Haukur GK 25 er í eigu Valbjarnar hf. í Sand- gerði, en skipið var fyrir nokkrum árum gert út frá Keflavík og hét þá Fram- tíðin. - hgg/epj. Lágt vöruverð NONNI & BOBBI Hringbraut 92 Stökkvandi lax viö bryggju i Vogum „Er ég ekki örugglega i Vogum?“ Suðurnesjabar opnar Það hefur lengi verið draumur margra Suður- nesjamanna að opna bar. Nú hefur sá draumur ræst, þó ekki kannski alveg eins og flestir hefðu áætlað, því þessi bar sem Halla Sigurð- ardóttir hefur opnað er að visu ekki hér á svæðinu, heldur á Spáni. í viðtali sem blaðið átti við Höllu er hún varstödd hérá landi fyrir stuttu, sagði hún að bar þennan hefði hún tekið í notkun á síðasta ári, 50-60 rúður brotnar með grjótkasti Á sunnudagskvöld voru brotnar milli 50-60 rúður í trésmíöaverkstæði Dráttar- brautar með grjótkasti. Er ekki vitað hverjir voru þarna að verki og eru því allir þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið, beðnir aö láta rannsóknarlögregluna vita. epj. en þá var nokkur óánægja með fyrirkomulagið, og þvi hefði hún nú opnað aftur eftir gjörbreytingar. Barinn, sem heitirTinnu- bar, er á Mallorca, rétt hjá kinverska staðnum við Royal Magaluf. Á staðnum er spiluð íslensk músík og yfir staðnum er íslenskt yfir- bragð., bæði myndir og ýmsir fánar er tengjast heimahögunum. Á Mall- orca eru nú staðsettir tveir íslenskir barir, en þessi tengist þó okkur Suður- nesjamönnum betur og ættu því allir Suðurnesja- menn að líta þarna inn séu þeiráferðinni þarsuðurfrá. Vildi Halla einnig hvetja þá sem urðu fyrir vonbrigðum í fyrra með staðinn, að líta nú inn ef þeir væru þarna ytra á annaö borð. Eins og margir vita er Halla Keflvíkingur en mað- ur hennar er Spánverji að nafni Antony Pénalver. Allir eru velkomnir á Tinnu-bar. epj. Bílabúðin. Radial l\jólbaróar.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.