Víkurfréttir - 30.06.1983, Blaðsíða 12
vnmaMtm
Fimmtudagur 30. júní 1983
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er aö Hafnargötu 32, II. hæö. - Sími 1717.
[ m G
i u^Hm I
ÉMÍ
SPARISJOÐURINN
míítióear—
119
Keflavík
Sími 2800
NJarövík
Sími 3800
Garöi
Sími 7100
Hagkaup opna á morgun
Á morgun föstudag mun
Hagkaup opna hinn nýja
stórmarkað sinn á Fitjum og
um leið verður á Hagkaups-
svæðinu opnuð bensínaf-
greiðsla á vegum Skeljungs
grillstaður i benzínaf-
greiðsluhúsinu á vegum
Tomma-borgara.
Verzlu narstjóri hjá
Hagkaup er Gylfi Ármanns-
son, umsjónarmaður með
benzinafgreiðslunni veröur
Jóhannes Hleiðar Snorra-
son og Tomma-borgarar
veröa í umsjón Jóhannesar
Sigurðssonar. Sennilega er
það þó Hagkaup sem fólk
hugsar fyrst og fremst um
og þvi tókum við Gylfa tali'
í byrjun vikunnar.
Hann sagöi að vörumark-
aöur sá sem Hagkaup yröi
meö hér, byöi upp á alla þá
þjónustu sem fyrirtækiö
hefði nú í Skeifunni í
Reykjavík, þó þessi staöur
væri minni í sniöur,
vöruverð hér yröi t.d.
hagkvæmara en þar innfrá
og þar af leiðandi mun hag-
kvæmara en boðið væri upp
á í öörum stórmörkuöum
hérna syöra.
Ýmis þau vandamál sem
hinir markaðarnir urðu að
ægsla i upphafi, hafa þegar
Innbrotstilraun
í frystihús
Óla Lár hf.
Tilraun til innbrots var
framin í Hraðfrystihús Ólafs
Lárussonar við Hafnargötu
og sást til manns á ferli þar
við norðanvert húsið um
fimmleytið aðfaranótt
miðvikudags í síðustu viku.
Var maðurinn á bak og burt
þegar lögreglan kom að.
veriö leystir hjá Hagkaup,
t.d. væri alveg sama eftir
hvaöa vöru væri leitað og i
hvaöa deild væri, starfsfólk
staöarins myndi vísa
viöskiptavin unum að
vörunni umsvifalaust. Enda
starfa tæplega 40 manns við
hin ýmsu störf hjá
fyrirtækinu.
Gylfi Ármannsson, verzlunarstjóri í Hagkaupum
Vörumarkaður Hagkaups
verður opinn frá kl. 10 til kl.
19 mánudaga til fimmtu-
daga, föstudaga frá kl. 10 -
20, og laugardaga frá kl. 10-
16 og verður fullt starfslið
að störfum ávallt þegar
verslunin er opin.
Varðandi umhverfi
fyrirtækisins þá verður
gengið frá því aö fullu fyrir
opnun, þ.e. bílastæði
máluð, lagðar túnþökur á.
það sem þarf og sáð í
annaö, þannig að engin
ummerki verða eftir umrót í
nágrenninu. Og að lokum
sagði Gylfi að miklar kröfur
yröu geröar til starfsfólks
um að sýna góða þjónustu
við viðskiptavinina, en
kröfur fyrirtækisins ná
lengra t.d. verður ekki leyft
að hengja neinar auglý-
singar á gluggana eöa
annars staðar, ekki verður
leyfð nein blaðadreyfing
eða sala og fleira í þeim dúr.
-epj.
Varnarliðsþyrla nauðlenti
Á hádegi miövikudagsins
í síöustu viku nauölenti
þyrla frá Varnarliðinu um 50
metra ofan við þjóðveginn
út í Garð, skammt frá fyrstu
húsunum. Slys urðu ekki á
mönnum né tjón á þyrlunni.
Mik Magnússon blaða-
fulltrúi Varnarliðsins sagöi i
viötali viö blaöið aö
ástæðan fyrir þessari nauö-
lendingu hafi veriö að
aövörunarljós heföi komiö í
mælaboröiö hjá flugstjóra
þyrlunnar sem var i æfinga-
flugi. Gaf Ijósið til kynna
bilun í gírkassa við aftur-
hreyfil og "þegar svona
kemur upp er flugmönnum
skipað aö lenda strax áöur
en eitthvað fer úrskeiðis og
því var það gert strax" sagði
Mik.
Eftir nauðlendinguna
komu viðgeröarmenn á
staðinn og viö athugun kom
í Ijós smávægileg bilun við
gírinn til þess spaða sem
heldur stefnu vélarinnar.
Þ.e. ef um alvarlega bilun er
að ræöa fer vélin einungis í
hringi. Eftir stutta stund var
viðgerð lokið og hélt vélin
þá áfram ferðinni upp á
Keflavíkurflugvöll.
-epj.
Vínveitingar
Á fundi bæjarráðs £J
Keflavíkur 23. júní s.l. var
tekið fyrir erindi frá
Dómsmálaráöuneytinu
þar sem það leitar eftir
umsögn bæjarstjórnar
vegna bei ni Axels
Glóðinni?
90% ökumanna fara nú rétt að
3S*»*»p
'fl: \
\£5fir lÉfll
L
Hér fara menn rétt aó..
en hér lá viö árekstri, þar sem billinn til hægri
fór ekki rótt að.
Aðeins um einn af
hverjum 10 ökumönnum er
keyra niður Hafnargötu á
móts við Víkurbraut og
Faxabraut fer ekki rétt að er
þeir ætla að keyra niöur
Hafnargötu, en fyrir stuttu
var málað á götuna örvar
sem sýna hvernig á aö fara
að hvort sem ökumaður
ætlar upp Faxabraut
(beygja til vinstri og vera á
miöakgrein) niður Hafnar-
götu (hægri akgrein) eöa
beygja til hægri niður
Víkurbraut. Þar til gatan var
máluð munaði oft sáralitlu
að árekstrar yrðu og nánast
mesta mildi að ekki varö.
Meö tilkomu örvannaætti
að vera greinilegt fyrir
ökumenn að nota rótta
akgrein þannig að ekki
veröi hætta á slysum.
-pket.
Jónssonar veitinga-
manns um leyfi til vín-
veitinga í Veitingahúsinu
Glóðinni, Hafnargötu 62,
Keflavík.
Bæjarráð leggur til að
Axel Jónssyni veitinga-
manni verði veitt leyfi til
að veita vín á veitinga-
húsinu Glóöinni að
Hafnargötu 62, efri
hæð.samkv. gildandi
lögum þar um. Þó verði
veitingamanni heimilt að
veita vín með mat á neðri-
hæð staðarins uns efri
hæðin er fullbúin til fyrir-
hugaðs reksturs. Vín-
veitingaleyfið gildir til 1.
júlí 1984.
Við atkvæðagreiðslu i
bæjarráði sat Hilmar
Pétursson hjá, en loka-
afgreiöslan átti aö fara
fram i bæjarstjórn s.l.
þriðjudag.
-epj.
Næsta blað
kemur út
7. júlí n.k.
Spurningin:
Fylgist þú meö
íþróttum?
Olafur Sigtryggsson:
,,Já. mikið t.d. knattspyrn-
unni".
Ólafur Erlingsson:
..Ég geri það svolitið, þá
aðallega knattspyrnunm \
Rósa Guðmundsdóttir:
..Nei, ekkert"
Helga Þorsteinsdóttir:
,,Nei, aðeins Í.B.K. i fót-
boltanum".