Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.07.1983, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 07.07.1983, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 7. júlí 1983 VÍKUR-fréttir ÍS-mat hf. auglýsir Vegna fjölda fyrirspurna, höfum við ákveðið, að taka kjöt í reyk. Tekið er á móti frosnu kjöti á miðvikudögum. BREKKUSTÍG 40 YTRI-NJARÐVÍK SÍMI 2152 Ofsóknir á rnm i Mjög þunglega horfir um þessarmundirfyrir framtið þeirra 300.000. Baháía sem búa í Iran. Hafa stjórn- völd í Iran og sjálfskipaðir byltingaverðir síöastliöin fjögur ár tekiö af lífi eftir pyndingar yfir 150 Baháía sem gefið hefur verið að sök undirróður og njósnir i þágu Síonista, ásamt ým- sum öðrum upplognum sakargiftum. Ekki er hægt í stuttri grein sem þessari aö rekja í smá- atriðum atburði síðustu mánuða, hvað þá ára, en til að auðvelda umfjöllun má setja fram þær þrjár megin- leiðir sem beitt hefur verið í ofsóknum þessum. 1. Almennri upptöku allra eigna og helgistaöa Baháí samfélagsins. 2. Fjárhags-og félagslegum þvingunum er einstakir Baháíar eru beittir í þeirri von að þeir afneiti trú sinni á Bahá'ú'lláh (Dýrð Guðs). 3. Kerfisbundnum handtök- um og aftökum á leiðtogum trúarinnar. Flest heimsblaðanna hafa fjallað um kjör Bahá'íanna í Iran og hefur ástandsins einnig marg- sinnis verið getið í íslensk- um. Fjöldi einstaklinga og félagssamtaka hafa þegar Sólbað, sund, vatnsnudd og heitir pottar SUNDHÖLLIN ER OPIN SEM HÉR SEGIR: Mánudaga til fimmtudaga: Frá kl. 7,30-9 og 12-22. Föstudaga: Frá kl. 7,30-9 og 12-19. Laugardaga: Frá kl. 8-10 og 13-18. Sunnudaga: Frá kl. 9-12. ATH.: Framvegis verður opiö í kvöldmatnum frá kl 19-20, mánudnga til fimmtudaga. Tímapantanir í sólbekkina í síma 1145 SUNDHÖLL KEFLAVÍKUR TILBOÐ Hreinsum útveggi húsa með háþrýstidælu t.d. hraunaða, skeljaða og plastklædda - þvoum einnig glugga. Verð c.a. 1000 kr. pr. einbýlishús. VANIR MENN - VÖNDUÐ VINNA HAFIÐ SAMBANDI SÍMI 45507 (HRAFNHILDUR) kl. 9-13 hendur íran lýst yfir andstöðu sinni gegn mannréttindabrotum þeim sem hér um ræðir. Einnig hafa fjölþjóðastofn- anir tekið málið upp, og haröorð mótmæli verið send stjórnvöldum Irans. Sem dæmi má nefna samþykkt Evrópuþings Efnahagsbandalagsins árið I980 varðandi útflutnings- bann á niðurgreiddum landbúnaðarvörum aðildar- r í k j a n n a t i I I r a n s í mótmælaskyni. Fjallaö hefur verið um MÁLIÐ af Evrópuráðinu og undir- nefnd Mannréttindanefnd- ar Sameinuðu þjóðanna og tvívegis á fundum mannrétt- indanefndarinnar sjálfrar. Það misrétti er Bahá'íar í Iran eru beittir í heimalandi sínu og sú ógn er steðjar að þessu hrjáða fólki dag hvern, hlýtur að vekja óhug og andúð allra þeirra er af þessu fá raunsanna mynd. í skýrslu er Mannréttinda- nefnd Mótmælendakirkju- sambandsins í Sviss gaf út 12.sept. 1979 um ofsóknir- nar eftir að hafa kannaö málið þar i landi, segir: „Bahá'í samfélagiö í Iran á sér sögu og hefð í þessu landi allt aftur til 1884. Á þeim tíma hafa meðlimir þessa samfélags lagt sitt af mörkum til menntunar og velferðar Irönku þjóðarinn- ar og verið löghlýðnir borg- arar og friðelskandi fólk. Þeir eru einlægir i sannfær- ingu sinni og trú og fylgja því trúarákvæði að taka ekki þátt í stjórnmálastarfi í Iran.... Þetta er alvarlegasta tímabil í sögu Bahá'í safnfélagsins í Iran. Ef ekki verður gripið til skjótra að- gerða á réttum stöðum, hvílir raunveruleg og bráð hætta yfir hópi einlægra lærisveina trúar Bahá'- ú'lláh." ( tilefni enn aukinna of- sókna á hendur Bahá'íum i Iran efna Bahá'íar til opin- berrar kynningar á málstað sínum, í slysavarnarhúsinu ( Sandgerði mánudagskvöld 11. júlí kl.20. Verðurþaröll- um fvrirspurnum svarað og málið kynnt viðstöddum. Fyrir hönd Andlegs Svæðisráðs Keflavíkur. Svanur G. Þorkelsson. Eigendaskipti á Draumalandi Eins og áöur hefur komið fram uröu nýlega eigenda- skipti að versluninni Draumalandi, Hafnargötu 37a, og er hinn nýi eig- andi Stella Olsen. Verður verslunin rekin áfram með svipuðu sniði og áður, en með haustinu mun úrval verða fjölbreyttara, og hefur nú þegar bæst í vöru- úrvalið sundföt, aðallega í stórum númerum, fyrir konur. Um afgreiðslustörf í Draumalandi sjá þær Berg- Ijót Stefánsdóttir og Mar- grét Siguröardóttir. epj. Hinn nýi eigandi Draumalands, Stella Ólsen, ásamt dóttur sinni Telmu Birgisdóttur, i versluninni. Skrifið eða hringið til Víkur-frétta Víkur-fréttir hvetur les- endur til aö skrifa blaðinu um hvaöeina sem hugur þeirra stendur til - eða hringja í sima 1717, ef þeir koma ekki viö að skrifa. Meðal efnis sem vel er þegið eru ábendingar, oröaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla, frétta og stuttra grelna. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð þó þaö sé ákjósan- legra, séu þau skrifuð þurfa þau að vera snyrtileg og með góðri rithönd. Nöfn, nafnnúmer og heimilisföng veröa aö fylgja öllu efni til blaðsins, þó höfundur óski nafnleyndar. Sérstaklega þykirástæða til aö beina því til lesenda búsettum í hinum ýmsu byggöum Suðurnesja utan Keflavíkur, aö þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í blaöinu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.