Víkurfréttir - 09.06.1983, Page 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 9. júní 1983 15
„Mikilvægt að geta verið úti“
- segir Bjarni Frímannsson, 86 ára
„Það gæti orðið ágætt,
þó það sé hálf kuldalegt í
dag,“ sagöi Bjarni Frí-
mannsson, er blaðamaður
Víkur-frétta hitti hann ekki
alls fyrir löngu viö Hafnar-
götuna og spurði hann
hvernig sumarið legðist í
hann.
,,Ég man nú eftir mörg-
um geysiköldum vorum,
enda Norðlendingurog ætt-
Opnum að Vallar-
götu 14, miðviku-
daginn 15. júní.
GRÁGÁS HF.
aöur frá Hvammi í Langa-
dal, og t.d. man ég eftir því
er ég og hálfbróöir minn
fórum yfir Blöndu á ís 16.
maí árið 1916, þannig að ég
er öllu vanur hvað veður-far
snertir."
Hvernlg er hellsan?
„Hún er nokkuð góð og
verður betri með hækkandi
sól. Ég fékk að visu krans-
æðastíflukast í september í
fyrra og er búinn að fara 3
sinnum á sjúkrahús, en er
nú allur að hressast," sagði
hinn geðþekki gamli maður
að lokum." - pket.
Víða hundaplága
„Hvar er eftirlitið með
hundum sem ganga lausir?
Ef maður hringir í lögregl-
una og kvartar, þá vísar hún
á heilbrigðisfulltrúa, en
hann viröist sjaldan vera við
og því erfitt að ná til hans.
Hundaplága sú sem nú er í
Garðahverfi og Eyjabyggð
er orðin til stórvandræða.
Mér og fleirum finnst það
ansi hart, að þegar búið er
að planta út sumarblómum
og snyrta lóðir, þá koma
hundarnir, jafnvel 5 í röð í
garðinn og gera þar þarfir
sinar og troða um leið niður
blómin. Sama sagan endur-
tekur sig dag eftir dag“.
Þetta sagði einn bæjar-
búi sem hafði samband við
blaðið fyrir stuttu síðan, og
bætti síðan viö: „Vonandi
þurfum við ekki að grípa til
sama verknaðar og ég veit
að var framkvæmdur við
götu eina í Reykjavík, þar
sem slík plága var. Þartóku
íbúar við götuna sig til og
lokkuöu hundana til sín og
spreyjuðu síðan litsterkri
málningu á trýnið á þeim,
og það dugði til þess að þeir
komu ekki aftur."
Þetta er aðeins ein sagan
sem okkur hefur borist að
undanförnu vegna hunda
hér á Suðurnesjum. Margir
hafa kvartað yfir því að erfitt
sé að hafa lítil börn úti við
vegna stórra hunda sem
hræði þau. Fólk í Vogum
hefur einnig kvartað yfir
miklu hundafargani þar,
einnig fólk í Sandgerði, og
svona mætti lengi telja.
Þvi spyrjum við hvortekki
sé tími til kominn að stöðva
þennan faraldur í eitt skipti
fyrir öll, því allir hljótaaðsjá
að ekki er uppörvandi t.d.
fyrir húseigendur að snyrta
í kringum sig ef von er á því
að hundur skemmi það jafn
óðum. „Ef rétt yfirvöld
kippa þessu ekki í liðinn hiö
fyrsta, má fara að búast við
einhverjum miður réttum
aðgeröum, t.d. að fólk
hreinlega reyni að kála
þessum kvikindum," eins
og einn þeirra sem hafði
samband við blaðið orðaði
það.
Hér er veriö að ræða um
þá hunda sem ganga lausir,
það hljóta að vera til lög yfir
þá og því höfðum viö sam-
band við heilbrigðisfulltrúa
og spurðum hann um
máliö.
Jóhann Sveinsson sagði
að í dag væri eftirlitið í
höndum hundafangara, en
það háði þó starfseminni að
nægjanlegt fjármagn vant-
aði til að hann gæti starfað
að þessum málum sem
skyldi. Þá sagði hann að nú
nýlega hefði ráðuneytið
gengið frá samþykkt á nýrri
hundalöggjöf, sem setti
undir ýmsa leka sem áður
voru, og væri nýja löggjöfin
þvi mun strangari. Löggjöf
þessi bíður nú eftir birtingu
í Stjórnartíðindum til að
öðlast gildi og myndi það
ske á næstu dögum. Þá
sagðist hann vonast til aö
sektir fyrir lausa hunda
myndi stórhækka á næstu
unni.
Verði þetta allt eins og
þaö á að vera, leysast málin
vonandi farsællega. - epj.
Til styrktar Hlévangi
Þessir krakkar héldu tombólu að Sólvallagötu 44 til styrktar
elliheimilinu Hlévangi, laugardaginn 28. mai sl„ og
söfnuðu þau 298 kr. Þau heita Sigurður, Halla, Arna Björk
og Laufey, og eiga heima á Sólvallagötu 44 og 46. - hgg.
AUGLÝSINGASÍMINN ER 1717
PÚSTÞJÓNUSTA
NÝSMÍÐI OG UNDIRSETNINGAR
Eigum til á lager Pústkerfi undir flestar
gerðir bifreiða
Fljót og góð þjónusta.
PÚSTÞJÓNUSTAN
Fitjabraut 2, Njarðvík - Sími 1227
Innrömmun sf., Njarðvík
Vegna sumarleyfa verður lokaö frá og með
20. júní til 18. júlí.
Innrömmun sf., Holtsgötu 8, Njarðvík
Fóstrur
Staða forstöðumanns við dagheimilið og
leikskólann Garðasel, Keflavík, er laust til
umsóknar. Áskilið er að umsækjendur hafi
fóstrumenntun. Staðan veitist frá 1. sept.
1983. Uppl. um stöðuna eru veittar hjá fé-
lagsmálafulltrúa, Hafnargötu 32, sími 92-
1555, frá kl. 9-12 alla virka daga. Skriflegar
umsóknir þurfa að berast félagsmálafull-
trúa fyrir 20. júlí n.k.
Félagsmálaráð Keflavíkurbæjar
NJARÐVÍK
Fasteigna-
gjöld
Þriðji og síðasti gjalddagi fasteignagjalda
1983 var 15. maí sl.
15. júní n.k. eru öll fasteignagjöldin fallin í
gjalddaga og innheimtuaðgerðir hefjast
strax þar á eftir.
Dráttarvextir eru 5% fyrir hvern byrjaðan
mánuð.
Greiðið fyrir 15. júní og forðist þannigfrek-
ari innheimtuaðgerðir.
Bæjarsjóður Njarðvíkur - Innheimta
KEFLAVÍK
Lögtaks-
úrskurður
Samkvæmt beiðni bæjarsjóðs Keflavíkur
úrskurðast hér með, að lögtök geta farið
fram vegna gjaldfallinnar ógreiddrar fyrir-
framgreiðslu útsvars- og aðstöðugjalda
ársins 1983 til bæjarsjóðs Keflavíkur, allt
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði.
Lögtök geta farið fram að liðnum 8 dögum
frá birtingu úrskurðar þessa, ef ekki verða
gerð skil fyrir þann tíma.
Keflavík, 2. júní 1963.
Bæjarfógetinn í Keflavík
Jón Eysteinsson (sign)