Víkurfréttir - 02.06.1983, Blaðsíða 1
SÍS SÝNIRKLÆRNAR
Undirbýður útflutning ísmats í krafti einokunar
Fyrirtækið ÍSMAT HF. (
Njarðvik hefur nú fengiö
svo um munar að finna
fyrir einokunarstefnu
Sambandsins.
ÍSMAT hefir eins og
kunnugt er getiö sér gott
orð varðandi framleiðsiu á
ýmsum unnum kjötvörum
sem pakkaðar eru í mjög
geymsluþolnar pakkning-
ar. Hefur þetta skapað
milli 20-30 atvinnutæki-
færi, og útlitið var bjart
framundan þar til nú.
ÍSMAT hafði gert
mjög hagkvæman samn-
ing um útfiutning á unn-
um kjötvörum til Dan-
merkur, þegar það fékk
svo sannarlega að finna
fyrir einokunarstefnu
Sambandsins, meö þeim
afleiðingum að framtiðar-
vonirnar hrundu á einu
bretti og hefur starfsfólk-
inu nú verið sagt upp
störfum.
Það sem kom upp á var
að S(S undirbauö þennan
útflutning og geröi samn-
ing við danskt fyrirtæki
um að f ullvinna vöruna er-
lendis, þ.e. SÍS myndi
flytja vöruna óunna úr
landi. Er slæmt til þess að
vita að fyrirtæki eins og
SÍS skuli undirbjóða fyrir-
tæki með þessum hætti,
því fyrir utan þaö þó
kannski takist að jarða eitt
smáfyrirtæki, þá er hitt þó
verra, aö stuðla aö því aö
vara fari úr landi óunnin í
stað þess aö vera fullunn-
in hér hér heima, og flytja
þar meðatvinnutækifærin
úr landi.
Sýnir þetta best hvermg
Samvinnuhreyfingin
ræðst á einkaframtakiö,
en þó útlitiö hjá ísmat sé
svart, er unnið að því að
bjarga málunum, alla
vega gera tilraun til þess,
enda veitir ekki af til að
auka á fjölbreytni atvinnu-
lífsins héráSuðurnesjum.
eþj.
..... . _ . " J
Sendum sjó-
mönnum bestu
kveðjur i tilefni
sjómannadagsins.
VÍKUR-fréttir
Úr vinnslusal Keflavíkur hf. fyrir brunann.
Scandinavia Today
opnar á laugardag
Norræna menningarkynn
ingin Scandinavia Today,
sem sagt var frá í síöasta
tölublaði, mun opna kl. 16
n.k. laugardag og stendur
hún yfir til og með 12. júní
n.k. Verður hún opin dag-
lega frá kl. 16-22.
Héðan mun sýningin
síðan fara um Norðurland,
en áður var hún í Norræna
húsinu í Reykjavík.
Sýningin er unnin í sam-
vinnu menntamálaráðu-
neytisins og Menningar-
stofnunar Bandarikjanna.
unnið hefur við hana og
verður áfram.
Frystihúsin i Sandgerði
taka fjölda skólabarna,
þannig að eftirspurn 13-14
ára krakka í unglingavinn-
una þar er mjög lítil en þar
fá krakkar 11 og 12 ára
vinnu í unglingavinnunni.
í Garði taka frystihúsin
einnig fjölda skólafólks og
er vitað aö einhver hluti
þess komi úr Keflavík eins
og undanfarin ár, en ungl-
ingavinna verður einnig
starfrækt í Garðinum.
Hjá Keflavíkurbæ er
ástandið svipað og hefur
verið áður. Unglingavinnan
verður í fullum gangi og
einnig hafa nokkrir eldri
krakkar fengið vinnu viö
ýmis fegrunar- og hreins-
unarstörf. Sama er að segja
um Njarðvíkurbæ, þarer þó
meiri ásókn í störf hjá
bænum við fegrun og
annað slíkt heldur en áður,
en óvíst hve mikið verður
ráðið af þeim fjölda.
pket.
Löndun
pkat.
Undirskriftir meðal starfsfólks
Keflavíkur hf. Skora á atvinnumálanefnd
Starfsfólkið sem starfaði i
Keflavík hf. hefur nú safnað
undirskriftum þar sem það
skorar á Atvinnumálanefnd
Keflavíkur að bjarga töpuð-
um atvinnutækifærum sem
nú fara til Sandgerðis, þ.e.
ef fólkið flytur vinnu sína
þangað.
Þá hefur frést að það fólk
sem hefur hafið störf hjá
Miðnesi hf. en starfaði áður
hjá Keflavík hf., sé ekkert of
hrifið yfir aðstöðunni þar
útfrá, og er þegar vitað um
að nokkra sem hafnað hafa
vinnu þar útfrá og látið skrá
sig á atvinnuleysisskrá hjá
Vinnumiðlun Keflavikur-
bæjar. Auk þess hafa hús-
mæður kvartaö yfir vega-
lengdum og því að verra sé
fyrir bornin að násambandi
við mæðurnar ef þær starfi i
Sandgerði, helduren þegar
þær störfuðu hér innan-
bæjar. - epj.
Atvinnuhorfur skólafólks í sumar:
Ekki eins slæmar og á horfðist
Atvinnuhorfur skólafólks
í sumar eru svipaðar og
undanfarin ár, en þó var út-
litið ekki bjart fyrir stuttu
síðan.
Frystihúsin og fiskverk-
unarhúsin á Suðurnesjum
verða flest öll með svipað-
an fjölda og áöur og þar
með talið Keflavík hf., sem
óvíst var með eftir brunann,
þvi að á þriöjudag hófst
humarvinnsla og skóla-
krakkar hafa verið uppi-
staðan í þeim fjölda er
epj