Víkurfréttir - 27.05.1983, Page 10
10 Föstudagur 27. maí 1983
VÍKUR-fréttir
Starfsmaður óskast
í kjötvinnslu okkar í Samkaupum, til kjöt-
sögunar og fleira. - Uppl. í síma 1598.
Kaupfélag Suðurnesja /
Leikjanámskeið
Sundnámskeið fyrir börn og fullorðna hefj-
ast í Sundlaug Njarðvíkur mánudaginn
6. júní n.k.
Á sama tíma hefjast íþrótta- og leikjanám-
skeið fyrir börn áaldrinum 5-12ára, ágras-
velli Njarðvíkur og eru foreldrar eindregið
hvattir til að senda börn sín á þessi nám-
skeið.
Innritun hefst 30. maí n.k. í síma 2744.
Sundlaug Njarðvíkur
KEFLAVÍK
Útsvör
Aðstöðugjöld
Fimmti og síðasti gjalddagi fyrirfram-
greiðslu útsvara og aðstöðugjalda er 1. júní
næstkomandi.
Gerið skil á gjalddögum og forðist þannig
dráttarvexti og önnur óþægindi, sem af
vanskilum leiðir.
Innheimta Keflavíkurbæjar
Skólagarðar
Skólagarðar Keflavíkur verða starfræktir í
sumar eins og undanfarin sumur, fyrirbörn
á aldrinum 8-12 ára.
Innritun fer fram í Áhaldahúsi Keflavíkur-
bæjar, Vesturbraut 10a (húsi Rafveitunnar)
sími 1552, mánudaginn 30. maí kl. 13-18.
Starfsemin hefst þriðjudaginn 1. júní.
Ný og aukin þjónusta
á Aðalstöðinni
Býður nú upp á ýmsan háþrýstibúnað
Aöalstööin hf. í Keflavik
hefur nú aukiö þjónustuna
viö Suðurnesjamenn og
býöur nú upp á ýmis konar
háþrýstibúnaö, s.s. tengi,
slöngur, rör og loftbarka og
er þessi búnaöur til í allar
vinnuvélar, báta, bíla og á
verkstæði. Fyrirtækiö Vél-
tengi var áður með þessa
þjónustu, en Aðalstöðin hf.
hefur nú tekiö viö umboö-
inu, en allur útbúnaöur og
vörursem umerrætterufrá
Landvélum hf. í Reykjavík.
Veröur nú hægt aö fá all-
an slönguútbúnaö fyrir
hvaö sem er, hvort sem er í
þvottavélar, báta eða aörar
vinnuvélar og þarf því ekki
að fara til Reykjavíkur fram-
vegis eftir slíkum vörum.
Einnig er nú hægt aö sér-
panta ýmsa hluti eins og
vökvadælur, loftpressur og
einnig boddíhluti í allar
geröir bifreiða meö aðeins
dags fyrirvara, og mun
veröa kappkostaö aö veita
góða þjónustu meö nægan
útbúnaö og vörur á lager.
Ýmsar fleiri breytingar
eru nú i vinnslu á Aöalstöð-
inni og verður til að mynda
gerður nýr inngangur að
sjoppunni og tveim sölu-
opum bætt við þannig að
þau veröa þrjú. Einnig er
verið aö breyta skipulagi á
húsnæöinu aö innan og
fyrir stuttu var tekinn í
notkun kæliklefi sem heldur
öllu gosi og mjólkurvörum
köldum, en framvegis verð-
ur hægt aö fá svokallaöar
G-vörur beint úr kæli auk
gosdrykkja sem alltaf verð-
ur hægt að fá kalda. Auk
2. DEILD:
Víðir tapaði
á Húsavík
Víöismenn heimsóttu
Völsunga á Húsavik í 1. um-
ferö 2. deildar um sl. helgi.
Vöslungar sigruöu 2:0 en
staöan I hálfleik var 1:0.
Jónas nokkur Hallgríms-
son skoraði fyrra mark
heimamanna á 43. mínútu,
en seinna mark Völsunga
skoraöi Kristján Olsgeirs-
son af 35 metra færi. Völs-
unar voru sterkari aöilinn í
leiknum en þeir eru mjög
erfiöir heim aö sækja.
pket.
Patton og
Alli Kalli
Eftir útkomu síöasta
blaðs hafa nokkrir gárung-
ar í Njarövík bentokkuráaö
karl-kanínurnar tvær á Fitj-
um hafi fengið viröuleg
gælunöfn, þ.e. Patton og
Alli Kalli, í höfuöið á þeim
Sveini \Eirikssyni slökkvi-
liösstjóra og Albert Karli
Sanders bæjarstjóra. - epj.
AUGLÝSINGASÍMINN
ER 1717
þess hefur veriö bætt viö
geymslurýmið inni í versl-
Jón Halldórsson, hinn
knái framherji Njarövíkinga
skoraði tvö mörk er Njarö-
2. DEILD:
Reynismenn
lágu fyrir KA
KA frá Akureyri vann yfir-
burðasigur á Reynisliöinu,
en Gunnar Gíslason KA-
maður var óstöövandi og
skoraði 3 mörk í 4:1 sigri
KA-liðsins, er liöin mættust
í 1. umferð 2. deildar á
Sandgerðisvelli.
Ormar örlygsson skoraöi
fjóröa mark KA, en Sigurö-
ur Guönason skoraöi mark
Reynis. - pket.
uninni og vörulager stækk-
aður.
Sem fyrr er Aðalstööin
meö bensínafgreiöslu, bíla-
búö, smurstöð, dekkjaviö-
gerðir auk sjoppunnar, sem
opin er allan sólarhringinn,
og einnig er útibú frá sjopp-
unni aö Hafnargötu 13.
víkingar sigruöu Einherja
frá Vopnafirði um sl. helgi á
fagurgrænum grasvellinum
í Njarðvík.
Meö Jón Halldórsson í
fararbroddi var nánast ein-
stefna á mark Einherja allan
tímann, en Jón skoraöi
fyrra mark sitt í lok fyrri hálf-
leiks meö gullfallegu marki
þar sem hann skaut viö-
stöðulausu skotl óverjandi
fyrir markmann Vopnfirö-
inga. Seinna mark Jóns
kom í seinni hálfleik og mun
aöi litlu aö hann bætti fleir-
um við.
Vopnfirðingar áttu þokka
leg færi í lok leiksins, en
tókst ekki að skora. - pket.
AUGLÝSIÐ í
VÍKUR-FRÉTTUM
PÚSTÞJÓNUSTA
NÝSMÍÐI OG UNDIRSETNINGAR
Eigum til á lager Pústkerfi undir flestar
gerðir bifreiða
Fljót og góð þjónusta.
\ •
PÚSTÞJÓNUSTAN
Fitjabraut 2, Njarðvík - Sími 1227
MIÐNESHREPPUR
Útsvör
Aðstöðugjöld
Fimmti og síðasti gjalddagi fyrirfram-
greiðslu útsvara og aðstöðugjalda er 1. júní
n.k.
Gerið skil á gjalddaga og forðist þannig
dráttarvexti og önnur óþægindi, sem af
vanskilum leiða.
Sveitarstjóri
pket.
i
i
ÞjónustusvæOi Aöalstöóvarinnar hf.
2. DEILD:
Jón Halldórsson í stuði er
UMFN iagði Einherja