Víkurfréttir - 30.06.1983, Blaðsíða 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 30. júní 1983
Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, f.v. Guðmundur Ingólfsson, Jóhann Guð
mundsson, Einar Júliusson, Agnar Sigurvinsson, Reynir Guðmannsson og
Erlingur Jónsson.
„Kústaskápurinn heima var
alveg fyrirtak"
- segir Einar Júlíusson sem nú ætlar að fara að
syngja af fullum krafti á ný.
Samvinnuferdir - Landsýn
Umboösmaöur í Kefiavik
Kristinn Danivalsson
Framnesvegi 12
Sími 1864
Blómafræflar
VILTU GRENNAST
fáðu þér fræfla
Sölumaöur Gísli Reymarsson,
Faxabraut 28 - Sími 92-1849
M
|hf
glugga- og
hurðaverksmiðja
NJARÐVlK - SlMI 1601
,,Pónik og Einar, Pónik og Einar", þessi orð glumdu
oft i útvarpinu hér áöur fyrr og þýddu mikið fjör og troðfullt
hús. Siðan hefur litið borið á Einari Júlíussyni sem
söngvara þar til að hann sló aftur i gegn nú i vetur á rokk-
hátiðinni i Brodway. Ástæðan var að Einar dró sig i hlé frá
sönginum í nokkur ár, en eins og fram kemur hér á eftir er
ekki að vita nema að Einar byrji aftur að fullu og án efa eiga
þá margir eftir að skemmta sór með honum.
„Stúlkurnar i Kaup-
félaginu rœndu mér"
í viötali því sem hér
kemur á eftir rekur Einar
feril sinn og sitthvaö fleira
m.a. hvort eitthvað sé til í því
að hann sé að byrja að nýju
o.fl. o.fl. Fyrst spurðum við
Einar hvað hann hafi verið
gamall þegar hann byrjaði
að syngja og hvernig þessi
mál hefðu þróast?
Einar sagði: „Fyrsta lagið
sem ég lærði að syngja hét
Sibaba, sibaba, sem var
bresk vögguvísa. Ég er
fæddur 1944, sem fylgir svo
nefndum hernámsárum, þá
umgekst maður ameríkana
að einhverju leiti hér niður í
Keflavík, m.a. vareinn vinur
hans pabba breskur
hermaður og mér skilst að
hann hafi kennt mér þessa
vísu þegar ég var 2ja ára
gamall.
Mamma sáluga sagöi
mér, að hún hafi oft þurft að
leita aö mér dauðaleit og
þ.á.m. var það í eitt skipti
sem hún var mjög hrædd
um mig, klukkan var langt
gengin í sjö og hún var búin
að leita um allt nágrennið
og ímyndaði sér allt hið
versta. Þá labbar hún fram
hjá Kaupfélaginu að Hafnar
götu 30 og heyrir hún þá
rödd sem henni finnst að
hún endilega kannist við
hljóma inn úr búðinni. Þá
kom það í Ijós aö stelpurnar
sem unnu i Kaupfélaginu
voru búnar að ræna mér og
stilla mér upp á borö og þar
söng ég"
„Mér var hampafi
meira en Öðrum"
„Síðan fór að bera á
feimni hjá mér, það var ekki
hægt að fá mig til að syngja
nema að ég sæi ekki fólkið.
Þá var kústaskápurinn
heima alveg fyrirtak, ég fór
inn í skápinn og lokaði hurð
inni og söng svo hástöfum
þar inni í myrkrinu, kom
síðan fram og sagði krónu
takk. Þannig að 2-3ja ára
gamall var ég farinn að afla
mér peninga með söngin-
um.
Nú þegar ég fór i barna-
skólann þróaðist þetta
þannig að söngkennarinn
minn, Stefán Hallsson fór
að hampa mér meir en
öðrum, láta mig syngja ein-
söng í tímum, svo þróaðist
þetta þannig að ég fór að
syngja á árshátíðum barna-
skólans ýmis ættjarðarljóð
sem þá voru í gangi, ýmis
gömul og góð lög. Eftir það
var ég orðinn fastur liður á
öllum skóla- og stúku-
skemmtunum meðeinsöng.
Þegar ég var 12 ára, uröu
þáttaskil, ég var fenginn til
að syngja á gagnfræða-
skólaballi með skólahljóm-
framh. á bls. 8.
t\-............i\! i KJeiri_ri.viK
Bílabúóin.
*&«&
*$$*<**
«5%-*
Radial hjolbaróar.
Bifreiðastöðin.
ERTU í VANDRÆDUM
Verdirþú í vandræöum
___ - úrdropanum
drjúpa á íbúö þína
FjdfOpÍflA